Leit á vefnum
Niðurstöður leitar - 1342 svör fundust
Hvers vegna heyrist í jarðskjálfta áður en hann kemur?
Hljóðið sem við heyrum frá jarðskjálftum kemur frá skjálftabylgjunum undir fótum okkar. Okkur finnst það stundum berast á undan skjálftanum vegna þess að fyrstu jarðskjálftabylgjurnar eru þá of veikar til að við finnum þær glöggt en hins vegar nógu sterkar til að mynda hljóð í loftinu, enda er eyrað býsna næmt mæl...
Hefði átt að skrifa gísl með z-u eða er tannhljóðið í gidsel síðara tíma innskeyti í dönsku?
Orðið gísl er samgermanskt. Í dönsku er notað gidsel og gissel, í fornsænsku gísl, fornensku gīs(e)l, fornsaxnesku gīsal, fornháþýsku gīsal, nútímaþýsku Geisel. Heimildir eru einnig um það úr keltnesku, samanber fornírsku gíall í sömu merkingu. Orðið gísl er af sumum fræðimönnum rakið til indóev...
Er heimsfaraldur COVID-19 enn í gangi og hvað höfum við lært síðan sjúkdómurinn kom fram?
COVID-19 (e. Coronavirus disease 2019) er öndunarfærasýking af völdum veirunnar SARS-CoV-2 (e. Severe acute respiratory syndrome coronavirus-2). Þó sýkingin sé bundin við öndunarfærin getur COVID-19 haft áhrif á margskonar líffærakerfi. Fyrstu tilfellum COVID-19 var lýst í desember 2019 í Wuhan, Kína. Alþjóðahe...
Er vitað hvað orsakar langvinnt COVID?
Ýmsar veirusýkingar geta haft langvinnar afleiðingar á bæði líkamlega og andlega heilsu og þar er COVID-19 engin undantekning. Langvinn veikindi eða ný einkenni eftir bráðafasa COVID-19 hafa verið kölluð ýmsum nöfnum. Hugtakið langvinnt COVID (e. long COVID, LC) er víða notað, önnur heiti á ensku eru post-COVID og...
Hversu hratt fara jarðskjálftabylgjur frá upptökum til mælistaðar?
Hraði jarðskjálftabylgju í jarðlögum fer bæði eftir því af hvaða tegund hún er og í hvaða efni hún berst, þar á meðal eftir dýpi hennar í jörðinni. Hraðinn vex yfirleitt með dýpi. Þess vegna getur bylgja sem fer djúpt í jörð verið fljótari milli tveggja staða nálægt yfirborði jarðar en önnur sömu tegundar sem fylg...
Af hverju myndast þung frumefni í sumum stjörnum en öðrum ekki?
Lotukerfi Dmitris Mendelejevs var fullmótað árið 1869. Röðun frumefna í það byggði á lotubundinni reglu atómmassanna, en sætistalan aðgreinir þar eitt frumefni frá öðru, þ.e. fjöldi róteinda í kjarnanum. Til dæmis hefur vetni eina róteind í kjarna en köfnunarefni sjö. Upphaflega voru í lotukerfinu nærri 60 frumefn...
Hvaða meðferð gagnast þeim sem hafa langvinnt COVID?
Ýmsar veirusýkingar geta haft langvinnar afleiðingar á bæði líkamlega og andlega heilsu og þar er COVID-19 engin undantekning. Langvinn veikindi eða ný einkenni eftir bráðafasa COVID-19 hafa verið kölluð ýmsum nöfnum. Hugtakið langvinnt COVID (e. long COVID, LC) er víða notað, önnur heiti á ensku eru post-COVID og...
Ég er með 100 Mb/s einstaklingsnettengingu. Hvað þýðir það nákvæmlega?
Nettengingar eru æði misjafnar og því er von að spurningar vakni um hraða þeirra, sérstaklega ef einingarnar bitar og bæti eru ekki alveg á hreinu. Í svari Hauks Más Helgasonar við spurningunni Hvað er eitt terabæti mörg megabæti? segir meðal annars:Minnsta eining upplýsinga í tölvu er biti. Biti hefur ýmist gi...
Hvernig er farið að því að greina lungnakrabbamein?
Þegar grunur vaknar um lungnakrabbamein eru gerðar ýmsar rannsóknir til að staðfesta greininguna, en jafnframt til að meta útbreiðslu meinsins og almennt ástand sjúklingsins. Reynt er að velja þær rannsóknir sem veita mestar upplýsingar en hafa sem minnsta áhættu fyrir sjúklinginn.[1] Mynd 1: Röntgenmynd af lun...
Er morgunverður mikilvægasta máltíð dagsins?
Í heild hljóðaði spurningin svona: Er morgunverður mikilvægasta máltíð dagsins? Hefur næringarfræðin eitthvað um það að segja? Til að svara spurningunni var framkvæmd leit í gagnagrunninum PubMed.gov þann 6.12.2022 með leitarstrengnum „breakfast AND health“. Þannig fannst 31 safngreining (e. meta-analysis) og ...
Af hverju er smámæli kallað þessu nafni?
Elstu heimildir um orðið smámæli í Ritmálsskrá Orðabókar Háskólans sýna merkinguna ‘lítilsvert málefni’ og sú elsta er frá árinu 1635: ad þeir a kialarnese hiellde ad Alfdys Jonsdotter hefde tilberan ad erfdum teked af modur sinne [ [...]] huad mier virdest ecke smämæle. Notkunin um framburð er eitthvað yngr...
Hvers vegna er eitt en ekki tvö -s í Ægisíða og Landspítali?
Í íslensku er hægt að mynda samsetningar á þrjá vegu:Fast samsett orð Laust samsett orð Bandstafssamsetning Með fast samsettu orði er átt við að notaður sé stofn fyrri liðar án beygingarendingar. Sem dæmi mætti nefna: snjó-bretti, hest-vagn, sól-bruni, borð-fótur. Í laust samsettu orði stendur fyrri liður ...
Er eitthvað nýtt að frétta af uppruna veirunnar sem veldur COVID-19?
Upprunalega spurningin var: Er eitthvað nýtt vitað um uppruna veirunnar sem veldur COVID-19, fimm árum eftir heimsfaraldurinn? Frá upphafi heimsfaraldurs COVID-19 hefur mikið verið rætt um uppruna veirunnar SARS-CoV-2, og hefur umræðan oft og tíðum einkennst af samsæriskenningum sem ekki voru studdar af vís...
Af hverju byrja flest orð í orðabókum á s, í pétrískri orðabók líka?
Ástæða þess að svo mörg orð geta hafist á s- er líklegast sú að s, sem er óraddað önghljóð (blísturshljóð), getur staðið í framstöðu á undan öllum sérhljóðum og allmörgum samhljóðum. Þannig geta orð hafist á sérhljóðunum:sa- (saga), sá- (sál), se- (sef), sé- (séður), si- (siður), sí- (sía), so- (sog), só- (sól...
Er eitthvað til í því að 5G-fjarskiptanet hafi áhrif á veiruna sem veldur COVID-19?
Nei, í stuttu máli sagt þá er ekkert til í því. Veiran sem veldur COVID-19 og 5G-fjarskiptanet eru tveir alveg ótengdir hlutir en sögusagnir um tengingu þarna á milli hafa þó komist á kreik. 5G-fjarskiptanet er ný (fimmta) kynslóð fjarskiptatækni þar sem notuð er rafsegulgeislun. Orsök COVID-19 er veira sem ...