Leit á vefnum
Niðurstöður leitar - 8124 svör fundust
Hvenær er logn á Íslandi?
Logn er þegar enginn vindur er. Það getur komið logn á öllum árstímum og tímum dags, en er algengast að næturlagi á sumrin og endurspeglast það í orðum á borð við „morgunstillu“ og „kvöldkyrrð“. Almennt er logn algengara inn til landsins en úti við sjóinn og á það rætur að rekja til þess að sjórinn veitir vindi...
Er Svartfugl eftir Gunnar Gunnarsson fyrsta íslenska glæpasagan?
Í ársbyrjun 1930 gerði danska tímaritið Ekko könnun meðal helstu gagnrýnenda landsins um það hvaða skáldsaga hefði staðið upp úr í útgáfu liðins árs. Niðurstaðan var afgerandi: Svartfugl eftir Gunnar Gunnarsson (1889-1975). Þetta kemur nútímalesendum kannski á óvart en það er óhætt að fullyrða að þetta voru ekki ó...
Hver var Gunnar sem majónesið er kennt við?
Gunnar sem Gunnars-majónes er kennt við, hét fullu nafni Gunnar Jónsson. Hann fæddist í Reykjavík 3. september 1920 og lést 6. júlí 1998. Gunnar var búfræðingur að mennt og lauk síðan prófi í viðskipta- og hagfræði frá háskólanum í Minneapolis í Bandaríkjunum. Eftir búfræðinámið á Hvanneyri rak hann meðal annars e...
Af hverju myndast froða þegar kóki er hellt í glas?
Stutta svarið Froða sem myndast í skamma stund þegar kóki eða öðru gosi er hellt í glas er einfaldlega aragrúi koltvíoxíðsameinda sem rísa hratt upp og lyfta efsta lagi gosdrykkjarins svo froða myndast við yfirborð vökvans. Lengra svar Það sem kallast kolsýra í daglegu tali er lofttegundin koltvíoxíð sem ...
Geta tæki sem framleiða hátíðnihljóð fælt flugur eins og lúsmý?
Öll spurningin hljóðaði svona: Góðan daginn. Ég tek eftir því að fyrirtæki eru að auglýsa tæki sem framkalla hátíðnihljóð sem eiga að fæla m.a. lúsmý frá mannabústöðum. Er vísindalega sannað að slíkt virki? Stutta svarið við spurningunni er nei. Lúsmý, moskítóflugur og aðrar mýflugur (Diptera: Nematocera...
Er einhver byggð á Baffinslandi?
Baffinsland liggur á milli meginlands Kanada og Grænlands. Baffinsland er stærsta eyja Kanada, 507.471 km2 að flatarmáli, eða tæplega fimm sinnum stærri en Ísland. Eyjan er nefnd eftir breska landkönnuðinum William Baffin (1584-1622) sem kannaði meðal annars hafsvæðið vestur af Grænlandi í leit að norðvesturleiðin...
Hvenær fannst ljóshraðinn?
Einfalda svarið við spurningunni er þetta: Það gerðist árið 1676, þegar danski stjörnufræðingurinn Ole Rømer (1644-1710) sýndi fram á að ljóshraðinn væri endanlegur. Áður hafði verið talið að hraði ljóssins væri óendanlega mikill.[1] Það hefði þýtt að ljós sæist alls staðar að um leið og það væri kveikt. Rømer ...
Hvernig myndast hjólför á vegum og hefur hlýnandi loftslag áhrif á þetta?
Upprunalegu spurningarnar voru:Hvers vegna eru göturnar með svona djúpum hjólförum í vetur? Hefur þetta eitthvað að gera með hlýnun jarðar, minna frost á veturna? Hjólför myndast í vegum og götum af tveimur ástæðum, annars vegar vegna áraunar þungra öxla og hins vegar vegna nagladekkjaslits minni bíla. Á h...
Hversu mikið bráðnar Vatnajökull árlega?
Afkoma þriggja stærstu jökla landsins er nú mæld árlega með stikumælingum, en um þær er fjallað nánar í svari við spurningunni Hvaða aðferðir nota vísindamenn til að mæla afkomu jökla? Það er gert í afkomuferðum sem farnar eru að vori og hausti. Mælingar hófust á Hofsjökli jökulárið 1987-88, á Vatnajökli 1991-92 o...
Hvað merkir skírdagur?
Fimmtudagur fyrir páska nefnist skírdagur. Orðið 'skír' merkir 'hreinn, óblandaður; skær, bjartur; saklaus' og vísar nafnið þannig til þess að Jesús þvoði fætur lærisveina sinna. Sögnin skíra merkir að hreinsa og hin upphaflega merking þess að barn sé skírt er þess vegna hreinsun. Í Sögu daganna eftir Árna Björ...
Hver fann fyrstur risaeðlubein?
Steingerð risaeðlubein hafa fylgt manninum frá upphafi. Risaeðlur dóu út fyrir um 65 milljónum ára og talið er að sameiginlegur forfaðir manns og apa hafi komið fram fyrir um 5-6 milljónum ára. Vitað er að á forsögulegum tíma nýttu menn sér steingervinga til skraut- og listmunagerðar. Elsta lýsing á risaeðlubeini ...
Hver var Comenius? Hvað gerði hann sögulegt?
John Amos Comenius, eða Jan Ámos Komenský eins og hann heitir á tékknesku, fæddist 28. mars 1592 í bænum Nivnice í Móravíu, sem tilheyrir nú Tékklandi en heyrði undir veldi Habsborgara á þeim tíma. Hann var þekktur trúarleiðtogi mótmælenda, en er frægastur fyrir að hafa bylt uppeldisfræðum samtímans og komið fram ...
Hvað var Píningsdómur?
Píningsdómur er kenndur við Diðrik Píning sem var höfuðsmaður Danakonungs á Íslandi frá 1478 til 1491. Diðrik var þýskur flotaforingi. Snemma árs 1490 gerði Hans Danakonungur (1455-1513) samning við Englendinga þar sem réttur þeirra síðarnefndu til að stunda fiskveiðar og verslun á Íslandi er viðurkenndur. Engl...
Hvað er asbest og af hverju er það hættulegt heilsu manna?
Asbest er samheiti yfir nokkrar steintegundir sem allar eiga það sameiginlegt að mynda þráðkennda kristalla (sjá mynd). Þessir kristallar eru oft mjög fíngerðir, ekki ósvipaðir englahárinu sem sumir nota til að skreyta jólatrén sín. Asbestþræðir eru til margra hluta nytsamlegir, til dæmis sem hljóð- eða hitaei...
Hvernig er snæugla flokkuð frá ríki til tegundar?
Snæuglan (Bubo scandiacus) er ugla norðurhjarans og vel aðlöguð að óblíðri náttúru túndrunnar allt umhverfis Norður-Íshafið. Hún er stór og þrekvaxin, 53-66 cm löng, rúmlega 2 kg og vænghaf hennar er allt að 170 cm. Snæuglan er hvít að lit með brúnum skellum en brúni liturinn er meira áberandi hjá kvenfuglinum. Kv...