Sögnin að elda er til í tvenns konar beygingu veikra sagna. Hún beygist annars vegar eftir öðrum flokki veikra sagna og þá í þátíð eldi/elti. Merkingin er ‛fá til að loga, tendra’. Hún er notuð ópersónulega í sambandinu það eldir … ‛það birtir, dagar’ til dæmis það eldir af degi. Í eldra máli var notað...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Sofa rottur á næturnar eða daginn. Ég þarf að fylla í rottuholu utandyra og vill ekki eiga á hættu að loka rottuna inni undir húsinu.
Það er misjafnt hvenær sólahringsins dýr eru virkust. Sum athafna sig helst á nóttunni (e. nocturnal), önnur á daginn (e. diurnal) og svo eru þ...
Stutta svarið er: Af því að þá mundi ríkja dagsbirta á nóttunni og náttmyrkur á daginn, því að sólin er svo miklu bjartari en tunglið. En auðvitað getur enginn bannað okkur að kalla nóttina dag og daginn nótt ef það væri til dæmis samþykkt með miklum meirihluta í þjóðaratkvæði. En líklega er það ekki þetta sem spy...
Eins og fram kemur í svari sama höfundar við spurningunni Ganga djúpar lægðir yfirleitt yfir landið að nóttu til? eru lægðir ekki algengari á einum tíma sólarhrings frekar en öðrum. Úrkoma fylgir oftast lægðakerfum, en ekkert bendir til þess að slík úrkoma falli frekar að nóttu en degi.
Líkur á að snjór bráðni...
Við getum ekki vitað hvort fálka dreymir á nóttunni og þá hvað þá dreymir. Ástæðan fyrir því eru sú sama og fjallað er um í svari við spurningunni Dreymir ketti? - við höfum enga leið til þess að spyrja þá.
Segjum sem svo að hægt væri að gera rannsókn á fálkum sem mundi leiða í ljós að þá dreymdi þegar þeir so...
Amerískar risahveljur (Mnemiopsis leidyi) eru svokallaðar kambhveljur sem lifa við austurströnd Bandaríkjanna og nær útbreiðsla þeirra allt til Vestur-Indía. Það er kannski rangnefni að kalla þær risahveljur, en þær verða ekki nema um 100 mm að stærð.
Líkt og aðrar hveljur er ameríska kambhveljan rándýr og lif...
Minnsta þekkta núlifandi spendýrið er leðurblökutegund sem hefur verið nefnd hunangsblaka á íslensku (Craseonycteris thonglongyai á latínu en Kitti's Hog-nosed Bat og Bumblebee Bat á ensku). Massi hennar er aðeins um 2 g á þyngd; lengd frá trýni að afturenda (hún er skottlaus) er 29-33 mm en lengd framhandleggs e...
Upprunalega hljóðaði spurningin svona:Geta flóðhestar lifað á Íslandi? Ef svo er, er þá hægt að eiga þá svona eins og gæludýr?
Sjálfsagt er hægt að halda flóðhest hér á landi við manngerðar aðstæður innandyra og hluta úr ári utandyra. Flóðhestar virðast að minnsta kosti þrífast ágætlega í dýragörðum víða um heim ...
Jörðin snýst í sífellu um möndul sinn eins og skopparakringla. Ísland snýr þá ýmist að sólu eða frá henni. Þegar við snúum að henni er dagur en þegar við snúum frá henni er nótt; við erum þá í skugga jarðarinnar. Þetta nefnist dægraskipti.
Á hverjum tíma er nótt á helmingi jarðarinnar, það er að segja á þeirri ...
Ef náttúrulegt vatnsrennsli í ám stæðist á við raforkuþörf markaðarins væri engin ástæða til annars en að virkja ár í farvegi sínum án miðlunarlóna. Þessu er hins vegar ekki að heilsa. Hagkvæmast er að mæta misgenginu með því að hámarksafkastageta orkuvera nái nokkurn veginn hámarksþörf markaðarins en uppistöðulón...
Rafsegulóþoli, eða ofurnæmi fyrir rafsegulsviði (e. electromagnetic hypersensitivity) hefur verið lýst, meðal annars af Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) á síðunni Radiation and health.
Einkenni rafsegulóþols eru ósértæk, mismunandi milli einstaklinga og ekki hefur tekist að finna á þeim læknisfræðilegar ...
Í svari við spurningunni Hvort telja vísindamenn að geislun frá þráðlausu neti sé hættuleg eða hættulaus? kemur meðal annars fram að svo lengi sem geislun sé innan viðmiðunarmarka sem mælt er með í löggjöf Evrópusambandsins séu engin greinanleg skaðleg áhrif á heilsu. Þar kemur líka fram að styrkur geislunar frá þ...
Hamstrar eru algeng gæludýr um allan heim. Þeir geta lifað í allt að 12 ár en oftast drepast þeir 5-7 ára. Algengustu sjúkdómar hamstra eru augnsýkingar, maurar og lýs, kvef og lungnasýkingar. Hamstrar éta nýtt gras, hey, hrátt grænmeti og ávexti (athugið að dýrin hér á Vísindavefnum borða ekki, það eru bara menn ...
Til hamstra teljast 18 tegundir spendýra af ættbálki nagdýra (Rodentia) og þær hafa ekki allar sama meðgöngutíma.
Gullhamstur (Mesocricetus auratus, e. golden hamster) er ein vinsælasta hamstrategundin sem gæludýr. Ef spyrjandi á við hana er meðgöngutími hennar um 16 dagar. Gullhamstrar eiga vanalega fimm til n...
Állinn (Anguilla anguilla) byrjar lífsferil sinn í Þanghafinu sem er í suðvestanverðu Norður-Atlantshafi. Hann lifir hins vegar mestan aldur sinn í ósöltu vatni þar sem hann nærist og vex.
Állinn (Anguilla anguilla).
Það má segja að állinn éti allt það sem að kjafti kemur og hann ræður við. Meðal annars leg...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!