Ég hef séð á sumum miðlum að blá augu komi frá forfeðrum okkar sem stunduðu sifjaspell. Er það satt eða bara ranghugmyndir frá miðlum sem spúa bara bulli?Stutt svar Stutta svarið er einfaldlega nei, sifjaspell forfeðra okkar tengist ekki hærri tíðni gena sem stuðla að bláum augum meðal okkar. Það á hvorki við um Íslendinga né mannkyn í heild sinni. Lengra svar Til þess að svara spurningunni í lengra máli og útskýra nánar eru rétt að ræða þrjú atriði sérstaklega. Í fyrsta lagi mögulega innræktun í forfeðrum okkar, í öðru lagi erfðir blárra augna og í þriðja lagi þróun augnlitagena í mönnum. Fyrst þarf að útkljá, hver erum „við“ („okkar“ í spurningunni), erum „við“ mannkynið í heild, Evrópubúar, Íslendingar eða lesendur Vísindavefsins? Það er ekki fyllilega ljóst á spurningunni um hverja er rætt en gefum okkur hér að spurt sé um Íslendinga eða Evrópubúa, því meðal þeirra eru blá augu algengust. Sifjaspell er það kallað ef náskyldir einstaklingar (til dæmis systkini) hafa samræði eða önnur kynferðimök. Slíkt er refsivert samkvæmt íslenskum lögum.[1] Læknisfræðileg rök liggja þessu til grundvallar, því ef náskyldir einstaklingar eignast afkvæmi aukast líkurnar á neikvæðum áhrifum innræktunar (e. inbreeding). Þótt innræktun sé notuð í stýrðri ræktun er hún almennt óæskileg þar sem hún getur afhjúpað erfðagalla sem leiða til sjúkdóma og jafnvel dauða. Margvísleg dæmi er um þetta, til að mynda hjá hundum og loðfílum.

Stýrð ræktun til að ná fram ákveðnum eiginleikum hefur á mjög löngum tíma getið af sér mörg hundruð hundakyn. Hjá hreinræktuðum hundum hefur þetta bæði leitt til mikillar skyldleikaæxlunar og einnig hafa fjölmörg slæm einkenni erfst samhliða eftirsóttu einkennunum.

Augnlitur stafar af styrk melaníns, og er greindur á rófi (sem bylgjulengd). Algengast er að skilgreina þrjá meginliti, bláan, grænan og brúnan, sem samsvara algengustu bylgjulengdunum.

