Sólin Sólin Rís 05:38 • sest 21:17 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 00:00 • Sest 00:00 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 08:06 • Síðdegis: 20:29 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 02:01 • Síðdegis: 14:15 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvað eru holdýr og hvar lifa þau?

Jón Már Halldórsson

Holdýr (Cnidaria) er fylking dýra sem telur yfir 11.000 tegundir og eru meðal frumstæðustu fjölfruma dýra. Holdýr finnast í öllum heimsins höfum, þau eru algeng í heitum sjó en finnast líka í köldum sjó nærri heimskautum. Búsvæði þeirra er víðfemt, þau lifa á grunnsævi við strendur, mynda kóralrif, svífa um í opnu hafi, finnast á margra kílómetra dýpi auk þess sem nokkrar tegundir lifa í ferskvatni. Holdýr eru rándýr og veiða sviflægar lífverur eins og sviflæg krabbadýr, lirfur og önnur smádýr, en eru sjálf étin af til dæmis fiskum, sjávarskjaldbökum og fuglum.

Holdýr hafa geislótta líkamsgerð (e. radical symmetry) og eru aðallega á tveimur formum. Annars vegar eru holsepar sem eru fastir við botninni eða undirlagið og hins vegar hveljur sem svífa eða synda um vatnsmassann.

Holdýr hafa aðeins eitt op sem er bæði munnur og endaþarmur. Umhverfis opið eru armar með stingfrumum eða brennifrumum sem dýrið notar bæði til fæðuöflunar og sér til varnar. Í svörum sama höfundar við spurningunum Úr hverju eru marglyttur? og Hvað éta marglyttur og hvernig fara þær að því að veiða? má lesa meira um fæðuöflun og líkamsgerð og má yfirfæra það sem þar kemur fram á önnur holdýr en marglyttur.

Marglyttur er einn flokkur holdýra.

Marglyttur er einn flokkur holdýra.

Heimildir og myndir:

Aðrar spurningar um holdýr:
  • Hvað eru holdýr?
  • Eru þið með myndir af holdýrum?
  • Hvað eru marglyttur?
  • Hvað eru armslöngur?

Höfundur

Jón Már Halldórsson

líffræðingur

Útgáfudagur

16.4.2026

Spyrjandi

Alexandra Lea, Karl Ívan, Anna Sveinbjörnsdóttir, Kjartan Benjamínsson, Agnes Eyþórsdóttir

Tilvísun

Jón Már Halldórsson. „Hvað eru holdýr og hvar lifa þau?“ Vísindavefurinn, 16. apríl 2026, sótt 20. apríl 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=88040.

Jón Már Halldórsson. (2026, 16. apríl). Hvað eru holdýr og hvar lifa þau? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=88040

Jón Már Halldórsson. „Hvað eru holdýr og hvar lifa þau?“ Vísindavefurinn. 16. apr. 2026. Vefsíða. 20. apr. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=88040>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...