Í þessu svari er miðað við að mörkin á milli Norður- og Suður-Ameríku liggi um Panamaeiðið en stundum eru notuð önnur viðmið eins og greint er frá í öðrum svörum á Vísindavefnum, til dæmis við spurningunni Í hvaða heimsálfu er Mexíkó, Norður- eða Suður-Ameríku? Í norðri nær Norður-Ameríka að heimskautaströndum Al...
Hægt er að skilgreina stærð jarðskjálfta á ýmsan veg og hafa margir stærðarkvarðar verið notaðir til að ákvarða hana. Til eru kvarðar sem nota útslagsstærð (ML) en það er hin upphaflega stærð jarðskjálfta samkvæmt skilgreiningu Richters, rúmbylgjustærð (mb), yfirborðsbylgjustærð (Ms), varandastærð (M$\tau$) og væg...
Spurningin í fullri lengd hljóðaði svona:
Nú segja Íslendingar sæng og dýna meðan Danir segja seng og dyne (seng þýðir þá rúm) og dyne þýðir sæng. Það hefur mikið verið rætt á okkar heimili sem er íslenskt og danskt, hvort sé upprunalega rétt. Það er hvort rugluðumst við Íslendingar eða Danir á merkingu eða ...
Upprunalega spurningin hljóðaði svo:Hvernig var lífið hjá sveitafólki og þrælum á Íslandi í gamla daga?
Einfalda svarið er auðvitað: ömurlegt. Í húsum var í besta lagi hálfdimmt – ekkert rafmagn – og oft kalt – engin hitaveita. Hvorki voru vatnssalerni né böð í húsum fólks og koppar undir rúmum svo að stundum h...
Málun þaka í sterkum lit á húsum hér á landi tengist án vafa almennri notkun bárujárns sem þakefnis. Galvanhúðað, bárótt þakjárn (bárujárn) var fyrst sett á húsþök í Reykjavík á árunum 1874-76. Notkun þess sem klæðningar á þök og veggi timburhúsa varð þó ekki almenn fyrr en eftir 1880.
Þessu annars hentuga þak...
Upphaflega spurningin hljóðaði svo:Hvar fundust handritin? Handritin að Íslendingasögunum?
Talið er að íslensk handrit og brot úr handritum séu allt að 20.000. Þar af eru tæplega 1.400 handrit frá miðöldum, það er skrifuð um eða fyrir miðja 16. öld. Handrit og brot úr handritum frá miðöldum á norrænu eru um 860...
Hér er svarað eftirfarandi spurningum:
Hvað kostar að hafa kveikt á 60 W ljósaperu í einn mánuð? (Árni Björn)
Hvað kostar að láta 40 W ljósaperu loga í 4 klukkustundir? Hvaða verð er ég að borga á mínu heimili? (Eva)
Hversu mikið kostar að láta 40 W ljósaperu loga í einn sólarhring? (Sverrir Páll)
Hjá Orku n...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Óeðlilegar útfellingar prótína í heilanum er talið orsök Alzheimers. Verið er að þróa nýtt lyf, Aducanumab. Spurning mín er; á hvaða stigi eru þróun lyfsins, og/eða væntingar til þess?
Í Alzheimers-sjúkdómi falla út óeðlileg prótín á milli taugafrumna, svokallað amyloid, og eru...
Íslenska orðið innviðir er þýðing á enska orðinu infrastructure. Í Hagfræðiorðasafninu (Rit íslenskrar málnefndar 12, 2000, bls 98) eru gefnar tvenns konar skilgreiningar. Annars vegar eru innviðir sagðir „Grundvallarskipulag kerfis, stofnunar o.þ.h.“ og hins vegar „Atvinnu- og þjónustumannvirki sem mynda undirs...
Frá örófi alda hafa menn notað ýmis tæki til að mæla tímann, til dæmis sólsprota, vatnsklukkur og stundaglös. Á nýöld komu svonefndar pendúlklukkur til sögunnar, en í þeim telur klukkan sveiflur pendúls. Þessar klukkur voru ekki mjög meðfærilegar og hin eiginlegu úr urðu fyrst til þegar fjöður og sveifluhjól komu ...
Orðið norðurljós kemur fyrst fyrir í hinni norsku Konungs skuggsjá sem var skrifuð á bilinu 1250–60, en að auki er þar talað um „svipandi loga“, „eld“ og „geisla“:
En sá hlutur er þú hefir oft eftir spurt, hvað vera mun það er Grænlendingar kalla norðurljós ... En þessi verður natúra og skipan á norðurljósi, að...
Á heimasíðu Landmælinga Íslands er að finna eftirfarandi lista yfir dýpstu stöðuvötn landsins:
1.Jökulsárlón, Breiðamerkursandi260m
2.Öskjuvatn220m
3.Hvalvatn160m
4.Þingvallavatn114 m
5.Þórisvatn113m
6.Lögurinn112m
7.Kleifarvatn97m
8.Hvítárvatn84m
9.Langisjór75m
Stöðuvötn eru vatnsfylltar dældir ...
Að undanförnu hefur borið mikið á ýmiss konar heimsendaspám sem allar eiga það sameiginlegt að spá fyrir um endalok heimsins árið 2012. Nákvæmlega hvernig heimurinn mun farast og af hvaða ástæðum fer svo nokkuð eftir spánni hverju sinni. Í sumum spám kemur fram að heimsendir verði vegna kjarnorkustríðs; í öðrum er...
Borgin Volgograd bar áður nafnið Stalíngrad í nokkra áratugi og er aðallega fræg fyrir hina miklu orrustu sem var þar háð í seinni heimstyrjöldinni. Borgin verður eflaust ofarlega í huga þeirra sem fylgjast með heimsmeistaramótinu í knattspyrnu sumarið 2018 því þar keppir íslenska landsliðið eins og hægt er að les...
Hér er einnig svarað spurningunni Hvernig fer máltaka fram?Fólk gerir sér yfirleitt ekki grein fyrir hversu ótrúlegt afrek máltaka barna er. Mannlegt mál er mjög flókið kerfi tákna og reglna en samt ná ósjálfbjarga börn valdi á móðurmáli sínu á undraskömmum tíma. Flest börn eru orðin altalandi um 4-6 ára aldur og ...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!