Hlaupahraði er að miklu leyti meðfæddur og því mætti segja að auðveldasta leiðin til þess að verða fljótari sé að velja sér aðra foreldra!
Í mannslíkamanum eru tvær aðaltegundir vöðvafruma, hraðar og hægar. Hraðar vöðvafrumur geta dregist hratt saman eins og nafnið bendir til og því eru einstaklingar sem fæðast...
Lyftingar og áhrif þeirra á líkamsvöxt ungmenna vekja greinilega áhuga unglingsdrengja og hafa Vísindavefnum borist nokkrar spurningar um það efni. Þær eru eftirfarandi:Er hættulegt að byrja að lyfta áður en maður er búinn að ná fullum þroska? Ef svo er hversu hættulegt er það?Hvað þarf maður að vera orðinn gamall...
Upphaflega spurningin hljóðaði svo:Telja vísindamenn að það geri eitthvað gagn að „rúlla“ vöðva eftir æfingar? Ef svo er, hvenær er þá best að „rúlla“?
Á síðustu árum hefur það að „rúlla“ vöðva átt verulegum vinsældum að fagna meðal almennings og þá sérstaklega íþróttamanna sem lýsa því að aðferðin minnki þreyt...
Fimleikar er íþrótt sem felur í sér ýmsar æfingar þar sem saman fara styrkur, liðleiki, samhæfing, snerpa og jafnvægi. Fimleika er hægt að stunda sem einstaklingsíþrótt eða hópíþrótt. Á Íslandi eru fyrst og fremst stundaðir áhaldafimleikar og hópfimleikar. Áhaldafimleikar eru aðallega einstaklingsíþrótt en þó er e...
Fóturinn er eins og spenntur bogi þannig að maður stendur aðallega í hæl og tær. Það sem heldur boganum uppi er sinabreiða sem festist í tærnar að framan og hælbeinið að aftan. Í hvert skipti sem maður stígur í fótinn kemur álag á hælinn sem getur verið allt að því tuttuguföld líkamsþyngdin. Þetta álag dempast af ...
Alls hafa 18 manns farist í geimferðaslysum, annað hvort á leið út úr gufuhvolfi jarðar eða á leið til jarðar.
Sá fyrsti sem lést í geimferð var hinn sovéski Vladimir Komarov. Hann var einn í áhöfn Soyuz 1 sem skotið var á loft þann 23. apríl 1967. Eftir 18 hringi umhverfis jörðu, þar sem í ljós komu ýmisar bi...
Í svari sama höfundar við spurningunni Hvað eru neglur? kemur fram að neglur vaxa við það að yfirborðsfrumur naglmassa (e. matrix) ummyndast í naglfrumur. Þessar frumur myndast í naglrótinni undir naglbandinu og ýtast smám saman fram á við.
Hvítir blettir á nöglum eru kalkútfellingar og gefa til kynna að naglm...
Á Doktor.is er pistill um beinhimnubólgu. Þar kemur fram að það sem í daglegu tali kallast beinhimnubólga er ekki sjúkdómur í sjálfu sér heldur samheiti yfir ákveðin einkenni. Þessi einkenni eru verkir í framanverðum fótlegg sem koma í kjölfar aukins álags, oftast vegna líkamsþjálfunar. Verkirnir hverfa yfirleitt...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona:Hver var Arban? Eina sem ég veit um hann er að hann samdi tónlistarbók sem er enn notuð. Jean Babtiste Arban er frægastur fyrir að hafa veitt kornetthljóðfærinu brautargengi, bæði með snjöllum leik sínum og kennsluaðferðum sem nefnast 'aðferð Arbans'. Arban fæddist 28. feb...
Segjum að Kínverjar séu 1,2 milljarðar að tölu, þeir vegi 50 kg hver að meðaltali og kínverskir stólar séu 50 cm háir. Samanlagður massi þjóðarinnar væri þá 60 * 109 kg eða 60 milljón tonn. Ef svo þungur "hlutur" félli hálfan metra ylli það örugglega talsverðum jarðskjálfta. Til samanburðar má geta þess að fjallið...
Já, í stuttu máli sagt, er hægt að auka testósterónframleiðslu líkamans með mataræði og æfingum.
Testósterón er helsta karlkynhormónið og er myndað í millifrumum eistnanna. Það stuðlar að myndun sáðfrumna og karlkyneinkenna, kynhvöt og aukningu vöðva- og beinmassa. Það getur einnig haft góð áhrif á ýmsa andlega...
Sá sem vill fá stælta og vel mótaða kviðvöðva þarf annars vegar að byggja upp vöðvana og hins vegar að losa sig við sem mesta fitu af maganum, ef hún er til staðar, því annars sjást vöðvarnir ekki.
Til eru ýmsar mismunandi gerðir af kviðæfingum en margar þeirra er gott að framkvæma á æfingadýnu á gólfinu. Í tæ...
Já það er alveg öruggt að við höfum öll einhverja meðfædda hæfileika.
Sem dæmi má taka hæfileikann til að læra tungumál. Eins og fram kemur í svari við spurningunni Af hverju tala börn ekki þegar þau fæðast? kunnum við ekki tungumál þegar við fæðumst. Hins vegar hafa flestir hæfileika til þess að læra að tala ...
Þetta er ein af þeim spurningum sem ekki er hægt að svara á þann hátt sem spyrjandi ætlast líklega til, það er að segja með því að tilgreina eitthvert ákveðið orð.
Hugsum okkur að Ari hafi fundið eitthvert orð sem hann telur sjaldgæfasta orð í latínu. Þá getur Bjarni vinur hans andmælt því og sagt að hann geti ...
Nokkuð algengt er að hvalir syndi á land, en engu að síður eru orsakirnar fyrir því lítt þekktar. Ef tíðni þess er könnuð kemur í ljós að sumar tegundir stranda oftar en aðrar. Til dæmis er afar sjaldgæft að háhyrningar (Orcinus orca) og stökklar (e. bottlenose dolphin, Tursiops truncatus) strandi. Grindhvalir (Gl...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!