Í grundvallaratriðum er lítill munur á 220 og 240 voltum. Tæki sem gert er fyrir 240 V má stinga í samband við 220 V án nokkurra vandkvæða fyrir raftækið. Þó má búast við að tækið skili ekki fullum afköstum. Sem dæmi má taka hraðsuðuketil keyptan í Bretlandi. Bretar eru með 240 V spennu og ketillinn því gefinn upp...
Í heild hljóðaði spurningin svona:
Af hverju nota Ameríkanar 110 volt? Eru fleiri þjóðir með 110 V og er það betra en 220 V? Er þetta frá því að Edison var uppi?
Ástæða þess að í Bandaríkjunum eru notuð 110 volt er fyrst og fremst söguleg. Fyrstu rafalarnir (jafnstraumsrafalar) voru byggðir í sitt hvoru lagi á...
Greinilegt er að margir velta fyrir sér þeirri takmörkun hraðans sem felst í forsögn afstæðiskenningarinnar þess efnis að enginn hlutur eða boð komist hraðar en ljósið. Mörgum dettur í hug að yfirstíga þetta með því að leggja einn hraða við annan eins og lýst er í þessum spurningum:Ef ég er ljós og er á ljóshraða,...
Samkvæmt íslenskum ritreglum stendur -v- ekki í bakstöðu, það er í enda orðs, aðeins í framstöðu, það er fremst í orði, eða í innstöðu. Í Stafsetningarorðabókinni, sem gefin var út á síðasta ári, stendur í kaflanum um f og v (bls. 699): ,,Meginreglan er sú að v sé aðeins ritað næst framan við sérhljóða í fyrsta at...
Aflgjafinn (e. power supply) í tölvu sér um að útvega tölvunni nauðsynlegt rafmagn til að keyra tölvuna. Aflgjafinn í borðtölvu tekur inn venjulegt húsrafmagn en aflgjafinn í fartölvu tekur inn spennu af rafhlöðu. Hann breytir inntaksrafmagninu svo yfir í margar mismunandi spennur sem hinn ýmsi búnaður innan tölvu...
Til eru tuttugu og þrjár tegundir refa í heiminum sem flokkaðar eru í fimm ættkvíslir. Tegundaríkasta ættkvíslin nefnist vulpes, innan hennar eru 12 tegundir. Meðal þeirra er rauðrefurinn (Vulpes vulpes) sem lifir á víðlendum svæðum í Evrasíu og Norður-Ameríku og mun vera útbreiddastur allra refa. Önnur tegund inn...
Nafnið Hvallátur (ft.) er til á að minnsta kosti fjórum stöðum á landinu: Eyjaklasi á Breiðafirði. Bær norðan Látrabjargs í V-Barðastrandarsýslu. (Landnámabók) = Látur.Hvallátradalur er hátt uppi í Lambadalshlíð í Dýrafirði. = Látur á Látraströnd í S-Þingeyjarsýslu. Nefnt Hvallátur í Landnámabók.
Nafnið er samkv...
Saga pýþagórískra þrennda er mun eldri en saga Pýþagórasar. Á leirtöflu frá Babýlon sem talin er vera frá um 1700 f. Kr. og er nefnd Plimpton 322 hafa fundist skýr merki um áhuga og þekkingu á pýþagórískum þrenndum.
Plimpton 322 leirtaflan.
Fyrstu línur töflunnar líta þannig út, aðlagaðar að nútímarithætti me...
Þegar orðið tölva var búið til var það hugsað sem svokallaður -wôn stofn, það er stofn með -v-i . Mjög fá orð féllu í þennan flokk í málinu til forna og fá teljast til hans nú, reyndar aðeins slöngva, völva og sérnafnið Röskva.
Fáliðaðir orðflokkar hafa tilhneigingu til að laga sig að öðrum orðflokkum og verðu...
Wernher von Braun var annar í röð þriggja sona Magnúsar von Brauns baróns og Emmy von Quistorp barónessu. Hann fæddist 23. mars árið 1912 í Wirsitz í Poznan, sem þá var hérað í Prússlandi en tilheyrir nú Póllandi. Wernher var draumóramaður frá unga aldri og hann ákvað aðeins tíu ára gamall að markmið sitt í lífinu...
Punta Arenas á Brunswick-skaga í Chile er á 53°10′ S, 70°56′ V (les: 53 gráðum og 10 mínútum suður eða suðlægrar breiddar og 70 gráðum og 56 mínútum vestur eða vestlægrar lendar). Dunedin á Nýja-Sjálandi er hins vegar á 45°52′ S, 170°30′ A. Punta Arenas er því sunnar en Dunedin, en er þó e...
Svarið er nei, vegna þess að hreyfiorka efniseindanna vex upp úr öllu valdi þegar hraði þeirra stefnir á ljóshraðann.
Samkvæmt hefðbundinni eðlisfræði eru hraða eða ferð hlutanna engin takmörk sett. Hreyfiorka vex í hlutfalli við ferðina í öðru veldi og fer því upp úr öllu valdi þegar ferðin "stefnir á óendanle...
Nafnorðið læ merkir ‛svik, mein; undirferli’. Það er af svonefndum hvorugkyns wa-stofni en orð í þeim flokki höfðu -v- í þgf. et. og ef. ft. Sem dæmi mætti taka orðið högg, í þgf. et. höggvi og ef. ft. höggva. Þetta -v- er nú fallið brott í beygingunni fyrir áhrif frá öðrum nafnorðum. Í orðinu læ varðveitist...
Fjöldi orða hefur verið ritaður með bókstafnum w í hinni löngu sögu ritaðrar íslensku.
Varðveittir eru textar á íslensku, öðru nafni norrænu, með latínuletri frá því á 12. öld. Táknið w var ekki algengt í elstu handritunum en því bregður þó fyrir, meðal annars í Grágásarhandriti frá lokum 12. aldar þar sem orðm...
Ein helsta niðurstaða afstæðiskenningarinnar er sú að tveir athugendur hreyfist ævinlega innbyrðis með hraða sem er minni en ljóshraðinn c. Ef A er athugandi með sína klukku og B er annar athugandi með klukku og B hreyfist með miklum hraða v séð frá A þá virðist A sem klukka B gangi of hægt. En það er jafngilt að ...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!