Sólin Sólin Rís 07:30 • sest 19:04 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 18:07 • Sest 12:50 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:37 • Síðdegis: 19:54 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:33 • Síðdegis: 13:51 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hver var Tómas Tryggvason og hvert var framlag hans til jarðvísinda?

Sigurður Steinþórsson

Vísindafélag Íslendinga - 100 ára
Tómas Tryggvason (1907–1965),[1][2] var af þingeysku bændafólki kominn, fæddur á Halldórsstöðum í Bárðardal, alinn upp þar og síðar að Engidal á Mývatnsheiði austan dalsins. Fjölskylduhagir ollu því að skólaganga var stopul framan af en Tómas var námfús, lauk gagnfræðaprófi 1930 utanskóla frá Menntaskólanum á Akureyri og stúdentsprófi frá sama skóla 1933. Hugur hans stóð til þess að nema jarðfræði, með áherslu á bergfræði,[3] og um haustið sigldi hann utan og innritaðist í jarðfræðideild háskólans í Kaupmannahöfn. Þar þraukaði hann tvo vetur, þótti nám og kennslufyrirkomulag í háskólanum gamaldags og námskröfur óeðlilegar, að minnsta kosti í bergfræði; þó lauk hann cand. phil.-prófi í forspjallsvísindum vorið 1935, skundaði til Svíþjóðar og innritaðist í jarðfræðideild háskólans í Uppsölum þar sem var fyrir bergfræðiprófessorinn Helge G Backlund.

Þetta sumar og hið næsta var Tómas á Íslandi sem aðstoðarmaður við jarðfræðirannsóknir. Tildrög voru þau að sumrin 1935 og 36 voru tveir erlendir bergfræðiprófessorar, Helge G. Backlund (Uppsala) og Richard A. Sonder (Zürich) styrktir á vegum Lauge Koch[4] til jarðfræðiathugana hér á landi. Þeim til aðstoðar hafði verið bent á tvo jarðfræðinema í Kaupmannahöfn, Tómas Tryggvason og Guðmund Kjartansson.[5] Fyrra sumarið var Tómas við störf á Reykjanesskaga en síðara sumarið vann hann ásamt prófessor Backlund að athugunum á Þingvallasvæðinu, þeir rannsökuðu Skjaldbreið sjálfan og kortlögðu Skjaldbreiðarhraunin. Næstu árin vann Tómas úr gögnum sem safnað hafði verið 1936 og birtust niðurstöðurnar í ritgerðinni Das Skjaldbreið-Gebiet auf Island [6] og var verkefni hans til fil.lic.-prófs við háskólann í Uppsölum 1943.[7]

Tómas Tryggvason (1907-1965).

Tómas Tryggvason (1907-1965).

Sumarið 1938 kom hingað til lands hópur þýskra jarð- og jarðeðlisfræðinga frá Tækniháskólanum í Berlín undir forystu prófessors Oskars Niemczyk. Tilefnið var það að á 4. áratugi 20. aldar deildu jarðvísindamenn um eðli og orsakir jarðskorpuhreyfinga, um landrekskenningu Wegeners, myndun fellingafjalla og fleira. Meðal annars hafði einn leiðangursmanna, F. Bernauer, prófessor við tækniháskólann í Berlín, stungið upp á því að gliðnun yrði um gosbeltin á Íslandi og sprungusveima þeirra sem sýndir eru á jarðsprungukorti Þorvalds Thoroddsen frá 1905.[8] Til að prófa þessa hugmynd setti hinn þýski hópur upp þríhyrningamælinet milli Akureyrar og Grímsstaða, þvert yfir gosbeltið norðan við Kröflu, sem síðan skyldi mælt aftur á 10 ára fresti. Íslenskur leiðsögumaður þeirra og hjálparhella var Tómas Tryggvason. Stríðið setti strik í þessar áætlanir, Bretar jafnt sem Íslendingar grunuðu þýsku mælingamennina um græsku og eyðilögðu, eða jafnvel fluttu til, mælistöðvar þeirra. Löngu eftir stríð, árið 1965, tókst Tómasi að hjálpa Þjóðverjunum að staðsetja margar þeirra og endurtaka mælinguna – án þess þó að finna merkjanlega breytingu. Í ljósi síðari vitneskju hefði þess þó ekki verið að vænta: í Kröflueldum 1975-84 kom í ljós að öll gliðnun 250 ára frá Mývatnseldum 1724-29 hafði orðið „í einum rykk“ frá 1975 til 1984.

