Hvernig skyldi standa á því að höfunda/r er stundum ekki getið á riti? Væri þá ekki samt sem áður hægt að finna út hver höfundur er? Og hvernig stendur á því að ekki er ávallt skráð á höfunda sem tilgreindir eru?
Því er til að svara, að höfundar elstu ritverka litu stundum ekki á sig sem höfunda, heldur töldu ...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona: Hvað nær höfundaréttur rithöfunda á skáldsagnapersónum langt aftur í tímann? Mætti ég skrifa bók um Sherlock Holmes?
Í stuttu máli er svarið að finna í 43. gr. höfundalaga (nr. 73/1972) en þar segir að höfundaréttur helst í 70 ár frá andláti höfundar. Miðað er við næst...
Ástæða þess að Suðurskautslandið er talið heimsálfa en norðurskautið ekki, er sú að hið fyrrnefnda er meginland en hið síðarnefnda hafsvæði.
Eins og fram kemur í svari sama höfundar við spurningunni Hvernig eru nöfn heimsálfanna til komin? hefur gengið erfiðlega að finna skilgreiningu á hugtakinu heimsálfa. Þa...
Líklegast er að höfunda Íslendingasagna sé hvergi getið af því að sá sem fyrstur skrifaði þær hafi ekki talið sig höfund þeirra og samtímamönnum hans hafi ekki heldur þótt það skipta máli. Höfundur merkir upphafsmaður, og annaðhvort voru sögurnar byggðar á eldri frásögnum af þeim atburðum sem þær segja frá eða höf...
Um notkun á hugverkum, það er ljósmyndum, bókmenntum, listaverkum og þess háttar, gilda lög um höfundarétt nr. 73/1972. Vert er að gera sér grein fyrir því að réttur höfundar er í reynd tvíþættur. Annars vegar hefur höfundurinn venjulegan eignarrétt á hugverkinu sem hlut, þar á meðal rétt til að selja hlutinn ein...
Hryggdýr skiptast í fimm flokka; spendýr, skriðdýr, fiska, fugla og froskdýr. Salamöndrur ásamt froskum skipa hóp froskdýra og því eru þær hryggdýr. Lesa má meira um salamöndrur í svari sama höfundar við spurningunni Eru salamöndrur eðlur?
Salamandra af tegundinni Ambystoma maculatum.
Það sem allir hópar ...
Áður hefur verið komið inn á þetta efni í svörum sama höfundar við spurningunum Hvernig fjölga fuglar sér? og Hvar geyma fuglar eggin áður en þeir verpa þeim? og er lesendum bent á að kynna sér þau svör.
Frjóvgun hjá fuglum verður innvortis en engu að síður hefur karlfuglinn í flestum tilvikum ekki getnaðarlim...
Í Íslenskri orðabók er orðið stöðuvatn sagt merkja "allstórt vatnsflæmi landi girt á alla vegu, vatn sem stendur allan ársins hring (yfirborð þess jafnhátt yfirborði jarðvatnsins)". Mjög sambærilegar skilgreiningar má finna á enska orðinu ‘lake’ en nánast undantekningalaust er það skilgreint sem vatn umlukið landi...
Metaðsókn var að Vísindavef Háskóla Ísland árið 2015. Samkvæmt gögnum frá Modernus sem rekur samræmda vefmælingu á Íslandi, voru lesendur Vísindavefsins árið 2015 alls 656.126. Notendafjöldinn óx um heil 10% frá árinu 2014, en þá voru lesendur vefsins 596.000.
Elstu gögn um lesendafjölda Vísindavefsins eru frá ...
Sigríður Halldórsdóttir er prófessor í hjúkrunarfræði við Heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri (HA). Rannsóknir Sigríðar hafa meðal annars snúið að grundvallaratriðum góðrar hjúkrunar, umhyggju og umhyggjuleysi í heilbrigðisþjónustunni, þjáningu skjólstæðinga heilbrigðisþjónustunnar og leiðum til að lina ha...
Bókmenning er sá þáttur þjóðmenningar sem einna lengst hefur skipað öndvegissess á Íslandi, hjá lærðum og leikum. Rúnaristur norrænna manna um þær mundir sem Ísland var að byggjast sýna að þar voru læsir menn að verki og þeir voru að skapa eitthvað varanlegt, eitthvað til minnis, eitthvað til upplýsingar fyrir að...
Upplýsingar um höfunda ásamt netföngum þeirra má finna á sama stað og finna má spurningar sem búið er að svara. Þegar komið er á Vísindavefinn er smellt á "Hvers vegna?" og svo smellt á orðið "hér" þar sem nefndar eru upplýsingar um höfunda. Einnig er hægt að komast þangað beint með því að smella hér....
Vísindavefurinn hefur fengið töluvert af spurningum sem tengjast kynþroska á einn eða annan hátt. Til dæmis:
Þegar stúlkur byrja á blæðingum, hversu óreglulegar eru þær?
Hvenær hætta brjóst að stækka?
Hvernig stækka brjóstin?
Á kynþroskaskeiðinu verða ýmsar breytingar á líkamanum vegna áhrifa kynhormóna,...
Fæða er líkamanum nauðsynleg af tveimur meginástæðum. Í fyrsta lagi er hún eldsneyti þar sem hún gefur frumum þá orku sem þarf til að framkvæma efnabreytingar og knýja líkamsstarfsemi eins og vöðvasamdrátt, flutning taugaboða, efnaseyti og efnaupptöku. Í öðru lagi er fæða hráefni því að í henni eru alls kyns nærin...
Fyrirspurnin um hvers vegna bókum sé yfirleitt raðað samkvæmt nafni höfundar en ekki bókar kemur frá ungum lesanda sem greinilega hefur ræktað með sér bókfræðilegan áhuga og veltir vöngum yfir tilverunni. Þótt fyrirspurnin sjálf kunni að virðast einföld er þó ekki hægt að svara henni með einni setningu.
Til þe...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!