Leit á vefnum
Niðurstöður leitar - 31 svör fundust
Hvað eru hantaveirur og hvar finnast þær?
Upprunaleg spurning Jóhanns hljóðaði svona: Hversu hættuleg er hantaveiran? Nýlega hafa hantaveirur (e. hantavirus) verið mikið í fréttum sökum hópsýkingar á skemmtiferðaskipinu MV Hondius. Þegar þetta svar er skrifað, þann 8. maí 2026, hafa þrír farþegar látist vegna sýkingarinnar, en fleiri skipverjar eru...
Af hverju hófst Persaflóastríðið fyrra?
Upprunalega spurningin hljóðaði svona: Hvað varð til þess að Persaflóastríðið fyrra hófst (1980–1988)? Persaflóastríðið 1980–1988 var afleiðing mikillar spennu á milli Írans og Íraks sem hægt er að rekja til ársins 1969. Þá féll Íran frá samkomulagi ríkjanna sem hafði staðið frá 1937, um fljótið Shatt al-Ar...
Hvað er vitað um ferjumanninn Karon í grískri goðafræði?
Samkvæmt grískri goðafræði var Karon ferjumaður sem flutti sálir látinna yfir fljótið Akkeron til undirheima, stundum sá hann um að ferja hina dauðu yfir fljótið Stýx. Til forna tíðkaðist það að setja pening undir tungurót látinna til að þeir gætu greitt Karoni ferjutoll. Þeir sem höfðu ekki fengið tilhlýðilega...
Úr hvaða ritum fékk Snorri Sturluson sína vitneskju um fljótið Tanais sem nú kallast Don?
Snorri Sturluson getur fljótsins Tanais í Heimskringlu. Þar segir í upphafi Ynglingasögu: Úr norðri frá fjöllum þeim, er fyrir utan eru byggð alla, fellur á um Svíþjóð, sú er að réttu heitir Tanais; hún var forðum kölluð Tanakvísl eða Vanakvísl; hún kemur til sjávar inn í Svartahaf. Í Vanakvíslum var þá kallað Van...
Hvernig er gróður- og náttúrufar í Egyptalandi?
Egyptaland, „landið við fljótið“ eða „gjöf Nílar“ eins og þetta forna menningarsvæði hefur verið kallað, er að langmestu leyti eyðimörk og því er náttúra landsins á engan hátt eins fjölbreytt og þekkist sunnar í Afríku. Egyptaland er 995.450 km2 á stærð og þekja eyðimerkur stærstan hluta landsins. Vinjar finnast v...
Hvernig er hægt að útskýra heimspeki Heideggers á mannamáli?
Þessari spurningu verður best svarað í verki, það er að segja með því að útskýra í stuttu máli nokkra helstu þættina í heimspeki þýska hugsuðarins Martins Heideggers (1889–1976), en í öðru svari er fjallað nánar um hvað felist í orðinu mannamál. Í skrifum sínum og hugsun reyndi Heidegger einmitt að streitast ge...
Hvernig fiskur er Amúr-drottning?
Amúr-drottningin, sem oftar er nefnd Kaluga-styrjan (Huso dauricus) eða stóra síberíska styrjan (e. great Siberian sturgeon), er stærsti núlifandi ferskvatnsfiskur í heimi. Hún getur orðið allt að 6 metrar á lengd og vegið yfir 1000 kg. Slíkar stærðarskepnur eru þó orðnar mjög sjaldgæfar nú á dögum vegna ofveiði, ...
Hvenær varð Evrópa til?
Þessari spurningu er hægt að svara á nokkra vegu. Ef við lítum til jarðsögunnar má segja að Evrópa hafi myndast einhvern tíma frá lokum trías-tímabilsins, fyrir um 200 milljónum ára, fram til krítar-tímabilsins, fyrir um 65 milljónum ára. Hægt er að sjá ágæta skýringarmynd af myndun meginlandanna í svari við spurn...
Hvað éta górillur (fyrir utan banana)?
Rannsóknir á fæðuháttum vesturláglendisgórillunnar (Gorilla gorilla gorilla), einnar af fimm deilitegundum górilluapa, sýna að górillur leggja fjölda tegunda plantna og ávaxta sér til munns. Hlutfallsleg skipting milli fæðuflokka, samkvæmt vistfræðirannsóknum, gefur til kynna að 67% fæðunnar séu ávextir. Er þá um ...
Hvernig verða óshólmar til?
Óshólmar eru hluti af óseyrum, en þær myndast í náttúrunni þegar straumvatn fellur til hafs eða stöðuvatns. Óseyrar eru oft kvíslóttar og vogskornar, þannig að fram kemur fjöldi óshólma eða landeyja. Í hverri óseyri takast á uppbyggjandi starf árinnar sem flytur set að óseyrinni og niðurrif öldugangs og sjávarfal...
Hvað veist þú um Amasonfljótið?
Amasonfljótið í Suður-Ameríku er annað lengsta vatnsfall í heimi á eftir ánni Níl eins og lesa má um í svari við spurningunni Hver eru lengstu fljót í heimi? Það á upptök sín í Andesfjöllum innan landamæra Perú, rennur í gegnum Brasilíu og fellur til sjávar í Atlantshafið. Lengd þess frá upptökum til ósa eru um 6...
Hvað er hantaveira?
Í Kóreustríðinu, sem háð var á árunum 1950-1953, varð vestrænum læknum fyrst kunnugt um dularfullan „nýjan“ sjúkdóm sem lagðist á hermenn Sameinuðu þjóðanna sem þar börðust. Sjúkdómnum var gefið nafnið kóresk blæðandi hitasótt (e. Korean hemorrhagic fever). Yfir 2000 hermenn sýktust og margir þeirra dóu af völdum ...
Hvað getið þið sagt mér um dýralífið í Volgu?
Borgin Volgograd bar áður nafnið Stalíngrad í nokkra áratugi og er aðallega fræg fyrir hina miklu orrustu sem var þar háð í seinni heimstyrjöldinni. Borgin verður eflaust ofarlega í huga þeirra sem fylgjast með heimsmeistaramótinu í knattspyrnu sumarið 2018 því þar keppir íslenska landsliðið eins og hægt er að les...
Hvað er merkilegt við Amasonfljótið, regnskóginn þar og allt dýralífið?
Amasonfljót er vatnsmesta fljót í heimi og það næstlengsta, á eftir Níl. Vatnsmagnið sem fellur til sjávar í Amasonfljótinu er meira en fellur til sjávar samanlagt í Níl, Mississippi- og Yangtze-fljóti en Mississippi-fljót er það þriðja lengsta í heiminum og Yangtze-fljót það fjórða lengsta. Fljótið rennur að mest...
Eru til íslensk nöfn á rússnesku borgirnar sem verður spilað í á HM 2018?
Heimsmeistaramót landsliða í knattspyrnu karla verður haldið í Rússlandi sumarið 2018. Íslenska karlalandsliðið keppir þar í fyrsta sinn á lokamóti HM. Rússneska er rituð með kyrillísku letri eða stafrófi en ekki latnesku eins og til að mynda íslenska. Umrita þarf því rússnesk heiti og nöfn yfir á íslenskt staf...