Andlitið á Mars, sem sást á mynd sem Viking 1 geimfarið tók árið 1976 af Cydoníu-svæðinu, er ekkert annað en vindsorfin hæð og leikur ljóss og skugga.
Á myndinni sést það sem mörgum finnst við fyrstu sýn vera mannsandlit. NASA sendi myndina til fjölmiðla því að menn töldu að hún væri til þess fallin að vekja a...
Á Mars er örþunnur lofthjúpur sem er að mestu leyti úr koltvíildi (95%, einnig kallað koldíoxíð og koltvísýringur), nitri (2,7%, einnig kallað köfnunarefni) og argoni (1,6%) en auk þess finnast önnur efni í minna magni. Vísbendingar um fljótandi vatn á yfirborðinu benda til þess að lofthjúpurinn hafi eitt sinn ver...
Könnunarjeppanum Curiosity var skotið á loft 26. nóvember 2011. Jeppinn á að rannsaka hvort aðstæður á Mars voru einhvern tímann, eða eru jafnvel í dag, heppilegar fyrir örverulíf. Jeppinn lenti á Mars klukkan 05:17:57 að íslenskum tíma þann 6. ágúst 2012 og bárust fyrstu myndir fáeinum mínútum síðar.
Miklu mál...
Rússar (Sovétmenn) gerðu fyrstu tilraunir til að senda geimför til Mars á árunum 1960-1962, en þær mistókust allar. Fyrsta könnunarferð þangað, sem heppnaðist eins og til var ætlast, var farin árið 1964 er bandaríska geimfarið Mariner 4 flaug framhjá hnettinum og náði 20 ljósmyndum af litlum hluta yfirborðsins. Ma...
Hér er einnig svarað spurningu Berglindar Ingu Gunnarsdóttur: Hvað er Mars stór og hve gamall er hann?Aldur Mars er talinn vera nokkurn veginn hinn sami og aldur jarðar og raunar sólkerfisins alls; um 4600 milljónir ára.
Nokkrar tölur um Mars, til upprifjunar, og tölur um jörðina til samanburðar:
MarsJörð
...
Víða á Mars eru greinileg merki um mikla eldvirkni frá ýmsum tímabilum í sögu reikistjörnunnar. Eldfjallagrjót þekur stærstan hluta yfirborðsins, meðal annars þar sem Pathfinder lenti árið 1997 og nú þar sem Spirit-jeppinn lenti á þessu ári.
Eldvirkni á Mars er frekar ólík þeirri eldvirkni sem fyrirfinnst á jör...
Hér er einnig að finna svar við eftirfarandi spurningum:Hvenær verður mannað geimfar sent til annarrar plánetu í sólkerfinu og til hvaða plánetu verður það sent? Hvernig gengur undirbúningur hjá NASA um mannaðar ferðir til Mars?Þegar þetta er skrifað sveima tvö geimför umhverfis reikistjörnuna Mars, Mars Global Su...
Um Dalvíkurskjálftann 1934 er einnig fjallað sérstaklega í svari við tveimur öðrum spurningum sem við bendum lesendum á að kynna sér:
Hvað getið þið sagt mér um Dalvíkurskjálftann 1934?
Hve langt gæti verið þangað til að annar skjálfti á stærð við Dalvíkurskjálftann 1934 kæmi aftur?
Í lok mars 1934 var...
Í heild hljóðaði spurningin um það bil svona:Er hægt að sanna að sameindin CO2 valdi gróðurhúsaáhrifum með því að senda innrauða geislun sem stefnir út í geim og mæla endurkast hennar af CO2 sameindum sem berst aftur til jarðar?
Spurningin ber með sér að spyrjandi veit í hverju gróðurhúsaáhrif koltvíoxíðs (CO2;...
Heimildir eru ekki alveg á einu máli um það hvaða staður í heiminum getur státað af mestri úrkomu en nokkrir staðir koma sterklega til greina.
Bærinn Cherrapunji í héraðinu Meghalaya í Norðaustur-Indlandi er gjarnan nefndur þegar tilgreina á mesta úrkomusvæði jarðar. Skammt frá er annar bær, Mawsynram, sem einn...
Aborri (Perca fluviatilis, e. European perch) er ferskvatnsfiskur sem lifir í vötnum og ám í Evrópu. Útbreiðsla hans af mannavöldum nær þó til fleiri landa, svo sem Ástralíu og Nýja-Sjálands, þar sem hann er vinsæll til sportveiða. Þess háttar ónáttúruleg útbreiðsla getur þó verið varhugaverð þar sem aborrinn er r...
Etna á austurströnd Sikileyjar er hæsta virka eldfjall í Evrópu, um 3.350 metra hátt. Reyndar breytist hæð þess, eins og annarra eldfjalla, þegar eldsumbrot eiga sér stað. Til dæmis var fjallið rúmum 50 metrum hærra á seinni hluta 19. aldar en það var undir lok 20. aldarinnar. Fjallið hefur verið virkt í meira 2,5...
Heimildum ber ekki alveg saman um hversu mörg eldfjöll gjósa eru að meðaltali á ári en algengt er að sjá tölur á bilinu 40 – 60. Á hverjum tíma er talið að það séu á bilinu 10 - 20 eldgos í heiminum.
Á heimasíðu Smithsonian Institution, Global Volcanism Program er að finna ýmsar upplýsingar um eldgos. Þar má ...
Fyrsta tungllendingin fór fram á Kyrrðarhafinu (e. Sea of Tranquility) á 00,67408 breiddargráðu norður og 23,47297 lengdargráðu austur. Staðurinn er merktur inn á myndirnar hér neðar í svarinu.
Kyrrðarhafið var sérstaklega valið því það er fremur slétt svæði. Á því eru hins vegar tiltölulega margir gígar og...
Samkvæmt lista á heimasíðu Sameinuðu þjóðanna eru 56 lönd í Afríku. Átján þeirra teljast til Austur-Afríku, sautján tilheyra Vestur-Afríku, níu lönd mynda Mið-Afríku, sjö eru í Norður-Afríku og sunnanverð Afríka rekur lestina en fimm lönd tilheyra þeim hluta heimsálfunnar.
Á heimasíðunni Global Geografia er ...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!