Skammstöfunin a.m. er stytting á latnesku orðunum ante meridiem, 'fyrir hádegi'. Orðið meridiem er þolfall sem stjórnast af forsetningunni ante og var upphaflega í latínu medi diem. Orðið medi er staðarfall af medius, 'miður' og medius dies (nefnifall) er þá 'miður dagur', það er að segja hádegi. Á sama hátt er p....
Skammstöfunin UTC er notuð fyrir tímakvarða sem á ensku kallast Coordinated Universal Time. UTC er sami tími og miðtími Greenwich (GMT eða Greenwich mean time) en það er einmitt sá tími sem notaður er á Íslandi.
Þegar gefinn er upp tími á ákveðnum stað á jörðinni með því að nota UTC eru notuð + eða – tákn til...
Klukkan 13:22 er sól í hádegisstað í Hveragerði frá 24. til 31. maí.
Svona reiknuðum við það út:
Almanak Háskólans segir okkur að hádegi sé nú í Reykjavík kl. 13:25. En Hveragerði er austan við Reykjavík og þar eð sólin gengur frá austri til vesturs er hún fyrr í hádegisstað þar.
Sólin gengur 360° um jör...
Spyrjandi á við það til dæmis að tímasetning sólseturs færist örar á klukkunni en sólaruppkoma frá degi til dags á vorin, en á haustin færist sólsetrið örar. Þetta er rétt athugað og má sjá það til dæmis í Almanaki Háskólans sem kemur út á hverju ári.
En hér er ekki allt sem sýnist því að nákvæm tímasetnin...
Vísindavefurinn fær stundum spurningar um hvað klukkan sé á hinum ýmsu stöðum í heiminum og um tímamun á milli Íslands og annarra landa. Meðal þeirra spurninga sem okkur hafa borist eru:Hvað er klukkan í Danmörku þegar hún er 12 á hádegi á Íslandi?
Hver er tímamunurinn á milli Noregs og Íslands?
Hvaða tímamunur ...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Ég skil ekki hvers vegna sólarupprásin getur færst fram um aðeins 83 mín frá 1.1. til 8.2. meðan sólarlagið færist aftur um 98 mínútur á sama tíma (tölur úr Almanaki Þjóðvinafélagsins)?
Stutta svarið við þessari spurningu er einfaldlega: Það að vegna þess að hádegið færist til...
Ekki hafa komið fram neinar marktækar vísbendingar um að óveður gangi yfir landið á einum tíma sólarhringsins fremur en öðrum. Sé stormur (hámarksvindhraði yfir 20 m/s) í Reykjavík talinn eftir athugunartímum á tímabilinu 1974 til 2007 fæst eftirfarandi tafla:
AthugunartímiFjöldi tilvika
0...
Orðatiltækið á elleftu stundu á rætur að rekja til Biblíunnar.
Í 20. kafla Matteusarguðspjalls segir Jesús lærisveinum sínum dæmisögu af húsbónda einum sem gekk út snemma morguns í þeim tilgangi að ráða verkamenn til vinnu í víngarði sínum. Vinnudagurinn hjá Gyðingum stóð frá sex að morgni til sex síðdegis. Su...
Fyllri útgáfa spurningarinnar, nær frumgerðinni, er sem hér segir:Þegar Fíleas Fogg var að fara "umhverfis jörðina á 80 dögum" í skáldsögu Jules Verne, uppgötvaði hann í lokin að hann hefði grætt einn dag. Væruð þið til í að útskýra það betur?Hugsum okkur að maður fari í ferðalag til austurs og færist á hverjum 23...
Einfalda svarið við þessu er á þá leið að við viljum í grófum dráttum miða tímann á hverjum stað við sólarganginn, þannig að klukkan sé um það bil 12 þegar sól er hæst á lofti. Vegna kúlulögunar jarðar gerist þetta á mismunandi tímum eftir stöðum.
En þó að þessu sé svarað til getum við haldið áfram að spyrja: A...
Þrjár klukkur koma við sögu þegar fjallað er um mikilvægi þess að hafa rétta klukku; sólarklukka og staðarklukka (sem báðar eru ytri klukkur) og dægurklukka (innri klukka). Þessar klukkur eru ólíkar en tengjast þó innbyrðis.
Sólarklukkan endurspeglar snúning jarðar um sólu en jafnfram líka um möndul sinn. Sólar...
Sólarhringnum er skipt í fjóra hluta:morgundagaftannnótt
Samkvæmt fornri reglu var hverjum hluta síðan skipt í tvær eyktir. Í einum sólarhring eru þess vegna átta eyktir, hver um sig þrjár klukkustundir á lengd.
Í svari Guðrúnar Kvaran við spurningunni Hvaðan er orðið eykt komið? segir að eykt merki þrjár stun...
Í stuttu máli þá mun seinkun klukkunnar á Íslandi ekki fjölga birtustundum sem falla á venjulegan vökutíma, heldur fækka þeim.
Frá árinu 1968 hafa klukkur á Íslandi verið stilltar eftir miðtíma Greenwich og er ekki skipt á milli sumar- og vetrartíma. Þetta þýðir að hádegi í Reykjavík, það er að segja þegar sól ...
Fjallað er um tímabelti í svari sama höfundar við spurningunni Hvernig er bauganet jarðar uppbyggt og hver eru hnit Íslands á hnettinum? Þar kemur meðal annars fram að árið 1884 var ákveðið að taka upp alþjóðlegan staðaltíma sem væri miðaður við núll lengdarbauginn, en hann liggur um Greenwich í Englandi. Þar segi...
Hér er jafnframt svarað spurningu Björgvins Ármannssonar Hver er uppruni orðsins eykt? Hver er skyldleiki þess við önnur orð í íslensku eða öðrum málum?
Orðið eykt er notað annars vegar um þrjár klukkustundir og hins vegar um tímann frá 3.30–4.30. Það finnst einnig í öðrum Norðurlandamálum, til dæmis nýnorsku ø...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!