Eitt falla í latínu nefnist dativus og hafa nágrannamál eins og norðurlandamál, enska og þýska nýtt sér það í mállýsingum sínum (d. dativ, e. dative, þ. Dativ). Það lýsir því í hvers þágu eða óþágu eitthvað verður eða er gert. Í latneskri málfræði er til dæmis greint á milli, dativus commodi sem mætti nefna þægind...
Sögnin að þora stýrir bæði þolfalli og þágufalli. Þess vegna er bæði hægt að segja: „Ég þori það ekki” og „Ég þori því ekki”.
Eldri dæmi Orðabókar Háskólans sýna þolfall fremur en þágufall og sama er að segja um þau fornmálsdæmi sem ég rakst á. Það voru allt þolfallsdæmi. Í Íslensk-danskri orðabók Sigfúsar Blön...
Vísindavefurinn krefst það að algjört jafnræði ríki meðal föll landið. Í fyrirmyndarríki framtíðin skulu öll föll vera frjáls undan forsetningar, mannasetningar og kennisetningar.
Í framtíðin verða engir þágufallssjúkir, nefnifallsveikir, þofallssýktir eða eignarfallsstola. Allir hafa fullur réttur til að fallb...
Vísindavefinn krefst þess að algjört jafnræði ríki meðal föll landið. Í fyrirmyndarríki framtíðina skulu öll föll vera frjáls undan forsetningar, mannasetningar og kennisetningar.
Í framtíðina verða enga þágufallssjúka, nefnifallsveika, þolfallssýkta eða eignarfallsstola. Alla hafa fullan rétt til að fallbeygja...
Flest hvorugkynsorð beygjast eftir sterkri beygingu. Dæmi um slík orð eru land, barn, ríki. Þessi orð beygjast þannig:
Nf.et. land barn ríki
Þf. land barn ríki
Þgf. landi barni ríki
Ef. lands barns ríkis
Nf.ft. lönd börn ...
Í Íslenskri orðabók segir að hið „óformlega“ orðalag „að spá í“ geti bæði tekið með sér þolfall og þágufall og þar er ekki gerður greinarmunur á að spá í eitthvað og að spá í einhverju. Þolfallið, „að spá í e-ð“, virðist hljóma eðlilegar þegar um verknað er að ræða, til dæmis „ég er að spá í það að fara í nám í ha...
Upphaflega spurningin hljómaði svona:
Orðatiltækið að bera í bætifláka. Er það komið úr jarðrækt og er bætiflákinn til sem sjálfstæð eining eða er það fláki sem verður bætifláki þegar einhver tekur að sér að bæta helgidaga í reit sem einhver hefur borið illa á?
Í seðlasöfnum Orðabókar Háskólans er elsta heim...
Í fornu máli var algengast að þágufall af töluorðinu tveir væri tveim þótt myndin tveimr komi fyrir. Sænski málfræðingurinn Adolf Noreen taldi að tveim væri gömul tvítölumynd en tveimr væri samræmismynd við þrimr (síðar þremur) og er það mjög sennilegt. Sú mynd þekkist frá því fyrir 1200.
Í nútímamáli eru báð...
Ekkert stendur í lögum um mannanöfn sem bannar það að nafnið Jesús sé notað sem eiginnafn.
Þau ákvæði sem nafn þarf að uppfylla til þess að fara á mannanafnaskrá eru að það fái endingu í eignarfalli og falli að öðru leyti að íslensku hljóðkerfi og stafsetningu. Menn hafa hins vegar skirrst við að gefa nafn sem...
Orðin plús og mínus eru nafnorð að uppruna en eru einnig notuð sem atviksorð í stærðfræði í merkingunni „að viðbættu; að frádregnu“.
Plús er að uppruna karlkynsorð og tökuorð líklega úr dönsku plus. Það á rætur að rekja til latínu plûs „meiri, meira“.
Mínus er sömuleiðis karlkynsorð fengið að láni úr dönsk...
Sögnin að henta í sambandinu e-m hentar e-ð er ópersónuleg og tekur með sér þágufall. Þannig er sagt mér hentar, þér hentar, honum/henni hentar, okkur hentar, ykkur hentar, þeim hentar. Þess vegna er rétt að segja ,,þegar þér hentar"....
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona:Hver er staðan á þágufallssýki í dag? Stendur yfirvöldum á sama? Verður bráðum jafnrétt að segja "mig langar" og "mér langar"?
Önnur spurning um sama efni: Er því mögulegu að vera svo langt leiddum í þágufallssýki að öllu því sem manni mælir sé í þágufalli?Vísindavefurinn ...
Fyrir því er löng hefð að staðarheiti, hvort sem það er bær, borg eða býli, stendur í þágufalli í upphafi bréfs, til dæmis Stykkishólmi, 3. nóvember, Stokkhólmi, 4. nóvember, Hóli, 5. nóvember.
Þetta þágufall er stundum nefnt staðarþágufall eftir latneskri málfræði (dativus loci; locus = staður). Þá er forsetn...
Orðið skúr er eitt þeirra orða sem notað er í tveimur kynjum, annars vegar kvenkyni og hins vegar karlkyni. Beyging orðanna er þessi:
Karlkyn
Eintala
Fleirtala
Kvenkyn
Eintala
Fleirtala
Nefnifall
skúr
skúrar
Nefnifall
...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!