Til úlfalda teljast tvær tegundir, kameldýr (Camelus bactrianus) og drómedarar (Camelus dromedarius). Kameldýr eru með tvo hnúða á baki og lifa í Mið-Asíu en drómedarar hafa aðeins einn hnúð og lifa í norðanverðri Afríku og í Arabíu.
Það er algengur misskilningur að hnúðarnir séu fylltir vökva og nýtist þess ve...
Fólk grætur oft þegar eitthvað kemur því í tilfinningalegt uppnám, svo sem þegar það upplifir sorg, gleði eða sársauka. Það er hins vegar ekki vitað nákvæmlega hvers vegna þessi viðbrögð koma fram.
Maðurinn er ekki eina lífveran sem gefur frá sér hljóð við hryggð eða sársauka því rannsóknir hafa sýnt að flest...
Fátt er vitað um uppruna þessa máltækis. Það er ekki að finna í algengum málsháttasöfnum og það er ekki heldur í Íslensk-danskri orðabók Sigfúsar Blöndal frá 1920–1924 sem bendir til að starfsmenn verksins hafi ekki þekkt það. Annars hefðu þeir haft það með. Elsta dæmi Orðabókar Háskólans er úr skáldsögu Halldórs ...
Til þess að reikna bæði flatarmál og rúmmál jarðar þarf að þekkja geisla r hennar (radíus), en geislinn er helmingur þvermálsins. Geisli jarðar við miðbaug er 6378 km. Jafnan fyrir flatarmál kúlu er fjórum sinnum p (pí) margfaldað með r í öðru veldi, en p er hér um bil 3,1416. Flatarmál jarðar er því:
4 x 3,141...
Á heimasíðu Hagstofunnar er að finna upplýsingar um fjölda skráðra ökutækja á Íslandi og má þar sjá tölur fyrir mörg af stærri sveitarfélögum landsins. Því miður eru nýjustu upplýsingarnar frá árinu 2006 en gera má ráð fyrir að bílum hafi fjölgað eitthvað á landinu síðan þá þar sem gengi krónunnar var innflytjendu...
Einfalda, stutta svarið er stutt og laggott: Já, oftast nær í íslensku.
Latneska tegundarheitið á þessum hvíta og fallega fugli er Cygnus cygnus og er það nefnt til dæmis í Íslenskri orðabók, 3. útg., 2002.
Mismunandi orð sem hafa sömu merkingu nefnast í málfræðinni samheiti (e. synonyms). Þótt eiginleg me...
Tunglið lýsir ekki af eigin rammleik heldur er það sólin sem lýsir upp þá hlið tunglsins sem að henni snýr á hverjum tíma. Við sjáum síðan misjafnlega mikið af þessari upplýstu hlið, eftir því hvernig hún snýr miðað við okkur. Þegar tungl er fullt snýr upplýsta hliðin öll að okkur. Jörðin er þá milli sólar og tung...
Samkvæmt orðabókinni okkar er slanguryrðið kexruglaður notað um þá sem eru 'alveg ruglaðir', 'geðveikir' eða 'í vímu'.
Ekki er víst að allir sjái í hendi sér hvernig orðið kex gerir ruglað fólk alveg snarruglað og geðveikt; örugglega finnst sumum að slík orðanotkun sé út í hött og baki eintóm vandræði.
En þ...
Ritheimildir segja frá veru Papa hér á landi áður en norrænir menn komu en að þeir hafi síðan horfið á braut. Þó að vissulega sé hægt að þreifa á gömlum handritum er líklega átt við annars konar áþreifanlegar sannanir.
Gallinn við ritheimildir er sá að þær geta logið eða farið með fleipur, einkum og sér í lagi ...
Við hönnun og lagningu á íslenskum háspennulínum er þess gætt að þær liggi ekki of nálægt öðrum mannvirkjum. Almennt gildir að fjarlægð á milli íbúðarhúss og háspennulínu skuli vera að minnsta kosti 10 metrar og meiri ef línan stendur hærra en mannvirkið. Upplýsingar um leyfilegar fjarlægðir má meðal annars finna ...
Lengi vel var talið að tvær fílategundir væru í heiminum í dag, afríkufíllinn eða afríski gresjufíllinn (Loxodonto africana) og Asíufíllinn (Elephas maximus). Nú álíta fræðimenn hins vegar að skógarfíllinn (Loxodonta cyclotis), sem lifir í Afríku og áður var talinn deilitegund gresjufílsins, sé sérstök tegund.
...
Vatnsmelóna er ávöxtur vatnsmelónuplöntunnar (Citrullus lanatus) en hún er af graskeraætt (Cucurbitaceae) eins og agúrkur, eggaldin og grasker. Margir eru hrifnir af vatnsmelónum enda ávöxturinn ferskur, safaríkur og svalandi. Melónan er gjarnan borðuð ein og sér en einnig er vinsælt að nota hana í salöt eða dryk...
Kynlitningar eru, eins og nafnið bendir til, litningar sem ákvarða kynferði. Strax á fyrstu árum 20. aldar, eftir að erfðalögmál Mendels höfðu verið grafin úr gleymsku og athuganir á litningum fóru í vöxt, urðu menn þess varir að að litningamengi kynjanna eru ekki alveg eins. Athuganir á skordýrum sýndu til dæmis ...
Samkvæmt vefmælingu Modernusar voru tíu vinsælustu svör júnímánaðar á Vísindavefnum árið 2014 þessi hér:
Hvort erum við með augabrúnir eða augabrýr?
Hvað er „vanvirkur skjaldkirtill“ og hvað er til ráða?
Hvaðan er orðið gáll komið í sambandinu „þegar sá gállinn er á henni“?
Hversu margir dóu í heimsstyrjöldi...
Uppruni orðsins brussa í merkingunni 'sver og skessuleg kona' er ekki alveg öruggur. Ekkert sambærilegt orð er þekkt í Norðurlandamálum eða í öðrum nágrannamálum.
Ásgeir Blöndal Magnússon tengir það í Íslenskri orðsifjabók lýsingarorðinu bryssinn 'beysinn, burðugur' og norsku sögninni brysja 'láta mikið, hreyk...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!