Orðið buxur er tökuorð í íslensku úr miðlágþýsku boxe, buxe sem aftur var líklega samandregið úr bocks-hose, þ.e. 'buxur úr geithafursskinni'. Það er þekkt frá 16. öld. Upphafleg merking er líklega 'skálmaflík' og ástæðan fyrir fleirtölunni er sú að flíkin hafði tvær skálmar.
Margir biðja um einar eða tvennar b...
Óákveðna fornafnið báðir er notað um það sem telja má með töluorðinu tveir, tvær, tvö.
Dæmi:
Jón og Sigurður eru vinir. Þeir eru báðir í grunnskóla.
Sigríður og Þóra eru báðar í fimleikum.
Einar og Þóra spila bæði á píanó.
Það er ekki notað með fleirfaldstölunum tvennir, tvennar, tvenn. Þar fer betur á að n...
Orðið buxur er þekkt í málinu frá því á 16. öld. Elsta dæmi í ritmálssafni Orðabókar Háskólans er frá 1576:Prestar skulu ei bera […] fellda understacka, stuttvijdar buxur.
Samkvæmt Ásgeiri Blöndal Magnússyni (1989:96) er orðið fengið að láni úr miðlágþýsku buxe, boxe sem aftur er stytting á *buckhose. Buck í þýs...
Í færeysku er ein notað á sama hátt og í íslensku þegar talan vísar til orðs sem aðeins er notað í fleirtölu, til dæmis einar hosur ‛einar buxur’. Tvennur ‛tvöfaldur, í tvenndum eða samstæðum’ og þrennur ‛þrefaldur, þrískiptur’ eiga sér samsvaranir í grannmálunum.
Fleirfaldstölur eiga sér sam...
Orðið verðlaun er eitt þeirra orða sem ekki eru notuð í eintölu. Með slíkum orðum eru notaðar svonefndar fleirfaldstölur. Þær eru einir, tvennir, þrennir, fernir. Einir er fleirfaldstala um eina einingu, tvennir um tvær einingar og svo framvegis.
Sem dæmi mætti nefna: „Ég á eina skó“. Þá er átt við eitt par af...
Orðasambandið að vera á biðilsbuxunum ‛hugsa til að biðja sér stúlku’ er þekkt í málinu að minnsta kosti frá síðari hluta 19. aldar. Það er einnig notað í yfirfærðri merkingu um að leita til einhvers um aðstoð, oft með uppgerðar elskusemi. Einnig þekkist að vera kominn í biðilsbuxurnar.
Líklegast hafa me...
Upprunalega spurningin var: Hvað þarf mikið landssvæði af bómull til að búa til einar gallabuxur?
Efnið í gallabuxum er bómull. Bómullarplantan er ræktuð víða um heim en stærstu bómullarframleiðendurnir eru Kína, Indland, Bandaríkin, Pakistan og Brasilía. Skilyrði til ræktunar eru afar mismunandi, ekki bara á m...
Þar sem mun minna framboð var á efnum í fatnað á víkingatímanum notuðu víkingarnir það sem hendi var næst, aðallega ull. Konurnar ófu fatnaðinn úr ullinni og bjuggu til buxur og síðar skyrtur fyrir karlmennina en konurnar gengu í síðum kjólum. Auk þess gengu víkingarnir í leðurskóm og með skikkju. Þegar víkingarni...
Flestir kannast vel við hrogn sem oftast er unnt að kaupa úr fiskborðinu í febrúarmánuði. Það eru eggin inni í sekknum sem nefnast hrogn áður en fiskurinn hefur gotið en eftir það kallast þau gota, gytja eða gýta.
Sekkurinn utan um eggin er nefndur hrognabrækur eða hrognabuxur, enda minnir hann á buxur.Færri k...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svo:Ég var í Laugardalslauginni í dag og kom þar auga á skilti fyrir ofan þeytivindu inni í kvennaklefanum. Á henni var útskýrt hvernig maður þurrkar sundfötin en þar stóð eitthvað á þessa leið: „Setjið sundfatið ofan í.“
Þannig að mín spurning er: Er orðið sundföt ekki bara ti...
Fáar dýrategundir eru jafn frjósamar og atlantshafsþorskurinn (Gadus morhua). Rannsóknir hafa sýnt að fjöldi hrogna í eggjasekk þorskhrygnu er á bilinu 4-7 milljónir. Eggjasekkurinn gengur einnig undir nöfnunum hrognasekkur, hrognabuxur og hrognabrækur. Eftir hrygningu yfirgefur hrygnan eggin. Þau fljóta síðan rét...
Bikiní eru tvískipt baðföt kvenna, upphaflega buxur og brjóstahaldari, en nú einnig til í öðrum misefnismiklum útfærslum. Sumar útfærslur hafa sérstakt nafn, til dæmis tankiní sem eru buxur og toppur eða nokkurskonar hlýrabolur. Bikiní eru einnig notuð sem íþróttaföt til dæmis í vaxtarrækt, strandblaki og frjálsum...
Síldin er árstíðabundin þar sem hún hrygnir á ákveðnum stöðum og gengur síðan eftir hrygningu á ætisstöðvar. Á síldarárunum svokölluðu fóru síldveiðar á norsku vorgotssíldinni, eða norsk-íslensku síldinni eins og hún nefnist í dag, fram á vorin og sumrin og var hún því árstíðabundin hérlendis.
Þrír síldarstofna...
Spurningin í fullri lengd hljóðaði svona:
Er til regla til að vita hvort orð er í eintölu eða fleirtölu? Til dæmis orð eins og: Dyr, fólk, hús og fleiri?
Flest nafnorð eru þess eðlis að þau eru bæði notuð í eintölu og fleirtölu. Eintala táknar yfirleitt að um sé að ræða einn einstakling, eitt stykki af einh...
Allmörg orðasambönd eru til í íslensku þar sem orðið grænn er notað. Uppruninn er misjafn og alloft eru þau sótt til dönsku. Sum eru þó heimasmíðuð og er í grænum (hvínandi, logandi) hvelli eitt þeirra. Stunduð er látið nægja að segja í einum grænum og hvelli þá undanskilið. Þarna er grænn áhersluorð sem hugsanleg...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!