Íslandsferð þessari lýstu leiðangursmenn í bókinni Spalten auf Island (Stuttgart 1943). Í umsögn[9] um bókina í Náttúrufræðingnum 1947 getur Tómas helstu niðurstaðna rannsóknanna og í grein Björns Pálssonar[10] er leiðangurinn rakinn eftir dagbókum Tómasar sjálfs.

Í sambandi við fil-kand próf sitt (1940) í Uppsölum leysti Tómas af hendi tvö rannsóknarverkefni í bergfræði, annars vegar myndun (hörðnun) leirsteins í Eyrarfjalli í Önundarfirði, hins vegar að rekja til upphafs síns tvö dökkleit grettistök á ljósri granítströnd Upplands-héraðs.[11] Leirsteininn taldi hann hafa harðnað af „ýmsum leirmínerölum“ sem myndast hefðu við jarðhita eða efnaveðrun á tertíer[12] – þetta var fyrsta rannsókn Íslendings á leir en frekari slíkar rannsóknir urðu annars að bíða komu röntgentækis til landsins á 6. áratug 20. aldar. Grettistök notuðu Svíar til að rekja hreyfingu ísaldarjöklanna og Tómasi tókst að rekja grettistökin tvö til upphafs síns, annað þeirra (basalt) 300 km til staðar nyrst í Mið-Svíþjóð, hitt (andesít) 250 km til Dellen í Hälsingland.

Í tengslum við fil-kand próf sitt (1940) í Uppsölum rannaskaði Tómas meðal annars myndun leirsteins í Eyrarfjalli í Önundarfirði.

Tómas hafði hlotið góða þjálfun í bergfræðilegum rannsóknum í Uppsölum en að auki naut hann Alexander von Humboldt-styrks veturinn 1940–41 og dvaldist þá við bergfræðideild háskólans í Göttingen þar sem þá störfuðu leiðandi menn í berg- og jarðefnafræði. Bergfræðismásjáin hafði frá miðri 19. öld þróast í öflugt tæki til að greina kristalla í bergi, samsetningu þeirra og ljósfræðilega eiginlega, og í Göttingen höfðu margar nýjungar og endurbætur á tækjum og tækni verið gerðar. Tómas gerðist slyngur smásjármaður og þegar hann kom loks heim til Íslands að stríði loknu hafði hann með sér mjög fullkomna Leitz-smásjá.

Sumrin 1939-42 starfaði Tómas við ýmiss konar jarðfræðirannsóknir á vegum sænsku jarðfræðistofnunarinnar (Sveriges geologiska undersökning) og eftir að háskólanámi lauk með fil. lic.-prófi 1943 réðist hann til starfa hjá A/B Elektrisk Malmletning í Stokkhólmi til 1946 – þar starfaði hann einkum að málmleit í Svíþjóð og Finnlandi.

Þegar Tómas kom heim frá jarðfræðinámi og –störfum í Svíþjóð 1946 eftir að stríði lauk var hann fyrstur íslenskra jarðfræðinga sem sérstaklega hafði sérhæft sig í bergfræði auk þess að mega teljast fyrsti „hagræni jarðfræðingur“ (e. economic geologist) landsins. Í Svíþjóð hafði hann hlotið staðgóða undirstöðu í hagnýtri jarðfræði – meðal annars unnið í fjögur sumur að málmleit. Tómas var því vel búinn til að hefja starf sitt hér heima. Sama ár var hann ráðinn í nýstofnað starf jarðfræðings við iðnaðardeild Atvinnudeildar Háskóla Íslands[13] og við þá stofnun starfaði hann til æviloka, einkum að hagnýtum verkefnum eins og hann raunar var ráðinn til.

Í húsi Atvinnudeildar (sem nú heitir Setberg – hús kennslunnar) voru fyrir þegar Tómas bættist í hóp starfsmanna iðnaðardeildar, tveir náttúrufræðingar, Finnur Guðmundsson fuglafræðingur og Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur, sem þar höfðu fengið tímabundna rannsóknaraðstöðu; þegar ríkið keypti náttúrugripasafnið af Náttúrufræðifélaginu 1947 fluttust þeir Finnur og Sigurður þangað.

