Leit á vefnum

Niðurstöður leitar - 44 svör fundust

category-iconJarðvísindi

Hvað eru Vatnsdalshólar í Austur-Húnavatnssýslu margir?

Stutta svarið Samkvæmt talningu frá árinu 2018, sem er byggð á gögnum sem aflað var með dróna og síðan unnin áfram í landupplýsingakerfi, eru hólarnir í Vatnsdal annað hvort 729 eða 1836. Talan fer eftir því hvaða viðmið er notað. Aðrar aðferðir eða önnur viðmið geta gefið aðra niðurstöðu. Lengra svar Því...

category-iconLandafræði

Hvað eru margar eyjar í Breiðafirði?

Í svari Björns Einars Björnssonar og Gunnars Dofra Ólafssonar við sömu spurningu segir meðal annars:Innan til, þar sem hann er grynnri og mjórri, eru nær óteljandi eyjar, um það bil 2700-2800 með einhverjum gróðri sem þrífst á landi, og auk þess fjöldamörg sker og boðar.Ekki þótti öllum það svar nægjanlegt og því ...

category-iconStjarnvísindi: sólkerfið

Hvað eru margar stjörnur í sólkerfinu?

Í sólkerfinu okkar er aðeins ein stjarna, sólin. Hún er því jafnframt stærsta stjarnan. Í sólkerfinu eru líka átta reikistjörnur sem flestar hafa fylgitungl, jafnvel mörg. Einnig má finna óteljandi smástirni, heilt smástirnabelti, halastjörnur og loftsteina. Reikistjörnurnar ganga um sólina, mishratt eftir því ...

category-iconUnga fólkið svarar

Hvað eru eyjarnar á Breiðafirði margar?

Breiðafjörður er annar stærsti flói landsins. Mynni hans er 70 km á breidd. Innan til, þar sem hann er grynnri og mjórri, eru nær óteljandi eyjar, um það bil 2700-2800 með einhverjum gróðri sem þrífst á landi, og auk þess fjöldamörg sker og boðar. Ýmsar þessara eyja voru byggðar fyrrum en langflestar þeirra eru nú...

category-iconLandafræði

Hvað eru margar eyjar í heiminum?

Það er gjörsamlega ómögulegt að segja til um hversu margar eyjar eru á jörðinni allri eins og fram kemur í svari sama höfundar við spurningunni Hvað eru mörg lönd til í heiminum ef eyjar eru taldar með? Þar segir:Það er meira að segja deilt um það hversu mörg meginlöndin eru hvað þá að það sé hægt að segja til um ...

category-iconStjarnvísindi: alheimurinn

Hvað eru margar stjörnur í geimnum?

Þessari spurningu má skipta í tvennt og spyrja annars vegar hversu margar stjörnur við sjáum á næturhimninum og hins vegar hversu margar stjörnur eru í öllum alheiminum. Þótt stjörnurnar á himninum virðist næstum óteljandi eru í raun "aðeins" um 6000 stjörnur sem hægt er að greina með berum augum, við bestu aðs...

category-iconFornleifafræði

Getið þið greint þessar rúnir sem ég lét tattúvera á mig?

Spyrjandi lét mynd fylgja með spurningunni auk þessarar skýringar: Þannig er til komið að þetta er letur sem einn húðflúrari notar í sérstökum tilfellum (segir hann) en þetta tjáði hann mér að væru Valhallar-rúnir sem ég veit ekki hvort séu til. En þetta er ég með flúrað á mig. Önnur deili ku ég ekki vita. ...

category-iconHeimspeki

Hvað er kínversk lífsspeki?

Ekki er fyllilega ljóst hvers kyns svar er hægt að gefa við þessari spurningu. Við hvað er til dæmis átt við með hugtakinu „lífsspeki“? Er það einhvers konar samþjöppuð viska sem unnt er að tjá í örfáum orðum? Er þá gert ráð fyrir því að til sé einhver ein kínversk lífsspeki, líkt og svarið „42“ sem gefið var við ...

category-iconHeimspeki

Hvernig er sönnun Pascals á því að betra sé að trúa á Guð?

Í riti sínu Pensées (grein 418) segir Blaise Pascal (1623-1662): Annað hvort er Guð til eða hann er ekki til. En hvort eigum við að halda? Skynsemin getur ekki skorið úr. Á milli þessara tveggja kosta er ginnungagap og úti í óendanleikanum er hlutkesti varpað. Hvor hliðin kemur upp? Á hvað ætlar þú að veðja? S...

category-iconSagnfræði: Íslandssaga

Hver var Jón Ólafsson Indíafari og hvers konar ferðasögu skrifaði hann?

Talið er að Jón Ólafsson (1593-1679) sem varð svo frægur að komast alla leið til Indlands, hafi skrifað sögu sína um 1660. Þar eru óteljandi skemmtilegar og lifandi frásagnir af því sem fyrir augu hans og eyru bar. Jón var ævintýragjarn og yfirgaf heimaslóðir sínar á Vestfjörðum árið 1615 þegar hann tók sér far me...

category-iconJarðvísindi

Hvað var gert við alla öskuna sem kom upp í gosinu á Heimaey 1973?

Þann 23. janúar 1973 hófst eldgos á Heimaey og stóð það í fimm mánuði. Í gosinu komu upp um 0,25 km3 af gosefnum sem voru að mestu hraun. Gos svo nærri byggð hafði margvíslegar afleiðingar í för með sér eins og lesa má um á vefsíðunni Heimaslóð - Heimaeyjargosið. Þar segir meðal annars: Það voru þó einhverjir ...

category-iconJarðvísindi

Hvenær kemur Vatnajökull fyrst fyrir í heimildum?

Einnig var spurt:Af hverju heitir Vatnajökull þessu nafni? Nafnið Vatnajökull, sem heiti á samfelldri ísbreiðu suðaustanlands, kemur fyrst fram í Ferðabók Sveins Pálssonar frá 1791-97.[1] Sveinn segir hann nefndan Vatnajökul vegna hinna hart nær óteljandi elfa, sem eiga upptök í honum. Munnmæli um stóran naf...

category-iconFöstudagssvar

Já, en hvað eru eyjarnar á Breiðafirði margar?

Þetta svar er í flokknum "föstudagssvar" enda samið á föstudegi. Föstudagssvör eru í léttari dúr en önnur. Við vitum ekki betur en að við höfum svarað spurningunni um fjölda Breiðafjarðareyja eftir því sem best er vitað. Við nefndum töluna 2700-2800, gátum heimilda fyrir henni og vísuðum til þeirra. Við sjáum e...

category-iconTölvunarfræði

Hvað er hlutbundin forritun og til hvers er hún notuð?

Hlutbundin forritun (e. object-oriented programming) er fyrst og fremst heiti yfir ákveðnar forritunaraðferðir sem gjarnan er stillt upp á móti ferlislegri forritun (e. procedural programming). Forritunarmál eins og Smalltalk, Java og C++ styðja hlutbundna forritun, meðan önnur, svo sem C, Pascal og Basic, gera þa...

category-iconTölvunarfræði

Hver er munurinn á vefsíðuheitunum: .asp , .htm , .html, .php o.s.frv.?

Þegar vafrað er um netið sendir vafrinn fyrirspurn til netþjóns (e. webserver) sem túlkar fyrirspurnina, vinnur úr henni og sendir niðurstöðu til baka til vafrans, venjulega á HTML-formi. HTML (Hyper Text Markup Language) er samsafn skipana um hvernig vafrinn eigi að birta heimasíðuna, til dæmis hvar, hvernig og h...

Fleiri niðurstöður