Stór hópur manna tekur þátt í að svara spurningum á Vísindavefnum. Langflestir þeirra eru vísindamenn eða háskólakennarar eins og spyrjandi ýjar að en einnig eru í hópnum háskólanemar og ungir menn sem eru á leið í háskóla með góðan undirbúning. Öll svör á vefnum eru lesin yfir áður en þau eru birt, bæði með tilli...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Hvaða skefjar er átt við þegar eitthvað er skefjalaust og af hverju er orðið aðeins haft í fleirtölu?
Orðið skefjar er fleirtöluorð eins og ýmis önnur, til dæmis refjar (vilja mat sinn og engar refjar). Skefjar merkir ‘hörð meðferð; (fast) aðhald, takmörkun; rifrildi; móðganir...
Samkvæmt stjórnarskrá lýðveldisins Íslands hefur Alþingi eftirfarandi hlutverk:
Alþingi fer með löggjafarvaldið, ásamt forseta Íslands (2. grein).
Alþingi fer með fjárstjórnarvald (40. og 41. grein).
Alþingi ræður skipun ríkisstjórnarinnar (1. grein).
Alþingi veitir framkvæmdarvaldinu aðhald (39., 43. og 54. g...
Vísindamenn telja að það dýr sem hafi besta lyktarskynið sé fiðrildi af ættbálknum Lepidoptera. Fremstur á meðal jafningja í ættbálknum hvað lyktarskyn varðar er karldýr keisarafiðrildisins (Eudia pavonia) en lyktarskyn þess er gríðarlega næmt.
Keisarafiðrildið hefur 55 til 75 millimetra vænghaf en kvendýrin er...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Ég var að lesa um "þar hitti skrattinn ömmu sína" en ég hef alltaf heyrt það notað í merkingunni að hitta ofjarl sinn, einhver klárari, séðari, einhvern sem getur rassskell mann. Er það rétt?
Mig langar líka að fá að vita um "til skamms tíma". Það virðist vera mjög skipt milli ...
Leiðtogar kirkjunnar á fyrstu öldum kristninnar kölluðust patríarkar sem þýðir í raun eins konar æðstu biskupar. Sat einn í Róm, annar í Jerúsalem, sá þriðji í Antíokkíu og hinn fjórði í Konstantínópel þar sem nú heitir Ístanbúl. Stjórnaði hver sínu svæði Rómaveldis og þar með kirkjunnar.
Patríarkinn í Róm nefn...
Hlutverk þingmanna á Íslandi er margþætt. Það helgast af því að Alþingi fer með löggjafarvaldið og á Alþingi sitja kjörnir fulltrúar stjórnmálaflokka. Auk þess er Ísland þingræðisríki sem þýðir að engin ríkisstjórn situr nema hún hafi stuðning meirihluta þingmanna og oftast nær koma ráðherrar úr röðum þingmanna. Þ...
Það verður seint sagt að konur hafi notið mikillar virðingar í Grikklandi hinu forna. Margt af því sem Grikkir töldu einkenna konur og vera kvenlegt mátu þeir lítils; margt af því sem þeir mátu lítils töldu þeir kvenlegt. Almennt var staða kvenna bág, þær höfðu engin pólitísk réttindi og nutu á engan hátt jafnræði...
Samkvæmt skýrslum SÁÁ mun láta nærri að 16% Íslendinga fari einhvern tíma ævi sinnar í gegnum vímuefnameðferð, eða nærri einn af hverjum 6. Þess utan er vitað að ekki leita allir sér hjálpar þótt þeir lendi í vanda af völdum vímuefnaneyslu, þannig að jafnvel er hægt að búast við að enn hærra hlutfall Íslendinga sé...
Sáðskipti er það kallað þegar land er unnið (plægt og herfað) árlega eða með fárra ára millibili og sáð nýrri tegund nytjajurta hvert sinn.
Hingað til hefur hugtakið sáðskipti verið nánast óþekkt hérlendis Ástæðan er meðal annars sú að fáar nytjajurtir geta vaxið að gagni hér á landi. Ræktun á Íslandi hefur snú...
Stutt og einfalt svar við þessari spurningu er nei.
Um ráðningu ríkisstarfsmanna gilda lög nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Þau taka til allra þeirra sem ráðnir eru, settir eða skipaðir í störf í þágu ríkisins. Lögin gilda þó ekki um þjóðkjörna fulltrúa, starfsmenn félaga sem eru einkaré...
Orðið lýðræði getur annars vegar snúið að því hvernig grunnstofnunum er fyrir komið í samfélaginu og hvernig fólk velur valdhafa eða skiptir um þá. Einnig getur lýðræði snúist um það hvernig taka skuli ákvarðanir í hópi fólks. Í svarinu er einnig fjallað um svonefnt fulltrúalýðræði í samanburði við beint lýðræði. ...
Maður byrjar á því að fá her manns til að stela öllu steini léttara. Þá eru aðeins eftir steinar og það sem er þaðan af þyngra en þó gæti legið fiskur undir steini á stöku stað. Helga eða heilaga steininn má síðan finna með því að berja höfðinu við steininn, það er að segja alla steinana þar til sá rétti finnst. R...
Fljótlega eftir að menn fóru að búa saman í samfélögum hafa fyrstu reglurnar tekið að mótast. Erfitt er að segja nákvæmlega til um hvenær þetta gerðist enda voru fyrstu reglurnar eflaust sjálfsprottnar og óformlegar. Eftir því sem samfélögin stækkuðu og urðu flóknari jókst þörfin fyrir skýrari reglur sem yrði fylg...
Upphaflegu spurningarnar voru eftirfarandi:
Hversu rösklega gengu króatísk stjórnvöld fram í þjóðernishreinsunum á 10. áratug 20. aldar? Hafa króatísk stjórnvöld sýnt iðrun og yfirbót, t.d. með því að bjóða burtreknu fólki að flytja aftur heim til sín?
Undanfari þjóðernishreinsana er þjóðernishyggja sem komin ...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!