Okkur langar svo að vita hvernig menn komust að því úr hverju jörðin er? Hvernig er vitað úr hverju kjarninn er? Hvernig er það greint?Í stórum dráttum er kjarni jarðar úr járni, möttullinn úr peridótíti og skorpan ýmist úr basalti og graníti. Peridótít er útbasískt berg einkum gert úr ólivíni ásamt pýroxíninu enstatíti og oxíðinu spínli (MgAl3O4); nafnið er dregið af peridot, gimsteins-afbrigði steindarinnar ólivín (Mg,Fe)2SiO4. Jarðskjálftamælingar snemma á 20. öld leiddu í ljós lagskiptingu jarðar í kjarna, möttul og skorpu. Með því að rannsaka hvernig jarðskjálftabylgjur berast um jörðina var hægt að draga ályktanir um eðliseiginleika þessara laga, meðal annars að kjarninn væri úr þungu efni og að innri kjarninn væri fastur en sá ytri fljótandi. Segulsvið jarðar var/er skýrt þannig að kjarninn sé eins konar rafali úr járni.

Lagskipting jarðar og dýpi á mörkum lagamóta.

Hoba loftsteinninn í Namibíu er stærsti heili loftsteinninn sem fundist hefur á jörðinni, talinn um 60 tonn að þyngd, 2,7 m bæði á lengd og breidd og 0,9 m á þykkt.
- ^ E.M. Moores & F.J. Vine 1971. The Troodos Massif, Cyprus, and other ophiolites as oceanic crust: evaluation and implications. Philosophical Transactions of the Royal Society of London. Series A. Mathematical and Physical Sciences. 268: 443-466.
- Yfirlitsmynd: James St. John. (2014). Peridotite mantle xenoliths in vesicular phonotephrite (Peridot Mesa Flow, Middle Pleistocene, 580 ka; Peridot Mesa, San Carlos Volcanic Field, Arizona) 7 (14992925414).jpg. Flickr. Birt undir CC BY 2.0 leyfi. https://flickr.com/photos/47445767@N05/14992925414
- Schematic cross section through the present-day Earth outlining - ResearchGate. Íslenskur texti settur inn af ritstjórn Vísindavefsins. (Sótt 30. 3.2021).
- Namibie Hoba Meteorite 05.JPG. (2006). Wikimedia Commons. Birt undir CC BY-SA 3.0 leyfi. https://commons.wikimedia.org/wiki/File:Namibie_Hoba_Meteorite_05.JPG
Við hér í 7HH í Flataskóla erum að læra um pláneturnar. Okkur langar svo að vita hvernig menn komust að því úr hverju jörðin er? Hvernig er vitað úr hverju kjarninn er? Hvernig er það greint? Hefur einhver borað sig í gegnum jarðskorpuna?Síðasta hluta spurningarinnar er svarað sérstaklega hér: Hefur einhver borað sig í gegnum jarðskorpuna? Á Vísindavefnum er jafnframt að finna fleiri svör um innri gerð jarðar, sjá til dæmis tengd svör.