Fossvogsdalur er dalurinn inn af Fossvogi, en vogurinn er kenndur við foss sem var í Fossvogslæknum þar sem hann rennur í sjó. Lækurinn hefur aðrennsli úr Faxakeldu og lægðum Fossvogs og rennur til sjávar sunnan við Votaberg. Fossinn hét Hangandi, en er nú horfinn því “tímans tönn hefur unnið á mjúku móberginu sem...
Hæsti foss í heimi er í Venesúela og á íslensku gætum við nefnt hann Englafoss. Hann er 979 m hár.
Á spænsku kallast hann Salto Ángel en á ensku Angel Falls. Hann er nefndur eftir Bandaríkjamanninum James Angel sem brotlenti flugvél sinni nálægt fossinum árið 1937.
Vegna þess hve skógurinn er þéttur nálægt...
Hér á eftir er tafla um 10 hæstu fossa í heimi samkvæmt upplýsingavefnum www.infoplease.com:
Foss
Staður
Á
Hæð í metrum
Angel
Venesúela
Þverá Caroni
1000
Tugela
Natal, Suður Afríku
Tugela
914
...
Fjallið Hvítserkur (Röndólfur).
Merking orðsins hvítserkur er ‘hvítur kyrtill (ermalaus eða ermastuttur)’. Hvítserkur sem örnefni er notað um eitthvað sem líkist slíku fati. Þannig heita eftirfarandi náttúrufyrirbæri Hvítserkur: Foss í Fitjaá í Skorradal í Borgarfirði (Annálar 1400-1800. Reykjavík 1940. IV:96...
Vatnsmesti foss Evrópu telst vera Rheinfalle í Sviss og hvorki Dettifoss né aðrir fossar á Íslandi komast nærri honum í vatnsmagni. Dettifoss er aflmesti foss Íslands en sá vatnsmesti er Urriðafoss.
Vatnsmesta á landsins er hins vegar Ölfusá. Á heimasíðu Orkustofnunar er hægt að skoða niðurstöður vatnamælinga á...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona: Svartfoss er foss í Kollafirði á Ströndum. Hvað eru margir fossar á landinu með þetta nafn?Svartfoss er skammt frá Felli í Kollafirði í Strandasýslu. Hann sést langt að og notuðu sjófarendur hann fyrir mið (Þorsteinn Jósepsson og Steindór Steindórsson: Landið þitt Ísland I...
Hér er væntanlega ekki verið að spyrja um þéttbýliskjarnann Selfoss því varla efast nokkur um tilvist hans, heldur frekar hvort á landinu sé eitthvert vatnsfall sem ber þetta heiti.
Svarið við þeirri spurningu, og öðrum sem snúa að því hvort tiltekin örnefni eru til og hvar þau er þá að finna, má nálgast með þv...
Orðið kaupstaður í íslensku er skilgreint með lögum. Til dæmis er oft talað um að tiltekinn þéttbýliskjarni hafi fengið kaupstaðarréttindi á tilteknum tíma. Þannig er hægt að telja upp kaupstaðina í landinu og líklegt að slíka upptalningu sé að finna á veraldarvefnum. Að þessu leyti er þetta orð miklu betur afmark...
Örnefnið Glanni er að minnsta kosti á tveimur stöðum á Vesturlandi, annars vegar foss í Norðurá í Mýrasýslu, suður undan Hreðavatni. Hann hét áður Glennrar (máldagi 1306) eða Glennunarfoss (1397) (Íslenskt fornbréfasafn IV:122; Glunnrarfoss í nafnaskrá). Í sóknarlýsingu eftir sr. Jón Magnússon frá 1840 er talað um...
Fossinn heitir Dynjandi og dregur nafn af hljóði sínu. Nöfn á fossum og ám eru oft mynduð með –andi, samanber Rjúkandi, Mígandi.
Nafnið Fjallfoss á fossinum er rangnefni, en sagt er um bæinn Dynjanda í sóknarlýsingu Rafnseyrarkirkjusóknar 1839 eftir sr. Sigurð Jónsson, að hann taki „nafn af stórum fjallfossi á...
Fossar verða þar sem þrep eru í farvegi árinnar, misstór og stundum fleiri en eitt, til dæmis tvö í Gullfossi. Vatnið í öllum ám er regnvatn sem safnast hefur í árfarveginn með ýmsum hætti, með lækjum (dragár), úr uppsprettum eða stöðuvötnum (lindár), úr jökulbráð (jökulár).
Á einhverjum tímapunkti féll allt það...
„Gunnarshólmi“ er ljóð eftir Jónas Hallgrímsson (1807-1845). Ljóðið birtist fyrst í Fjölni árið 1838. Þriðja þríhenda ljóðsins er svona:
Beljandi foss við hamrabúann hjalar
á hengiflugi undir jökulrótum,
þar sem að gullið geyma Frosti og Fjalar.
Frosti og Fjalar eru dvergar sem koma fyrir í svokölluðu dvergata...
Örnefnið Goðafoss er að minnsta kosti til í 6 ám á landinu:Fyrst er að nefna Goðafoss í Hallardalsá í landi Klúku í Kaldrananeshreppi í Strandasýslu.
Í Goðdalsá í Kaldrananeshreppi í Strandasýslu. Í örnefnaskrá er talað um að Goði sem fossinn sé kenndur við sé heygður í Goða í túninu í Goðdal.
Í Hofsá í Svarfaða...
Ein af grundvallarstaðreyndum þróunarfræðinnar er að allt líf á jörðinni er einstofna. Af því leiðir að gíraffinn (Giraffa camelopardalis) er skyldur öllum lífverum jarðar! En nóg um það því spyrjandi vill eflaust vita hvaða núlifandi tegundir dýra eru skyldari gíraffanum en aðrar.
Til að svara því er rétt að ...
Upprunalega hljóðaði spurningin svona:Er það ólöglegt að neita fólki um vatn að drekka? Ég hef heyrt að það sé ólöglegt samkvæmt Grágás eða Jónsbók og að þau lög séu ennþá í gildi.
Grágás er lagasafn frá þjóðveldistímanum og Jónsbók var önnur tveggja lögbóka sem Magnús lagabætir lét gera fyrir Ísland og var hú...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!