Í metrakerfinu eru notuð sérstök forskeyti til að tákna á einfaldan hátt ýmis veldi af tölunni 10, það er að segja tölur sem fást með því að margfalda töluna 10 með sjálfri sér eða deila með slíkum margfeldum. Þetta tengist því að talan 10 er grunntala talnakerfisins sem við notum. Veldin eða margfeldin eru ýmist ...
Upprunalega hljóðaði spurningin svona:Er „hjá-“ í orðum eins og hjátrú og hjárænulegur skylt orðinu „hjá“ í merkingunni „nálægt“ eða í merkingunni „á vegum“?Hjá- í hjátrú og hjárænulegur er forsetningin hjá notuð sem forskeyti. Það er notað um það sem er við hliðina á grunnorðinu og fær stundum andstæða merkingu. ...
Spurningarnar í fullri lengd hljóðuðu svona:
Af hverju segir maður „ólifað“, til dæmis hún á skammt eftir ólifað? Af hverju er þetta neikvæða forskeyti sett fyrir framan? Ólifað bendir frekar til þess að einstaklingur sé látinn en til þess tíma sem hann á eftir á lífi. Af hverju er alltaf sagt „ólifað“, t....
Orðtakið bera beinin í merkingunni ‘deyja, ljúka lífi sínu’ er þekkt í fornu máli og hefur lifað allt fram á þennan dag. Af dæmum úr fornum textum er augljóst að um sterku sögnina bera er að ræða (bera – bar – bárum – borið).
Í bókinni Íslenzkt orðtakasafn (1968:52) getur Halldór Halldórsson sér þess til að sö...
Eins og fram kemur í svari okkar við spurningunni Hver eru heiti allra eininga metrakerfisins? Hvað ræður nafngiftinni? þá er einn milljarður nanómetra í einum metra. Í þessu sama svari er tafla sem sýnir hvað forskeyti metrakerfisins merkja.
Í svari Viðars Guðmundssonar við spurningunni Hvað er nanótækni? kemu...
Orðið úrskeiðis er atviksorð sett saman af forskeytinu úr-, nafnorðinu skeið 'tiltekin vegalengd, (ákveðin) tímalengd , hlaup, kapphlaup' og viðskeytinu -is.
Hér hafa kappreiðar farið úrskeiðis og nokkrir hestar og knapar fallið á brautinni.
Orðið úrskeiðis merkir 'aflaga, úr lagi'. Atviksorð mynduð á þennan há...
Hér er einnig svarað spurningu Berglindar Guðmundsdóttur: Hvaða eitt orð getur maður notað yfir það að vera ekki þyrstur?Eftir því sem best er vitað er ekki notað í íslensku andheiti orðsins þyrstur. Þyrstur er til dæmis ekki flettiorð í Íslenskri samheitaorðabók sem birtir andheiti séu þau kunn.
Vissulega er ...
Heiti gríska bókstafsins µ er borið fram 'my'. Þegar stafurinn er notaður í heitum eininga táknar hann forskeytið 'míkró-'. Þannig er 'µm' lesið sem 'míkrómetri' (stundum raunar sem 'míkron') og 'µA' er 'míkróamper'. Forskeytið táknar einn milljónasta hluta á sama hátt og 'millí-' táknar einn þúsundasta og 'kíló-'...
Öll spurningin hljóðaði svona:
LEYFI -- Hvaðan kemur þetta orð? Ég væri þakklát fyrir einhverja upplýsingu - fyrirfram þakkir - Vera Heimann í Hamburg/Þýskalandi.
Nafnorðið leyfi er dregið af sögninni leyfa ‘gefa leyfi til, heimila einhverjum eitthvað’. Í Íslenskri orðsifjabók (1989:559) er bent á skyldleik...
Spurning í heild hljóðaði svona:
Góðan dag. Hver er uppruni orðsins strákur (et.), strákar (ft.)? Er orðið á einhvern tengt skandinavíska (norska bm/nn) orðinu kar sem í nútímamerkingu þýðir drengur eða unglingspiltur? Er orðið kar t.d. komið frá fornnorrænu af orðinu karl?
Nánara væri áhugavert að heyra hvaða...
Lýsingarorðið óhultur merkir ‘öruggur, sá sem ekki er í hættu’ og eru elstu dæmi um það í söfnum Orðabókar Háskólans frá því á 18. öld í orðabókarhandriti Jóns Ólafssonar úr Grunnavík. Sama er að segja um lýsingarorðið hultur sem notað er í sömu merkingu. Aðeins óhultur er notað í latnesk-íslenskri orðabók Jóns Ár...
Nöfn sem notuð eru í grannlöndum og hefjast á Zim- eru af fleiri en einum uppruna. Sum þeirra eru háþýsk, t.d. Zimmer, Zimmerle, Zimmerling, Zimmermann. Þar liggur að baki fornháþýskt orð, zimbar 'smíðaefni, hús, hýbýli', sem samsvarar íslenska orðinu timbur.
Önnur eru af slavneskum uppruna eins og til dæmis Z...
Yotta er síðasta forskeytið í alþjóðlega einingakerfinu og ekkert kemur þess vegna á eftir því.
Yotta er dregið af gríska orðinu októ sem táknar átta, samanber mánuðinn október sem var einu sinni áttundi mánuður ársins eins og hægt er að lesa um í svari við spurningunni Af hverju lét Júlíus Sesar árið byrja á j...
Orðið misindi 'hættulegur, slæmur eiginleiki' er sett saman úr tveimur liðum, forskeytinu mis- og viðliðnum –indi. Það er oft fyrri liður samsettra orða sem tákna eitthvað neikvætt eins og misindismaður, misindisfólk, misindislýður, misindishátterni sem öll vísa til ills innrætis. Forskeytið mis- er stendur með na...
Lýsingarorðið bísperrtur 'sperrtur, keikur, státinn, hress' er fengið að láni úr dönsku á 19. öld, bespærret 'spenntur aftur'. Í dönsku er orðið myndað með forskeytinu be-, sem fengið er að láni úr lágþýsku eða háþýsku, og sögninni spærre 'spenna, loka', eiginlega 'spenntur aftur'.
Í eldri íslensku barst forsk...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!