Orðið kaup merkir ‛verslun, viðskipti’ og er venjulega notað í fleirtölu sem og í merkingunni ‛það að kaupa’. Gerð eru góð eða slæm kaup, maður getur átt í hagstæðum eða óhagstæðum kaupum við einhvern annan og þriðji maður getur til dæmis gengið inn í kaupin.
Ekki er kominn festa á beygingu verslun...
Rökfræði fjallar um það hvenær eina setningu, sem við köllum niðurstöðu, leiðir af öðrum setningum, sem við köllum þá forsendur. Og ástæðan fyrir því að rökfræði getur verið flókin er í sem stystu máli sú að það getur verið flókið mál hvenær niðurstöðu leiðir af gefnum forsendum.
Aþenuskólinn e. Rafael. Aristótel...
Þessi mynd var tekin um tíuleytið.Til að takast á við þessa spurningu má spyrja hvort orðin „tíu“ og „leytið“ hefðu skýrt setningafræðilegt hlutverk sem tvö aðskilin orð.
Dæmið kann að skýrast sé „tvö“ sett í stað „tíu“ svo út fengist setning á borð við „Jón horfði frá tvö leytinu.“ „Leytinu“ tekur hér þágufall...
Eitt sinn var ég spurður hvort computer says no væri íslenska. Þetta er þekktur frasi sem á uppruna sinn í gamanþáttunum Little Britain frá því upp úr aldamótum og fólk bregður oft fyrir sig þótt annars sé verið að tala íslensku. Í fljótu bragði kann það að virðast fráleitt að spyrja hvort þetta sé íslenska – þett...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Í málsháttasafni Nönnu Rögnvaldardóttur er setning sem hljómar svona: "Ekki má kasta svartri konu úr sæng." Það hlýtur að vera að þetta þurfi ekki túlka bókstaflega - en hver er uppruni málsháttarins og hvað þýðir hann í rauninni?
Elsta dæmi í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans...
Mótsögn er í hnotskurn fullyrðing sem bæði játar og neitar því sama. Einföld framsetning gæti verið á þessa leið á táknmáli rökfræðinnar:
p ∧ ¬ p
(það er p og ekki-p)
þar sem breytan p stendur fyrir hvaða staðhæfingu sem er. Ef breytan p stendur til dæmis fyrir staðhæfinguna „Ísland er eyja“ fæst:
Íslan...
Bögglaberi er grind á reiðhjóli, oftast aftan við sætið. Eins og nafnið bendir til á að nota hana til að bera böggla.
Orðið böggull er smækkunarorð af 'baggi', og merkir þess vegna 'lítill baggi' eða 'pakki'. Af orðinu böggull er leidd sögnin böggla sem þýðir að 'kuðla' eða 'vöðla', en það á ágætlega við þegar ...
Í svari við spurningunni Hvað er kitl og af hverju getum við ekki kitlað okkur sjálf? kemur fram að vísindamenn hafa lengi talið að þegar við erum kitluð reynum við að verjast. Eðlilegt er því að spyrja hvers vegna fólk hlær þegar það er kitlað, fyrst um varnarviðbrögð er að ræða og jafnvel merki um ótta. Þessi sp...
Við skulum byrja á því að skoða orðið "þetta" í setningunni sem er skrifuð í spurningarreitinn. Í málfræðinni er "þetta" flokkað sem ábendingarfornafn og í málspekinni er talað um ábendingarorð (e. indexicals), samanber svör Eyju Margrétar Brynjarsdóttur við spurningunum Hvenær er núna? og Hvað er þetta? Í báðum...
Áður en við svörum spurningunni skulum við gera grein fyrir helstu hugtökunum sem koma fyrir í henni, svo það sé öruggt að við séum öll að tala um sömu hlutina. Að leysa jöfnur af því tagi sem spurt er um þýðir að finna núllstöðvar margliðu, en það eru föll af gerðinni
\[P(x)=a_{n}x^{n}+a_{n-1}x^{n-1}+...+a_{1}x+...
Spyrjandi spyr okkur spurningarinnar: "Hvernig veit maður hvað er spurning?" Við getum orðað svarið við þeirri spurningu til dæmis svona: Við vitum að tiltekin setning er spurning ef í henni felst áskorun til viðmælanda um að veita upplýsingar. Um þessa skilgreiningu á spurningu má til dæmis lesa í svörum Erlendar...
Já, á þessu tvennu er munur. Hann felst í því hvernig staðið er að ráðningu viðkomandi, hve lengi hún stendur og hve varanleg hún er. Að sama skapi er staða embættismanna sem hafa verið settir í embætti og skipaðir ekki alfarið sú sama.
Almenna reglan er sú að opinberir embættismenn eru skipaðir í embætti. Samk...
Þessari spurningu er nú ekki létt að svara, en eins og spyrjandi nefnir, þá segir svo í trúarjátningunni um dauða Jesú: "Píndur á dögum Pontíusar Pílatusar, krossfestur dáinn og grafinn, steig niður til heljar".
Orðalagið steig niður til heljar var sótt í fyrra Pétursbréf (3.19) þar sem segir: Í andanum fór hann...
Málvísindamenn nota stundum svonefnd boðskiptalíkön til að útskýra og greina hvernig boðskipti eiga sér stað milli manna. Einfölduð mynd af þannig líkani gæti litið svona út:sendandi --> boð --> viðtakandiÞað er að segja sendandi sendir boð til einhvers viðtakanda. Boðskipti geta verið af ýmsu tagi. Hér eru nokkur...
Stjórnvaldsákvörðun
Formleg stjórnvaldsákvörðun er eins og orðin gefa til kynna, ákvörðun sem tekin er af þar til bæru stjórnvaldi í málum sem varða borgarana. Fjölmörg mál koma til kasta stjórnvalda hverju sinni og niðurstaða fæst í þessi mál með því að stjórnvöld taka ákvörðun. Dæmigerð afgreiðsla stjórnvalda...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!