Eftir nám og störf í Svíþjóð var Tómas ráðinn í nýstofnað starf jarðfræðings við iðnaðardeild Atvinnudeildar Háskóla Íslands og við þá stofnun starfaði hann til æviloka, einkum að hagnýtum verkefnum. Hús Atvinnudeildarinnar heitir nú Setberg – hús kennslunnar.

Tómas hafði, sem fyrr sagði, með sér að utan forláta Leitz–bergfræðismásjá en tók nú til við að bæta eftir getu bóka- og tækjakost til jarð- og bergfræðirannsókna í Atvinnudeildarhúsinu, því hann bar jafnan í brjósti þá von að þar gæti vaxið öflug Jarðfræðistofnun Íslands líkt og hann hafði kynnst í Svíþjóð. Sú von virtist ætla að rætast um 1960 þegar nýdoktorarnir Guðmundur E. Sigvaldason og Þorleifur Einarsson, og síðar fleiri ungir jarðvísindamenn bættust í hópinn. En allt fór þetta á annan veg, Tómas féll frá 1965 og sama ár var Atvinnudeildinni breytt í fimm rannsóknastofnanir,[14] þær deildir sem verið höfðu í Atvinnudeildarhúsinu fluttust með tímanum í nýjar byggingar á Keldnaholti en jarðfræðingar iðnaðardeildar mynduðu nýja „stofu“ á Raunvísindastofnun Háskólans. Vísir að Jarðvísindastofnun Íslands varð hins vegar til á Orkustofnun.

Fyrsta verkefni Tómasar á Atvinnudeildinni var athugun á hráefnum til sementsframleiðslu á Vestfjörðum. Á þessum árum fékkst hann einnig við rannsóknir á borkjörnum í sambandi við jarðhitakönnun á Hengilssvæðinu. Árið 1947 varð hann jarðfræðilegur ráðunautur stjórnar Sogsvirkjunar við gerð orkuvers við Írafoss (vígð 1953) og síðar Steingrímsstöðvar (1959). Síðarnefnda virkjunin nýtir fallhæðina milli Þingvallavatns og Úlfljótsvatns með jarðgöngum gegnum Dráttarhlíð, hrygg sem að mestu er gerður úr lítt hörðnuðu móbergi. Við jarðfræðilegan undirbúning jarðgangagerðarinnar voru boraðar nokkrar kjarnaholur til að meta eiginleika og styrk bergsins. Af ástæðum sem síðar komu í ljós og skrifa mátti á reynsluleysi bormanna, gáfu boranirnar mjög villandi niðurstöður: að bergið væri álitlegt til jarðgangagerðar og lekt þess lítil. Við gerð ganganna kom svo í ljós að stæðni bergsins var slæm svo stórar fyllur hrundu úr þaki og veggjum auk þess sem vatnsagi varð til trafala. Tómas skrifaði nokkrar skilmerkilegar ritgerðir um jarðfræði Sogssvæðisins og reynslu sem fékkst við vinnslu bergs í neðanjarðarmannvirkjum.[15]

Þótt meginvinna Tómasar snerist um verðmæt jarðefni lifði jafnan bergfræðiáhugi hans; ritgerð hans um bergfræði gosefna í Heklugosinu 1947-48 birtist fáum mánuðum áður en hann lést.[16] Einnig vann hann að jarðfræðilegri könnun Hrappseyjar á Breiðafirði og nærliggjandi eyja – þar vekur mesta athygli hvíta gabbróið í Hrappsey. Bergtegund þessi, anorþósít, er gerð nær eingöngu úr Ca-ríku plagíóklas-feldspati (bytownít) og fremur fágæt á jörðu hér en, eins og síðar kom í ljós, þeim mun algengari á tunglinu. Þar myndar anorþósít um 80% fjallgarða (lat. montes) sem rísa yfir „höfin“ (lat. mares) og taldir eru vera leifar fyrstu skorpu tunglsins. Tómas féll frá áður en þessu verki yrði lokið. [17] Sama má segja um fyrirhugaða leir-rannsókn í Jökulfjörðum, en röntgentæki til leirmælinga hafði Guðmundur Sigvaldason fengið í húsið um 1960.

