Ólafs ríma Haraldssonar í Flateyjarbók er elst varðveittra rímnatexta. Hún á sinn þátt í því samhljóða áliti fræðimanna að rímnagerð hafi hafist á fyrri hluta 14. aldar og jafnvel þegar um eða upp úr 1300. Með athugun á málstigi miðaldarímna hafa rannsóknir leitt i ljós að nokkrir nú varðveittir rímnaflokkar hafi ...
Stutta svarið við þessari spurningu er að það er ekki vitað hve skrifarar voru lengi að meðaltali að skrifa handrit enda gat margt haft áhrif á skriftarhraða á miðöldum. Má þar nefna aðstæður skrifarans, svo sem andlega eða líkamlega líðan, eða hitastig, birtu, hæð á púlti og gæði bókfellsins, bleksins og pennans...
Í Flateyjarbók, sem var rituð að mestu árið 1387, er að finna elsta varðveitta rímnatextann. Það er Ólafs ríma Haraldssonar eftir Einar Gilsson lögmann á Norður- og Vesturlandi. Þar sem uppskriftin er elst varðveittra rímnatexta hefur hún verið notuð sem viðmið í umræðunni um aldur rímna enda ljóst að hún muni sjá...
Hér er einnig að finna svar við spurningunni:
Hver er stærst íslenskra skinnbóka og hvar er hún geymd?
Flateyjarbók er stærst íslenskra miðaldahandrita og telur 225 blöð alls, fallega skrifuð og lýst (myndskreytt). Í gerð bókarinnar tóku þátt tveir skrifarar, prestarnir Jón Þórðarson og Magnús Þórhallsson s...
Orðasambandið að ryðja sér til rúms er notað í merkingunni 'dreifast, breiðast út, hljóta almenna viðurkenningu'. Það er þekkt þegar í fornu máli í eiginlegri merkingu. Í Flateyjarbók stendur til dæmis:ek spurða þá, hvar ek skyldi sitja. Hann bað mik þar sitja sem ek gæta rutt mér til rúms ok kippt manni ór sæti. ...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Hvaðan kemur orðið hinsegin? Getur verið að það hafi upprunalega verið hins veginn?
Orðið hinsegin er gamalt í málinu og talið vera einhvers konar sambræðingur úr hins vegar og (á) hinn veginn. Í Flateyjarbók frá lokum 14. aldar segir (með nútímastafsetningu): „Konungur leit t...
Orðið örvendur þekktist þegar í fornu máli um þann sem notar vinstri hönd meira en þá hægri. Í Flateyjarbók stendur til dæmis „smá verða örvendra manna högg“. Á 16. öld þekkjast myndirnar örvendur, örventur og örvhentur og hefur myndin örvhentur lifað fram á þennan dag. Örvhendur er mun yngri mynd eða frá fyrri hl...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Í Íslendingasögunum er oft talað um flugumenn. Hvað er þetta orð gamalt í málinu og hver er upphafleg merking orðsins flugumaður?
Orðið flugumaður þekkist þegar í fornum heimildum, til dæmis Flateyjarbók, Víga-Glúms sögu og fleiri ritum. Í orðabók Johans Fritzners yfi...
Í nútímamáli er merkingin í orðasambandinu að setjast í helgan stein að ‘draga sig í hlé, hætta að vinna’ og elsta dæmi Orðabókar Háskólans um þá notkun er frá fyrri hluta 19. aldar.
Í fornu máli var merkingin að ‘ganga í klaustur’. Að vísu var lýsingarorðið heilagur ekki með í orðasambandinu í elsta máli held...
Merking orðsins hálfdanarheimtur er 'slæmar heimtur, léleg skil'. Það virtist vel þekkt um allt land samkvæmt svörum sem bárust við fyrirspurnum í þættinum Íslenskt mál í ríkisútvarpinu fyrir um fjörutíu árum. Sumir notuðu orðið eingöngu um lélegar heimtur á fé af fjalli, aðrir töldu orðið aðeins notað um dauða hl...
Eddukvæði finnast nær eingöngu í þremur heimildum. Flest eru varðveitt í íslenska handritinu Konungsbók eddukvæða (GKS 2365) frá því um 1270. Einnig eru eddukvæði í Snorra-Eddu en hún er meðal annars varðveitt í handritinu Konungsbók Snorra-Eddu (GKS 2367), frá því snemma á 14. öld. Enn fremur finnast eddukvæði í ...
Elstu varðveittu eddukvæði eru væntanlega frá sama tíma og elstu varðveittu dróttkvæðin þar sem segir frá bardögum konunga sem seðja hræfuglana með bardagafýsn sinni og hugdirfsku. Eins og eddukvæðin eru dróttkvæðin einungis varðveitt í ungum handritum, þeim elstu frá 13. öld, en fræðimenn hafa talið að þau séu mö...
Því er til að svara að nafnið Lundúnir er ekki þýtt, en í elstu heimildum var það Londinium (hjá Tacitusi 115-117 e.Kr.) eða Lundonia (hjá Beda um 730 e.Kr.). Í elstu heimildum íslenskum eru myndirnar bæði Lundún og Lundúnir og eru þær myndir ekki fjarri því sem Beda skrifar. Merking nafnsins er engan veginn ljós ...
Spurningin hljómaði svona í heild sinni:
Hvenær komu handritin aftur til Íslands og hvað varð til þess að þau komu heim á ný? Eru fleiri handrit enn í Kaupmannahöfn?
Undir lok 16. aldar uppgötvuðu fræðimenn í Danmörku og Svíþjóð að á Íslandi væri að finna handrit að sögum sem vörðuðu fjarlæga fortíð þessara l...
Samkvæmt Íslendingabók Ara fróða Þorgilssonar varð landnám Íslands á stjórnarárum Haralds hárfagra. Texti Ara hljóðar svo:
Ísland byggðist fyrst úr Norvegi á dögum Haralds hins hárfagra, Halfdanarsonar hins svarta, í þann tíð ... er Ívar Ragnarssonur loðbrókar lét drepa Eadmund hinn helga Englakonung; en það var ...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!