Um slíkt eftirlit gilda lög nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
Fjórða grein laganna tekur sérstaklega til eftirlits með myndavélum. Sé slíkt eftirlit stundað þarf að gæta þess að vinna með sanngjörnum, málefnalegum og lögmætum hætti úr upplýsingunum og meðferð þeirra skal vera í samræmi v...
Upphafleg spurning var á þessa leið:
Hvernig ber að fara með og varðveita persónulegar upplýsingar um börn í leik- og grunnskóla? Má veita upplýsingar um börn (ólögráða einstaklinga) án vitneskju foreldra eða forráðamanna (t.d. milli skólastiga, til félagsmálayfirvalda, til ættingja eða utanaðkomandi sérfráðinga)...
Upphafleg spurning var á þessa leið:Getið þið sagt mér url-ið á vefsíðu "bandarísku þjóðskrárinnar"?
Í Bandaríkjunum er ekkert til í líkingu við hina íslensku þjóðskrá. Bandarísk stjórnvöld reka ekki gagnagrunn sem inniheldur upplýsingar um fæðingardaga og búsetu fólks eða yfirleitt nokkra skrá yfir bandarísku þj...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona:
Góðan dag. Má taka mig upp án míns samþykkis, hvort sem um er að ræða videó eða raddupptöku?
Um hljóðupptökur gilda tilteknar reglur sem hægt er að skoða á vef Persónuverndar. Þar segir þetta:
Einstaklingar mega almennt ekki taka upp samtöl manna á milli eða ræð...
Spurningin er tvíþætt. Annars vegar er spurt hvort leyfilegt sé að hljóðrita símtal án leyfis. Hins vegar er spurt um hvort heimilt sé að útvarpa slíku símtali.
Varðandi heimild til hljóðritunar á símtölum þá segir í 44. gr. laga um fjarskipti:Sá aðili að símtali sem vill hljóðrita símtalið skal í upphafi þe...
Í heild sinni var spurningin svona:
Hvaða lagalegu réttindi hefur ljósmyndari á almannafæri, til dæmis í verslunarkjörnum eða öðrum fjölförnum stöðum á Íslandi?
Í svarinu hér á eftir er gert ráð fyrir að spyrjandi eigi við rétt ljósmyndara til að taka myndir af einstaklingum en ekki bara byggingum, styttum eða s...
Hér koma ýmis lög til greina og svarið við spurningunni fer meðal annars eftir því við hvað er miðað. Hægt er að meta lengd lagabálka með hliðsjón af greinarfjölda laganna og einnig blaðsíðufjölda þeirra, þá kemur líka til skoðunar hvort viðaukar og fylgiskjöl séu talin með eða ekki.
Sé miðað við fjölda greina ...
Upprunalega spurningin hljóðaði svo: Bankaleynd hefur verið mikið í umræðunni síðustu daga. Yfir hvaða svið bankaviðskipta nær leyndin? Hvað má upplýsa og hvað ekki?
Í 7. kafla laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 er kveðið á um trúnaðarskyldur starfsfólks þeirra. Þar er lögð almenn skylda á allt starfsfólk f...
Spyrjandi bætir við:
Ef ekki, af hverju þá? Af hverju má ég eiga tennurnar úr mér en ekki höndina? Í 72. gr. stjórnarskrárinnar kemur fram að eignarrétturinn sé friðhelgur og að engan megi skylda til að láta af hendi eign sína nema almenningsþörf krefji. Af þessu má álykta að skýrar lagareglur þurfi til að takmar...
Aðgangur að sjúkraskrám er takmarkaður við lögheimild. Það þýðir að enginn fær aðgang að sjúkraskrám annarra nema slíkur aðgangur sé tilgreindur í lögum. Slíkar heimildir eru tíundaðar í 4. kafla laga um sjúkraskrár nr. 55/2009.
Í 15. grein laganna er kveðið á um rétt „náinna aðstandenda“ til aðgangs að sjúkra...
Vísindavefurinn hefur ótal sinnum fengið fyrirspurnir um dularfull sokkahvörf. Í meginatriðum er gott samræmi í frásögnum vitna af atburðarásinni: Alltaf hverfur annar sokkur úr pari og stakur sokkur stendur eftir. Með tímanum safnast stöku sokkarnir upp og verða oft að myndarlegri hrúgu; sumir spyrjendur segjast ...
Forvitni er tilfinning sem er náttúrulegur grundvöllur þekkingarleitar. Hún er sú þrá að vilja vita nýja hluti að baki vísindalegri uppgötvun og könnun heimsins; forvitnar manneskjur leita að ævintýrum og framandi tækifærum til að gera sér lífið áhugaverðara. Forvitni er, í sinni hreinustu mynd, mannleg tilhneigin...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!