Á árunum 1955–57 þykktarmældi Tómas og kortlagði kísilþörungaeðjuna í Mývatni. Varð niðurstaðan sú að á botni vatnsins liggi einhver mesta kísilgúr-náma Evrópu, 5–10 m þykkt lag á 38 km2 svæði. Tildrög þessa máls voru þau að ýmsir náttúrufræðingar bentu á það að Mývatn grynnist svo hratt af völdum kísilþörunga að það muni fyllast og hverfa innan tíðar verði ekkert að gert. Tómas mældi og Baldur Líndal efnaverkfræðingur hugði að hagnýtingu eðjunnar. Kísilverksmiðja tók til starfa í Mývatnssveit 1966 og starfaði til 2004 þegar henni var lokað í nafni náttúruverndar – lífríkisins í og við vatnið – en upphafleg rannsókn og síðar nýting hafði verið til að bjarga vatninu sjálfu. Hér tókust á sjónarmið landnýtingar og landverndar.

Á árunum 1955–57 þykktarmældi Tómas og kortlagði kísilþörungaeðjuna í Mývatni.

Sumarið 1952 unnu þeir Tómas og Guðmundur Kjartansson að málmleit austur í Lóni þar sem koparríka bergmyndun er að finna við ána Össurá, nálægt jörðinni Svínhólum. Koparsteindirnar hafa fallið út úr söltum jarðhitavökva á tertíer tímabilinu; jarðmyndun þessi, þótt málmauðug sé, mun vera of smá til að borgi sig að nýta hana.[18]

Einn þáttur hagnýttra jarðfræðirannsókna er leit að byggingarefnum. Tómas var brautryðjandi á þessu sviði og hafði í huga bæði innlenda notkun og útflutning. Einkum hafði hann í huga könnun og nýtingu perlusteins (e. perlite) sem er glerjað eða hálfglerjað, vatnsríkt afbrigði af ríólíti sem þenst út (freyðir) við upphitun – verður að gjalli. Erlendis er perslusteini blandað í pússningu til einangrunar. Eftir leit víða um land virtust honum vænlegustu perlusteinsnámur vera í Prestahnúki á Kaldadal og í Loðmundarfirði.

Tómas má einnig teljast upphafsmaður skipulagðrar könnunar á magni og útbreiðslu steypusands og ofaníburðar hér á landi, og því skylt athugaði hann útbreiðslu og magn eldfjallavikurs og gjalls með útflutning í huga. Auk þess svipaðist hann um eftir innlendum bergtegundum sem nota mætti sem þekjustein innan- eða utanhúss í stað innflutts graníts og marmara. Að hans dómi voru hið hvíta anorþósít úr Hrappsey og flykruberg úr Berufirði einna best til þessara nota fallin.

Á árunum 1954–58 vann Tómas ásamt Jóni Jónssyni jarðfræðingi að gerð jarðfræðikorts af Reykjavík og nágrenni og upp úr 1960 með Þorleifi Einarssyni að frumathugun á jarðfræði ýmissa virkjunarstaða á vegum Raforkumálaskrifstofunnar.

Tómas féll fremur óvænt frá í fullu starfi haustið 1968, 58 ára gamall.

