Sólin Sólin Rís 08:30 • sest 17:54 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 17:34 • Sest 23:28 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 12:36 • Síðdegis: 25:26 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 05:54 • Síðdegis: 19:17 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvað er vitað um forsögulega ljónið sem lifði í Norður-Ameríku á ísöld?

Jón Már Halldórsson og Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir

Á ísöld lifðu stór ljón beggja vegna þess svæðis sem nú er Beringssund. Í Alaska og Yukon lifði hellaljónið (Panthera spelaea), sem einnig var útbreitt um Evrasíu, en sunnar í Norður-Ameríku lifði ameríska ljónið (Panthera atrox) sem var sérstök tegund en þó náskyld hinni. Forfeður þessara ljóna fóru yfir landbrúna milli Evrasíu og Norður-Ameríku fyrir meira en 100 þúsund árum. Erfðarannsóknir benda til þess að ljón hafi farið oftar en einu sinni þessa leið og að þar hafi með tímanum orðið til aðskildir stofnar hellaljóna og amerískra ljóna.

Ameríska ljónið hafði mikla útbreiðslu. Leifar þess hafa fundist frá sunnanverðu Kanada suður til Mexíkó og víða um vestur- og miðhluta Bandaríkjanna. Margt bendir til að það hafi einkum haldið til í opnu eða hálfopnu landslagi, svo sem á gresjum og graslendi.

Einn mikilvægasti fundarstaður beinaleifa amerískra ljónsins er tjörupytturinn La Brea í Los Angeles.

Einn mikilvægasti fundarstaður beinaleifa amerískra ljónsins er tjörupytturinn La Brea í Los Angeles en þar hafa fundist bein úr um 80 einstaklingum. Leifarnar hafa leitt í ljós að ameríska ljónið var eitt stærsta kattardýr síns tíma, töluvert stærra en núlifandi ljón og að jafnaði talið stærra en sverðkötturinn (Smilodon fatalis). Það var háfætt og kraftmikið með sterkbyggð útlimabein, líkamsgerð sem hefur að líkindum gert því kleift að ráða við stóra bráð.

Beinaleifar segja hins vegar ekkert um marga aðra þætti í útliti ljónanna. Til dæmis er ekki vitað hvort karldýrin báru áberandi makka eins og afrísk ljón nú á dögum. Makki asískra ljóna, sem nú lifa aðeins á Indlandi, er að jafnaði gisnari en hjá afrískum ljónum. Hellaljón, nánustu útdauðu ættingjar ameríska ljónsins, eru auk þess gjarnan sýnd án áberandi makka á evrópskum hellamyndum. Þetta hefur leitt til þeirrar hugmyndar að ameríska ljónið hafi einnig haft lítinn makka eða engan, en bein sönnun fyrir því liggur ekki fyrir.

Eins og með önnur löngu útdauð dýr veit enginn nákvæmlega hvernig ameríska ljónið (<em>Panthera atrox</em>) leit út en hér er ein tilgáta.

Eins og með önnur löngu útdauð dýr veit enginn nákvæmlega hvernig ameríska ljónið (Panthera atrox) leit út en hér er ein tilgáta.

Ekki er vitað hvort amerísk ljón lifðu og veiddu í hópum eins og núlifandi ljón. Sum einkenni þeirra hafa verið túlkuð sem vísbending um félagslíf en önnur gögn hafa verið talin benda til þess að þau hafi verið einfarar líkt og tígrisdýr.

Ameríska ljónið dó út undir lok ísaldar fyrir 12-13 þúsund árum, rétt eins og mörg önnur stór spendýr í Norður-Ameríku. Vísindamenn hafa lengi deilt um hvað olli þessum mikla útdauða. Miklar og hraðar loftslagsbreytingar áttu sér stað á þessum tíma og þeim fylgdu breytingar á gróðurfari og búsvæðum. Jafnframt fjölgaði mönnum í álfunni og áhrif þeirra á vistkerfin jukust. Loftslags- og gróðurbreytingar, fækkun stórra grasbíta sem rándýrin lifðu á og veiðiálag eða önnur áhrif manna hafa öll verið nefnd sem mögulegir áhrifaþættir. Líklegt er að samspil fleiri en eins þáttar hafi átt þátt í útdauðanum.

Heimildir og myndir:

Upprunalega spurningin hljóðaði svona:

Hvað getið þið sagt mér um forsögulegu ljónin sem lifðu í Norður-Ameríku á ísöld?

Höfundar

Jón Már Halldórsson

líffræðingur

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir

landfræðingur og starfsmaður Vísindavefsins

Útgáfudagur

19.10.2026

Spyrjandi

Sigtryggur Einar Sævarsson

Tilvísun

Jón Már Halldórsson og Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir. „Hvað er vitað um forsögulega ljónið sem lifði í Norður-Ameríku á ísöld?“ Vísindavefurinn, 19. október 2026, sótt 19. október 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=88348.

Jón Már Halldórsson og Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir. (2026, 19. október). Hvað er vitað um forsögulega ljónið sem lifði í Norður-Ameríku á ísöld? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=88348

Jón Már Halldórsson og Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir. „Hvað er vitað um forsögulega ljónið sem lifði í Norður-Ameríku á ísöld?“ Vísindavefurinn. 19. okt. 2026. Vefsíða. 19. okt. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=88348>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...