Tíðni blárra augna er ekki jöfn meðal hópa manna, og sýnir landfræðilegt mynstur. Tíðnin er lág í Norður-Afríku og Miðausturlöndum, en hæst í norðurhluta Evrópu.
- Erfðir blárra augna eru flóknari en kennslubókin gefur til kynna.
- Breytileiki í 12 genum tengist bláum augum.
- Tíðni blárra augna er hæst í norðurhluta Evrópu
- Sifjaspell er ekki orsökin fyrir þróun blárra augna.
- Í einhverjum tilfellum hafa blá augu verið náttúrulega valin.
- ^ Sjá svar við spurningunni Er heimilt að eignast barn með bróður sínum?
- ^ Sjá svar við spurningunni Er rétt að loðfílar hafi verið erfðafræðilega úrkynjaðir og var útdauði þeirra óhjákvæmilegur?
- ^ Undantekningarnar eru nokkrir afmarkaðir hópar, eins og frumbyggjar á vissum Kyrrahafseyjum. Íslendingar eru ekki sérstaklega innræktaðir en rannsókn Agnars Helgasonar og samstarfsfólks (2008) afhjúpaði forvitnilegt mynstur. Fyrirsjáanlega voru mjög skyldir foreldrar með litla frjósemi (líklega vegna áhrifa innræktar), en miðlungsskyld pör voru með hæsta frjósemi.
- ^ OCA2 genið skráir fyrir ensími sem er nauðsynlegt fyrir myndun melaníns, sem gefur dökkan lit. Einstaklingar sem eru arfhreinir (með tvö eintök) um ónýtar samsætur af OCA2 geninu geta ekki myndað melanín og eru því litlausir, kallað albínóar á íslensku. HERC2 genið skráir fyrir ensími af E3 gerð sem bindur ubiqutín á önnur prótín (e. E3 ubiquitin ligase), en ekki er almennilega vitað hvernig virkni þess tengist framleiðslu eða dreifingu á litarefninu. Sjá nánar Donnelly o.fl. (2012).
- ^ Kynþættir (e. human races) eru gömul hugmynd um að mannfólk skiptist í fjóra eða fleiri undirhópa sem greina má einfaldlega á húðlit og öðrum einföldum útlisteinkennum.
- ^ Sjá Sturm & Larsson, (2009),
- ^ Svante Paabo, Jonathan Krause og aðrir hafa greint sögu þessara systurhópa okkar og blöndun þeirra við forfeður okkar, með rannsóknum á fornDNA – sjá svar við spurningunni Hver fékk Nóbelsverðlaunin í lífeðlisfræði og læknisfræði 2022 og fyrir hvað?.
- ^ Sjá Lazaridis, 2022.
- ^ Hreinsandi náttúrulegt val spyrnir á móti tilviljuninni, en því minni sem stofninn er því veikari verður sú mótspyrna. Þannig gátu til dæmis alvarlegir gallar safnast upp í loðfílunum á Wrangel-eyju.
- Jón Elvar Guðmundsson. (2003, 7. febrúar). Er heimilt að eignast barn með bróður sínum? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=3113
- Arnar Pálsson. (2017, 6. apríl). Er rétt að loðfílar hafi verið erfðafræðilega úrkynjaðir og var útdauði þeirra óhjákvæmilegur? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=73765
- Guðmundur Eggertsson. (2001, 21. febrúar). Hvað er ríkjandi gen og víkjandi gen? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=1348
- Þuríður Þorbjarnardóttir. (2002, 21. maí). Hvað ræður augnalit okkar? Hvort eru blá eða brún augu ríkjandi? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=2402
- Arnar Pálsson. (2022, 26. október). Hver fékk Nóbelsverðlaunin í lífeðlisfræði og læknisfræði 2022 og fyrir hvað? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=84227
- Agnar Helgason o.fl. (2008). An Association Between the Kinship and Fertility of Human Couples. Science, 319, 813-816. https://doi.org/10.1126/science.1150232
- Donnelly M.P. o.fl. (2012). A global view of the OCA2-HERC2 region and pigmentation. Human Genetics. 131(5), 683-96. https://doi.org/10.1007/s00439-011-1110-x
- McDonald, J. (2011). Eye colour: The myth. The myths of human genetics: blog. https://udel.edu/~mcdonald/mytheyecolor.html
- Pośpiech, E. o.fl. (2011). Gene–gene interactions contribute to eye colour variation in humans. J Hum Genet 56, 447–455. https://doi.org/10.1038/jhg.2011.38
- Sturm, R.A. & Larsson, M. (2009). Genetics of human iris colour and patterns. Pigment Cell & Melanoma Research, 22(5), 544-562. https://doi.org/10.1111/j.1755-148X.2009.00606.x
- Lazaridis I. o.fl. (2022). A genetic probe into the ancient and medieval history of Southern Europe and West Asia. Science, 377(6609), 940-951. https://doi.org/10.1126/science.abq0755
- Yfirlitsmynd: Blue Eye in Close Up · Free Stock Photo. (Sótt 17.02.2026). Myndin er birt undir CC-leyfi.
- Celebrating National Dog Day 2022. Paddington's Pups. https://paddingtonpups.com.au/celebrating-national-dog-day-2022/
- LeuschteLampe. (2011, 8. mars). Farbverlauf Augenfarben.jpg. Wikimedia Commons. https://commons.wikimedia.org/wiki/File:Farbverlauf_Augenfarben.jpg
- Peter Frost. (2024, 5. ágúst). Eye Color map without borders.png. Wikimedia Commons. Birt undir CC BY 4.0 leyfi. https://commons.wikimedia.org/wiki/File:Eye_Color_map_without_borders.png