Tilvísanir:
  1. ^ Þorleifur Einarsson 1966. Tómas Tryggvason, jarðfræðingur – Minningarorð. Náttúrufræðingurinn 36,3, bls. 97–160. Greininni fylgir ritaskrá Tómasar. https://timarit.is/page/4269332
  2. ^ Björn Pálsson 2025. Tómas Tryggvason jarðfræðingur — Æska, nám og störf. Náttúrufræðingurinn 95. https://natturufraedingurinn.is/tomas-tryggvason-jardfraedingur/
  3. ^ Bergfræði fjallar um uppruna, efna- og steindasamsetningu, eðliseiginleika og dreifingu bergtegunda.
  4. ^ Sven Lauge Koch (1892-1964), danskur jarðfræðingur, kortagerðarmaður og heimskautakönnuður, þekktastur fyrir kortlagningu Norður-Grænlands og skipulagningu alþjóðlegra jarðfræðirannsókna á Grænlandi. Með þessu framlagi sínu til jarðfræðirannsókna á Íslandi – og Helgi Pjeturss taldi lofa góðu – vildi Koch leika sama leik og áður á Grænlandi (stofnun Grönlands geologiske undersögelse, GGU), með von um að leitt gæti til þess að Jarðfræðistofnun Íslands yrði sett á fót.
  5. ^ Á sama tíma var Norðmaðurinn Tom Barth við eldfjalla- og jarðhitarannsóknir á Íslandi á vegum Carnegie Institution í Washington. Guðmundur Kjartansson fylgdi ýmist Barth eða Sonders.
  6. ^ Tómas Tryggvason 1943. Das Skjaldbreið-Gebiet auf Island. Bull. Geol. Inst. Uppsala, 30, 273-320.
  7. ^ Allar þrjár prófritgerðir sínar við Uppsala-háskóla ritaði Tómas á þýsku sem tekið hafði við af latínu á 19. öld sem „alþjóðamál“ (lingua franca) vísinda, að minnsta kosti á meginlandi Evrópu, sennilega ekki síst vegna hins öfluga vísindastarfs Þjóðverja á öldinni. Heimsstyrjaldirnar tvær á 20. öld feldu þýskuna af stalli og enska tók yfir.
  8. ^ Þorvaldur Thoroddsen 1905. Die Bruchlinien Islands und ihre Beziehung zu den Vulkanen. Petermanns Mitt. 1905, S 49–53.
  9. ^ Tómas Tryggvason 1947. Bókarfregn. Oskar Niemczyk. Spalten auf Island. Náttúrufræðingurinn 17, 29-34.
  10. ^ Björn Pálsson 2025. Tómas Tryggvason jarðfræðingur — Æska, nám og störf. Náttúrufræðingurinn 95. https://natturufraedingurinn.is/tomas-tryggvason-jardfraedingur/
  11. ^ Tómas Tryggvason 1940. Zwei erratische Blöcke von der Küste Upplands. Bull. Geol. Inst. Uppsala, 28, 123-132.
  12. ^ Tómas Tryggvason 1940. Über ein Tongestein aus Island. Bull. Geol. Inst. Uppsala, 28, 175-190.
  13. ^ Atvinnudeildin (1935–65) var stofnuð til að sinna hagnýtum rannsóknum í þágu atvinnuvega þjóðarinnar. Hún skiptist í fiski-, búnaðar- og iðnðardeild sem einbeitti sér að tæknilegum rannsóknum, efnagreiningum og stuðningi við iðnað og opinberar framkvæmdir. Árið 1937 fluttust búnaðar- og iðnaðardeild í sérbyggt rannsóknahús, hið fyrsta slíkrar tegundar á háskólasvæðinu, en fiskideild, forgengill Hafró, fór annað. Atvinnudeild skipar stóran sess í sögu íslenskra vísinda en varð aldrei eiginlegur hluti af hinu hefðbundna háskólastarfi þar sem engin kennsla fór þar fram fyrir utan efnafræðiæfingar læknanema og síðar verkfræðinema.
  14. ^ Hafrannsóknastofnun, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, landbúnaðarins, iðnaðarinns og byggingaiðnaðarins.
  15. ^ Tómas Tryggvason 1957. The Rock Series at Írafoss. Water Power. Janúar, s.13-19.
  16. ^ Tómas Tryggvason 1965. Petrographic studies on the eruption products of Hekla 1947-48. The Eruption of Hekla 1947. IV, 6, 1-13.
  17. ^ Hrappseyjar-anorþósítið varð síðar efni cand. real-prófritgerðar (1970) Hrefnu Kristmannsdóttur við háskólann í Osló: https://doi.org/10.1086/627702
  18. ^ Ásgeir Einarsson 2008. Vökvabólu-hitamælingar og steindamælingar í rhýólít-brotabergi við Össurá í Lóni. BS-ritgerð, HÍ.

Myndir:

Höfundur

Sigurður Steinþórsson

prófessor emeritus

Útgáfudagur

29.9.2026

Spyrjandi

Ritstjórn

Tilvísun

Sigurður Steinþórsson. „Hver var Tómas Tryggvason og hvert var framlag hans til jarðvísinda?“ Vísindavefurinn, 29. september 2026, sótt 29. september 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=89729.

Sigurður Steinþórsson. (2026, 29. september). Hver var Tómas Tryggvason og hvert var framlag hans til jarðvísinda? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=89729

Sigurður Steinþórsson. „Hver var Tómas Tryggvason og hvert var framlag hans til jarðvísinda?“ Vísindavefurinn. 29. sep. 2026. Vefsíða. 29. sep. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=89729>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...