Ástæðu þess að samsett orð eru oftar en áður skrifuð í tveimur orðum má rekja til ensku. Orð eins og menntamálaráðuneyti og unglingadrykkja eru samsett í íslensku en sambærileg orð í ensku eru skrifuð sundur slitin. Í 34. grein reglna um stafsetningu segir í 12. kafla:Stofnsamsetningar skal rita sem eina heild. Go...
Upprunalega spurningin var svona: Hvaðan kemur R-ið í orðinu „lánardrottinn“? Samkvæmt Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls, er bókstafinn R hvergi að finna í beygingu orðsins „lán“ . Hvernig stendur þá á að þetta er komi upp þarna í orðinu „lánardrottinn“? Ætti það ekki að vera „lánadrottinn“, eða jafnvel „lánsdr...
Samsett orð sem vísa til ungs aldurs á einhvern hátt eru flest stofnsamsett, það er notaður er stofn orðsins ungur til þess að mynda fyrri lið samsetts orðs. Einfaldast er að finna stofn lýsingarorða í nefnifalli kvenkyni. Dæmi um samsetningar með ung- að fyrri lið en barn að síðari lið eru ungbarnadauði, ungbarna...
Í mæltu máli eru náttúruhamfarir óviðráðanlegir stóratburðir í náttúrunni, helst þeir sem valda tjóni eða mannsköðum. Samkvæmt Orðabók Háskólans kemur orðið fyrst fyrir snemma á 20. öld, hjá rithöfundinum Guðmundi Kamban. Eitt dæmi um orðið í Orðabókinni er: „Hlutverk Almennu deildarinnar er að bæta meiri háttar t...
Orðið blýantur er tökuorð úr dönsku blyant. Þetta hét upphaflega á dönsku blyerts, sem er blýmálmur, það er að segja grafít, en danska orðið varð fyrir áhrifum frá orðinu blyant sem notað var um dýrmætt silkiefni og lagaði sig að því. Orðið yfir silkiefni er fengið að láni í dönsku úr frönsku blialt, bliault.
...
Spurningin í fullri lengd var:
Hvers vegna skrifar maður slétt tala í tveimur orðum en oddatala í einu orði?
Slétt tala ‚heil tala sem 2 gengur upp í‘ og oddatala ‚heil tala sem 2 gengur ekki upp í‘ eru þekkt hugtök í stærðfræði. Fyrra hugtakið er orðasamband í íslensku og því ritað í tvennu lagi en hið síð...
Þessi mynd var tekin um tíuleytið.Til að takast á við þessa spurningu má spyrja hvort orðin „tíu“ og „leytið“ hefðu skýrt setningafræðilegt hlutverk sem tvö aðskilin orð.
Dæmið kann að skýrast sé „tvö“ sett í stað „tíu“ svo út fengist setning á borð við „Jón horfði frá tvö leytinu.“ „Leytinu“ tekur hér þágufall...
Í íslensku er hægt að mynda samsetningar á þrjá vegu:Fast samsett orð
Laust samsett orð
Bandstafssamsetning
Með fast samsettu orði er átt við að notaður sé stofn fyrri liðar án beygingarendingar. Sem dæmi mætti nefna: snjó-bretti, hest-vagn, sól-bruni, borð-fótur.
Í laust samsettu orði stendur fyrri liður ...
Allt efni í heiminum er samsett úr örsmáum einingum sem nefnast öreindir. Jafnvel minnstu hlutir í umhverfi okkar innihalda aragrúa öreinda og það gerir okkur erfitt fyrir að mæla stærð öreindanna sjálfra. Þegar allar venjulegar mælistikur eru mun stærri en það sem á að mæla verðum við að nota óvenjulegar aðferð...
Orðið misseri merkir einfaldlega hálft ár eða sex mánuðir en er stundum notað um skemmri tímabil sem markast af árstíðunum. Kennsluári í háskóla er til dæmis skipt í tvö misseri, haustmisseri og vormisseri.
Víða erlendis skiptist háskólaárið í tvö semester. Það orð er dregið af latneska orðinu 'semestris' sem e...
Síðari samsetningarliður lýsingarorðsins bráðger, það er -ger, er leiddur af stofni sagnarinnar að gera og er algengur í myndun lýsingarorða, til dæmis hálfger, grófger, dæmiger, alger, fullger, stórger, smáger og fleiri.
Yfirleitt eru til hliðarmyndir með síðari liðnum -gerður (lýsingarhætti þátíðar) af lýsin...
Fjögurra atkvæða eiginnöfn eru nokkuð algeng í íslensku. Er þá oftast um nöfn að ræða sem sett eru saman af tveggja atkvæða forlið og tveggja atkvæða síðari lið. Sem dæmi mætti nefna forliðina Aðal- og Sigur-:
AðalbergurSigurfinnurSigurjóna
AðalgerðurSigurgarðurSigurlaugur
AðalgunnurSigurgesturSigurlína
Aðalhe...
Nafnorðið úlfúð merkir ‘fjandskapur, óvinátta’. Það er samsett úr úlfur og úð ‘hyggja, hugarfar, hugð’, eiginlega ‘sá sem hefur hugarfar úlfs’.
Samkvæmt Íslenskri orðsifjabók Ásgeirs Blöndal Magnússonar (1989:1081) er orðmyndin orðin til í áherslulausum viðliðum samsettra orða, það er orðið til úr hugð sem aftu...
Orðið fjós er mjög gamalt í málinu. Það var upphaflega samsett orð, *fē-(h)ūs sem dróst saman og varð fjós við það að ē, sem fór næst á undan uppmælta sérhljóðinu ū varð að hálfsérhljóðinu -i- sem síðar varð að -j-.
Upphaflega var orðið fjós samsett orð, fé(h)ús.
Fjósið var notað fyrir stórg...
Mælifell mun vera svokallaður líparítgúll, myndaður í eldgosi seint á ísöld. Bergkvikan var svo seig að hún hlóðst upp yfir gosopinu en rann ekki í burtu sem hraun. Mælifell er samsett úr tveimur kvikugerðum, ljósari og dekkri. Ljósari gerðin myndar meginhluta fjallsins, og í henni eru flygsur af hinni dekkri,...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!