Sigríður G. Suman er dósent við Raunvísindastofnun Háskóla Íslands. Fræðasvið hennar er ólífræn efnafræði. Sigríður hefur unnið margvísleg verkefni í tengslum við efnahvatanir, málmdrifin lyf og virkjun smásameinda og umbreytingu þeirra í gagnleg efni.
Efnahvatanir eru efnahvörf sem eru nýtt til þess að búa ti...
Allra elstu eldfjöllin á Íslandi eru kulnuð eldfjöll á jöðrum landsins. Á sínum tíma voru þetta virk eldfjöll, en þar sem landið gliðnar á hverju ári um sem nemur um 2 cm hafa fjöllin smám saman færst frá gosbeltinu. Ármann Höskuldsson fjallar um þetta í svari sínu við spurningunni Af hverju eru sum eldfjöll á Ísl...
Áður en mennirnir fóru að senda geimför til að rannsaka hinar reikistjörnur sólkerfisins, þekktum við aðeins jarðnesk eldfjöll. Nú vitum við að jörðin er ekki eini eldvirki hnöttur sólkerfisins; hvað þá sá eldvirkasti.
Til að byrja með skulum við ferðast til Merkúrs. Í dag vitum við einfaldlega of lítið um Merk...
Ætihvönn er ein merkasta lækningajurt Íslandssögunnar en hvönnin var notuð á Íslandi allt frá landnámi. Ætihvönnin var vel þekkt meðal fyrstu landnema á Íslandi. Auk þess að vera mikilvæg matjurt á Norðurlöndum og Bretlandseyjum var lækningamáttur hvannarinnar vel þekktur meðal norrænna manna. Ætihvönn óx einnig s...
Það er vel þekkt að þegar hausinn er höggvinn snögglega af hænu þá getur hún hlaupið rösklega í burtu. Það sama gildir vitanlega líka um hana!
Ástæðan fyrir þessu er sú að viðbrögð í mænunni eru ennþá virk í nokkurn tíma eftir afhausunina og hænan getur þess vegna staðið og hlaupið. Hjartað slær jafnvel enn eft...
Sögnin að smíða telst til svokallaðra veikra sagna sem mynda þátíð með tannhljóðsviðskeyti: (ð, d eða t). Þannig er þátíð sagnarinnar smíða (með tannhljóðsviðskeytinu -ð-):
Eintala
1. persónasmíða-ði
2. persónasmíða-ðir
3. persónasmíða-ði
Fleirtala
1. persónasmíðu-ðum
2. persónasmíðu-ðuð
3. persó...
Hér er svarað eftirtöldum tveimur spurningum:
Hvernig framkalla ofskynjunarlyf á borð við LSD ofskynjanir? Þ.e.a.s. hvernig verka þau á heilann?(spyrjandi: Hálfdán Pétursson)Hvað er ofskynjun? (spyrjandi: Ágústa Arnardóttir)
Ofskynjun (hallucination) er þegar fólk skynjar eitthvað sem ekki á sér stoð í raunver...
Jón Snædal hefur unnið mestan sinn starfsaldur á öldrunarlækningadeild Landspítalans en meginviðfangsefni hans hafa verið Alzheimers-sjúkdómur og aðrir sjúkdómar sem valda heilabilun. Hann hefur samhliða starfi sínu stundað vísindarannsóknir í samvinnu við innlenda og erlenda aðila. Rannsóknarstörf hans hófust á t...
Víða á Mars eru greinileg merki um mikla eldvirkni frá ýmsum tímabilum í sögu reikistjörnunnar. Eldfjallagrjót þekur stærstan hluta yfirborðsins, meðal annars þar sem Pathfinder lenti árið 1997 og nú þar sem Spirit-jeppinn lenti á þessu ári.
Eldvirkni á Mars er frekar ólík þeirri eldvirkni sem fyrirfinnst á jör...
Eins og sést á kortinu hér fyrir neðan er jarðvarmi í Japan eins og annars staðar þar sem virk eldfjöll eru:
Í eldfjallalöndum eins og Japan, Indónesíu, Papúa Nýju-Gíneu, Filippseyjum, Mexíkó, Nýja-Sjálandi, Bandaríkjunum og Ítalíu eru mörg svonefnd háhitasvæði sem oft eru nýtt til raforkuvinnslu.
Jarðhita...
Það eru til margar gerðir af fjöllum; há og lág, brött og aflíðandi, hvöss og slétt að ofan, dökk fjöll og ljós, stök og í fjallgörðum og svona mætti lengi telja. Ástæðan fyrir þessum fjölbreytileika er sú að fjöllin hafa myndast við mismunandi aðstæður, úr mismunandi kviku og síðan er mismunandi hvernig náttúruöf...
Kraftmestu jarðhitasvæði heims eru í löndum þar sem eru virk eldfjöll. Hér á landi eru kraftmestu jarðhitasvæðin, sem við köllum háhitasvæði, á gosbeltum landsins þannig að hvert háhitasvæði tengist ákveðinni eldstöð í gosbeltunum. Í eldfjallalöndum eins og Indónesíu, Japan, Papúa Nýju-Gíneu, Filippseyjum, Mexík...
Upprunalegu spurningarnar hljóðuðu svona:
Hvaða ár kemur næst eldgos? Eru væntanleg eldgos á Íslandi?
Eldgos gera oft og tíðum boð á undan sér. Aukin jarðskjálftavirkni, landris og breytingar á jarðhita og gasútstreymi eru alltíðir fyrirboðar eldgosa. Ekkert er þó algilt í því efni.
Sum eldfjöll gjósa á...
Hér er jafnframt svarað spurningum sama efnis frá Elsu Hlín Einarsdóttur og Önnu K. Jónasdóttur.
Ný orð eru sífellt að bætast í málið. Mestur hluti þeirra er af innlendum rótum runninn, en sum eru tökuorð, fengin að láni úr öðrum málum og löguð að íslensku málkerfi. Sum orðanna eru búin til meðvitað og í ákveðnum...
Samkvæmt lista á heimasíðu Veðurstofu Íslands og að viðbættu gosinu í Fagradalsfjalli sem hófst í mars 2021 eru eldgos á 20. og 21. öldinni alls 45 talsins, þar af 25 gos síðustu 50 árin og 7 á þessari öld.
Eldgos í Fimmvörðuhálsi í mars 2010.
Að meðaltali hefur verið eitt eldgos tæplega þriðja hvert ár frá 1...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!