Vegna þess hvað hundar og úlfar eru skyldir og líkir líffræðilega geta þeir eignast afkvæmi vandkvæðalaust. Þá virðist ekki skipta máli hvaða hundakyn eða úlfastofn eiga í hlut en hins vegar geta skapast vandræði ef stærðarmunur er mikill.
Hundar og úlfar eru af hundaættinni, Canidae, sem inniheldur aðeins um þ...
Í reglugerð um innflutning gæludýra og hundasæðis (935/2004) segir meðal annars:Óheimilt er að flytja til landsins:
a) Hvolpafullar tíkur.
b) Kettlingafullar læður.
c) Tíkur með hvolpa á spena.
d) Læður með kettlinga á spena.
e) Dýr sem hafa undirgengist aðgerðir fyrir innflutning og þarfnast eftirlits eða...
Hundar af ræktunarafbrigðinu Tibetan Spaniel eru á bilinu rúmlega 4 til 7,5 kíló að þyngd og um 25 cm á hæð yfir herðakambinn. Þeir eru ákaflega kviklyndir og gæddir sæmilegum gáfum.
Eins og nafnið gefur til kynna þá voru þessir hundar fyrst ræktaðir í Tíbet í Mið-Asíu og má rekja uppruna þeirra 2 þúsund ár af...
Hundarækt hefur verið stunduð öldum saman og frá upphafi hefur markmiðið verið hið sama; að rækta hunda með ákveðna eiginleika til dæmis varðandi skapferli, vinnueðli, útlit eða stærð.
Hreinræktaðir hundar eru skráðir í viðurkennda ættbók, þar sem ætterni og tegund er staðfest. Á Íslandi er Hundaræktarfélag Ís...
Eins ólíkir og hundar geta verið er rétt að taka fram strax í upphafi að í raun tilheyra allir hundar sömu tegund. Hún kallast á latínu Canis lupus familiaris eða Canis familiaris. Tegundin greinist hins vegar í fjölmörg ólík kyn.
Það er enn deilt um það meðal vísindamanna hvenær tegundin hundur kom fram en e...
Bæði þessar hundakyn eru mjög hávaxin og líklega þau hávöxnustu sem þekkjast. Samkvæmt stöðlum Bandaríska hundaræktarsambandsins (American Kennel Club) er æskileg hæð yfir herðakamb á stórdanahundum um 81 cm og á tíkum 76 cm. Þyngd hundanna er um 80-85 kg.
Hér sést írskur úlfhundur til vinstri og stórdani til h...
Margir hafa sent inn fyrirspurn um hvers vegna hundum og köttum kemur svona illa saman. Aðrir spyrjendur eru:
Jóhann Helgi Stefánsson (f. 1989), Bjarni Ragnarsson, Olga Helena (f. 1991), Steinunn Ragnarsdóttir (f. 1990), Valdimar Halldórsson (f. 1993), Sigrún Aagot Ottósdóttir (f. 1992), Aþena Björg (f. 1990), Þ...
Ólíkt því sem oft er talið er ekkert sem bendir til að hundar sjái ekki á sjónvarp. Þó er ekki þar með sagt að þeir sjái sjónvarpsútsendinguna á sama hátt og við.
Keilur eru þeir ljósnemar sem sérstaklega eru notaðir til litaskynjunar. Hundar hafa aðeins tvær tegundir keilna á sjónhimnu augans en menn hafa þrj...
Hundar hafa 78 litninga í líkamsfrumum sínum en menn aðeins 46. Litningar hunda eru hins vegar minni en litningar manna og líklegt er að álíka mörg gen séu í erfðaefni þessara tegunda. Meirihluti gena hundsins á sér eflaust samsvörun í erfðaefni mannsins en röðun þeirra í litninga er ólík. Það er vel þekkt úr erfð...
Upprunalega spurningin var í löngu máli og hljóðar svona í heild sinni:Mér til sárrar armæðu rekst ég æ oftar á afbökun orðasambandsins „að hafa ekki roð við einhverjum“ sem hefur umbreyst í „að hafa ekki roð í einhvern“.
En ég verð að játa að þó þetta hafi verið mér tamt á tungu í meira en hálfa öld, veit ég e...
Lengi vel var talið að þegar hundar hittust og þefuðu af endaþarmi hvor annars væru þeir að heilsast. En líklega á þetta háttalag sér aðra og margþættari skýringu.
Hundar hafa tvo kirtla við endaþarmsopið. Þeir seyta efnasamböndum sem tengjast beint hormónastarfsemi hundanna. Lyktin sem berst frá kirtlunum veit...
Hundar sjá í lit en þeir sjá ekki eins marga liti og menn. Við vitum hvernig sjón hunda er háttað af því að hægt er að rannsaka sjónfrumur þeirrra sem nefnast keilur.
Hundar hafa tvær gerðir af keilum og ljósgleypni þeirra er á tveimur bylgjulengdum, við 429 nm og 555 nm. Hundar nema þess vegna bláan og gulan l...
Sennilegasta skýringin á því að hundar halla oft undir flatt þegar fólk talar við þá er að þeir séu að reyna að heyra betur. Eyrun eru staðsett á hliðum höfuðsins og bylgjurnar berast ekki beint í þau. Með því að halla undir flatt þá breyta þeir afstöðu eyrnanna gagnvart hljóðinu og geta numið það betur.
Yngri ...
Það fer eftir kyni eða afbrigði hversu háum aldri hundar ná. Smærri hundar hafa tilhneigingu til þess að verða eldri en þeir sem eru stærri. Þannig verða smáhundar oft 15-16 ára, meðalstórir og stórir hundar ná gjarnan 10-13 ára aldri en allra stærstu hundakynin verða yfirleitt ekki nema 7-8 ára.
Flestir hundar...
Hundar af Shih Tzu ræktunarafbrigðinu eru komnir af peking-hundinum og tíbetsku afbrigði sem nefnist Lhasa apsoo. Shih Tzu hundar komu fyrst fram í Tíbet og eru nú meðal vinsælustu dekurhunda á Vesturlöndum.
Í Kína kallast hundar af þessu afbrigði Shih Tzu kou sem hægt er að þýða yfir á íslensku sem ljónahundur...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!