Sagnarsambandið að vaska upp er gamalt í málinu. Elsta dæmi Orðabókar Háskólans er frá miðri 17. öld úr ævisögu Jóns Ólafssonar Indíafara sem skrifuð var 1661. Sennilegast er að það hafi borist hingað úr dönsku vaske op eins og nafnorðið uppvask, í dönsku opvask.
Vaskað upp.
Í dönsku eru einnig heimildir um ...
Grundvallarsvarið við þessari spurningu kemur í raun fram í stuttu svari við spurningunni Hiti og kuldi hafa áhrif á frumefnin. En hvað eru hiti og kuldi? en þar segir meðal annars þetta:Hiti í efni tengist hreyfingu smæstu efniseinda, til dæmis sameinda, frumeinda eða rafeinda. Því meiri sem hraðinn og hreyfiorka...
Upprunalega hljóðaði spurningin svonaHvenær kom fyrsta uppþvottarvélin til Íslands og hvenær urðu þær algengar á íslenskum heimilum?
Fyrstu uppþvottavélarnar voru gerðar í Bandaríkjunum um miðja 19. öld. Leirtaui og borðbúnaði var snúið í þessum vélum með handafli á meðan vatn sprautaðist yfir. Þessar fyrstu vé...
Hér er einnig svarað spurningunni:Hver fann upp postulínið og úr hverju er það?Postulín er ekki ýkja gömul uppfinning en talið er að það hafi fyrst verið framleitt í Kína á valdatíma Tangættarinnar (618-907). Líklegt þykir að það hafi fengið á sig það form sem þekktast er á Vesturlöndum meðan hin mongólska Yuanætt...
Árið 1918 var meirihluti Íslendinga enn bændur og sjómenn sem sóttu af kappi í gögn lands og sjávar, en einnig var talsvert af fólki sem vann við heimilisþjónustu hjá öðrum. Værir þú uppi á þessum tíma er því líklegt að þú ynnir við landbúnaðarstörf, fiskveiðar og fiskvinnslu eða vinnumennsku sem innanhúshjú. Í þe...
Í Njáls sögu segir frá því í 120. kafla að Ásgrímur Elliða-Grímsson og Njáls synir gengu til búðar Þorkels háks í leit að liðveislu á þingi. Hvöss orðaskipti urðu milli Skarphéðins Njálssonar og Þorkels. Þorkell þreif sax sitt og Skarphéðinn stóð með reidda öxina og sagði: „Ger þú nú annaðhvort Þorkell hákur að s...
Nafnorðið hella merkir 'flatur steinn'. Það er einnig til í öðrum Norðurlandamálum, t.d. færeysku hella, nýnorsku helle, sænskum mállýskum hälla, fornsænsku hælla og forndönsku hælde.
Samkvæmt Íslenskri orðsifjabók (1989:318) höfðu sum orðin einnig merkinguna '(slétt) klöpp, berggrunn' og jafnvel 'neðansjávars...
Leysikorn (e. lysosome) eða leysibólur eru blöðrulaga frumulíffæri sem mynduð eru í golgíkerfinu en það er netlaga frumulíffæri sem staðsett er í umfrymi fruma. Leysikorn ólíkra frumna eru mismunandi að gerð og samsetningu.
Leysikorn gegna mikilvægu hlutverki í meltingarstarfi frumunnar. Þau eru vökvafyllt og...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Hvaðan kemur „kýfingur“ úr orðinu „auð-kýfingur“ og hvað þýðir það?
Orðið -kýfingur er dregið af sögninni kýfa ‘setja kúf á, hrúga niður’. Sem ópersónuleg sögn er hún til dæmis notuð í sambandinu það kýfir niður snjó ‘það snjóar mikið’.
Hér hefur kýft niður snjó.
...
Forsenda spurningarinnar er sett fram samkvæmt jarðmiðjukenningunni sem svo er kölluð. Hún mótaðist á árunum 500-300 fyrir Krists burð og flestir höfðu hana fyrir satt fram á nýöld. Samkvæmt henni er jörðin kúlulaga og miðja hennar er um leið miðja heimsins. "Niður" var alltaf inn að miðju jarðar eins og spyrjandi...
Spurningin í fullri lengd hljóðaði svona:
Hversu lengi eru áldósir og plastflöskur að brotna niður í náttúrunni og hvaða skaðlegu efni geta losnað?
Ál er mjög sterkt efni og er því mjög lengi að brotna niður í náttúrunni. Hversu fljótt það eyðist fer eftir því hversu mikil veðrunin er, það er vindur, úrkoma...
Faraday-búr eða rafbúr voru fundin upp af enska eðlisfræðingnum Michael Faraday (1791-1867) árið 1836. Með þeim er hægt að útiloka utanaðkomandi rafsegulsvið af tilteknum tegundum. Búrin eru gerð úr málmi, ýmist með heilum málmþynnum í veggjunum, málmgrind eða málmi með enn annarri lögun. Lögun búrsins ræður því h...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Þegar plast brotnar niður í náttúrunni, þá er talað um að það brotni í sífellt smærri einingar án þess að plastið raunverulega eyðist, sem aftur þýðir að einhvers staðar stöðvast niðurbrotið. Hvað eru einingarnar orðnar smáar þegar niðurbrotið stöðvast? Er þá raunverulega um það a...
Spyrjandi bætir einnig við:Þessu getið þið ekki svarað!Þrátt fyrir fullyrðingu spyrjanda ætlum við að svara þessu og teljum að við höfum oft komist í hann krappari.
Eins og fram kemur í fyrri svörum um Internetið er það einfaldlega tölvunet sem sett er saman úr minni einingum: vefþjónum og venjulegum tölvum sem...
Spyrjandinn vill líklega vita hvar frjóvguð egg eru geymd því ófrjóvguð egg eru í eggjastokkum kvenfugla líkt og er raunin á meðal annara kvendýra.
En til þess að geta svarað spurningunni er nauðsynlegt að fjalla fyrst um æxlunarfæri kvenfuglsins. Langflestar fuglategundir eru aðeins með einn eggjaleiðara og eg...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!