Vísindamenn telja að alheimurinn hafi orðið til í Miklahvelli. Edwin Hubble komst að því á 3. áratug síðustu aldar að heimurinn væri að þenjast út en hann tók eftir því að ljósið sem barst frá fjarlægum vetrarbrautum virtist fjarlægjast okkur. En ef alheimurinn er að þenjast út er ljóst að efnið í heiminum hefur á...
Pétur Henry Petersen er dósent í taugavísindum við Læknadeild Háskóla Íslands.
Taugakerfið skilgreinir okkur og sjúkdómar er tengjast því hafa áhrif á alla. Sérstaklega á það við eftir því sem við eldumst. Pétur hefur fengist við rannsóknir á tilurð, starfsemi og sjúkdómum taugakerfisins. Rannsóknir á starfsemi...
Sýklar eru meðhöndlaðir með margskonar lyfjum en stundum verða þeir þolnir. Einnig er talað um lyfjaónæma stofna baktería. Orsökin fyrir tilurð þeirra er sú að sýklalyf eru sterkur valkraftur, sem leiðir til breytinga á stofni sýklanna. Hér er að verki náttúrulegt val, sem Charles Darwin og Alfred Wallace uppgötvu...
Nafnið Demogorgon er ekki komið frá Forngrikkjum heldur virðist það fyrst hafa verið notað snemma á miðöldum (um 450) um undirheimaguð.
Í sumum heimildum er talið að orðið hafi einfaldlega verið misritun á orðinu demiurgos sem merkti 'handverksmaður' og síðar 'skapari'. Í heimspeki Platons er demiurgos haft yf...
Landnám Íslands var síðasti áfangi í útbreiðslu mannsins í Evrópu. Ríkar heimildir eru til um þetta landnám, og það má segja að meira sé vitað um tilurð íslensku þjóðarinnar en um tilurð nokkurrar annarrar þjóðar í Evrópu (og jafnvel í heiminum).
Almennt er talið að landnám hafi átt sér stað á tímabilinu 870-93...
Uppruni Internetsins hefur stundum verið rakinn til kalda stríðsins og kjarnorkuvárinnar. Sagan segir að þegar líða tók á kalda stríðið hafi bandarísk hermálayfirvöld smám saman áttað sig á því að þau mundu eiga í erfiðleikum með að svara árás ef miðlægt tölvukerfi þeirra yrði eyðilagt í fyrstu sprengju í kjarnork...
Orðin grasekkja, grasekkjumaður og grasekkill eru tekin að láni úr dönsku. Þau eru ekki gömul í málinu og eru elstu dæmi Orðabókar Háskólans frá fyrri hluta 20. aldar.
Í orðabók Menningarsjóðs (1963, 1983), sem Árni Böðvarsson ritstýrði, eru þau merkt með spurningarmerki sem var til merkis um að þau væru óæsk...
Múslímar telja að Kóraninn hafi vitrast Múhameð spámanni smám saman á 20 ára tímabili. Þá var Múhameð í leiðslu og Gabríel erkiengill birtist honum og opinberaði honum textann sem síðar varð að Kóraninum.
Þegar Múhameð vaknaði úr leiðslunni fór hann með orðin sem honum höfðu vitrast. Sumir lærðu þau utanbókar e...
Tvennt er það sem ræður tilurð hinna ýmsu tegunda storkubergs: efnasamsetning kvikunnar sem bergið storknar úr og aðstæður við storknunina — hröð storknun eða hæg, við yfirborð, í vatni eða djúpt í iðrum jarðar. Efnafræðilega einkennast íslenskar bergtegundir af því að landið er „heitur reitur“ í miðju úthafi. Ann...
Kvæði gríska skáldsins Hesíódosar, Goðakyn og Verk og dagar, eru meðal mikilvægustu heimilda okkar um gríska goðafræði. Í kvæðinu Goðakyni segir meðal annars frá tilurð heimsins og guðanna, hvernig heimurinn, kosmos, varð til úr ginnungargapinu kaos, og hvernig jörðin gat af sér himininn en þau áttu saman Krónos, ...
Ef loftþrýstingur er breytilegur frá einum stað til annars verður vindur.
Dæmi: Inni í uppblásinni blöðru er meiri loftþrýstingur en utan hennar. Ef stungið er gat á blöðruna streymir loftið út og úr verður vindur sem leitar frá meiri þrýstingi í átt að minni. Vindinn lægir þegar loftþrýstingur er orðinn sá sa...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Hver er tilurð frasans „sama og þegið“ og hvers vegna er hann notaður þegar eitthvað er afþakkað?
Orðasambandið sama og þegið er notað í kurteisisskyni þegar einhverju er hafnað. Dæmi finnast á timarit.is frá því fyrir miðja 20. öld. Elsta dæmið þar er frá 1937 úr bla...
Þórarinn Guðjónsson er prófessor í vefjafræði við læknadeild Háskóla Íslands. Rannsóknir Þórarins fjalla um stofnfrumur og hlutverk þeirra í vefja- og líffæramyndun og tengsl stofnfruma við sjúkdóma á borð við krabbamein og bandvefsmyndun. Áherslur Þórarins eru fyrst og fremst á vefjastofnfrumur í brjóstkirtli og ...
Ágúst Kvaran er prófessor í eðlisefnafræði við Háskóla Íslands. Hann hefur verið viðriðinn fjölmörg rannsóknarverkefni sem flest snerta samspil ljóss og efnis. Ágúst hefur lagt áherslu á öflun upplýsinga um eiginleika sameinda með litrófsmælingum og rannsakað áhrif orkuríkrar geislunar á efni. Meðal verkefna eru á...
Bergkvika (kvika, bergbráð, bráð - e. magma) er blanda af bráðnu bergi og gufum, sem ættuð er úr iðrum jarðar. Við storknun kvikunnar skiljast gosgufurnar úr henni, en við storknun bráðarinnar verður til storkuberg. (Þorleifur Einarsson: Jarðfræði).
Í einfölduðu máli þá notum við orðið kvika (eða samheiti þess)...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!