Ljósgjafinn sem um er spurt er engan veginn venjulegur heldur lýsir hann að mestu á útfjólubláa öldulengdarbilinu en lítið á því sýnilega. Ljóseindir á þessu bili hafa meiri orku en ljóseindir í sýnilegu ljósi. Ljósgjafar af þessu tagi ganga undir nokkrum enskum nöfnum: black light, Wood's lamp, eða bara UV lamp (...
Þegar útfjólublátt ljós fellur á húðina örvar það myndun litarefnisins melaníns í litfrumum og við verðum brún. Viðbrögð húðarinnar við útfjólubláum geislum eru háð afli geislanna en óháð uppsprettu þeirra. Húðin verður þess vegna fyrir sömu áhrifum hvort sem útfjólubláu geislarnir koma frá sólinni eða einhverju h...
Ljós og rakabreytingar eru meðal þeirra umhverfisþátta sem geta valdið skemmdum á safnkosti. Þar á meðal eru ýmsar litabreytingar af völdum ljóss: gripir geta upplitast, dökknað eða gulnað. Hiti frá ljósi getur einnig valdið ofþornun og stökknun ýmissa efna. Gripir sem eru sérstaklega viðkvæmir fyrir ljósskemmdum ...
Útfjólublá geislun er rafsegulgeislun með styttri bylgjulengd og hærri orku en sýnilegt ljós. Við sjáum ekki útfjólubláa geisla með berum augum en sumir fuglar, fiskar og skordýr geta greint þessa geislun.
Í rófi rafsegulbylgna er útfjólublá geislun milli sýnilegs ljóss og röntgengeislunar. Bylgjulengd útfjólub...
Augu okkar eru næm fyrir ljósi á öldulengdarbilinu 400-700 nanómetrar (nanómetri er táknaður með nm og er einn milljónasti hluti úr millimetra), og því köllum við þetta öldulengdarbil sýnilegt ljós. Geislun á stystu öldulengdunum skynjum við sem fjólublátt ljós, þá tekur við blátt, grænt og gult og að lokum rautt ...
Örbylgjur eru rafsegulbylgjur með lægri tíðni en sýnilegt ljós. Örbylgjur eru hluti af rafsegulrófinu en eins og fram kemur í svari við spurningunni Eru rafsegulbylgjur frá farsímum og öðrum raftækjum skaðlegar heilsunni eða erfðaefninu? þá má í grófum dráttum skipta rafsegulrófinu niður á eftirfarandi hátt:
Út...
Litirnir eru í raun og veru óendanlega margir en við sjáum þá ekki alla. Tilraunir á sjónskynjun manna benda hins vegar til þess að mannsaugað geti greint á milli einnar til 10 milljóna lita.
Sum skordýr og fuglar gera greinarmun á litum sem við sjáum ekki og greina einnig útfjólublátt ljós. En þá stendur eftir...
Í svari við spurningunni Hvað eru litir? kemur fram að samkvæmt skilningi eðlisfræði og stærðfræði eru litir óendanlega margir. Tilraunir á sjónskynjun manna benda hins vegar til þess að mannsaugað geti greint á milli einnar og tíu milljóna lita.
Samkvæmt þessu eru litirnir augljóslega fleiri en við sjáum.
S...
Vitað er að sum skordýr, fuglar og fiskar geta greint útfjólublátt ljós. Auk þess er talið að til dæmis fuglar og sum skordýr geri greinarmun á litum sem við mannfólkið sjáum engan mun á. Er spurningunni þar með svarað? Nei, líklega ekki. Það þarf ekki að vera að þessi dýr sjái það sem við köllum liti þótt þau sjá...
Aðrir spyrjendur eru nokkrir nemendur 7. bekkjar Lágafellsskóla:Harpa Methúsalemsdóttir, Tómas Helgi Valdimarsson, Kristín Helga Hermannsdóttir, Arnór Snær Guðmundsson, Karen Gústavsdóttir, Alex Jökulsson
Við höfum áður fjallað um litinn á sólinni, til dæmis af hverju hún verður gul og síðan rauðleit eftir því s...
Okkur er ekki kunnugt um að skordýr sjái allt í bláu. Þekkt er þvert á móti að litasjón kemur fyrir hjá skordýrum í flestum ættbálkum enda kemur hún sér vel fyrir þau. Almennt hafa skordýr þó betri næmni fyrir bláa hluta litrófsins og nær sjónsvið þeirra í sumum tilfellum yfir í útfjólublátt. Þannig sjá þau útfjól...
Flestir skrifanlegir geisladiskar eru þannig að aðeins er hægt að skrifa þá einu sinni, svokallaðir CD-R diskar (e. CD-recordable discs). Það sem hér kemur á eftir á eingöngu við um þá diska.
Tómir skrifanlegir geisladiskar hafa engin gögn. Spíralbrautin á disknum hefur því engar holur fyrir leysigeislann til ...
Skaðsemi sólarljóssins má rekja til útfjólublárra geisla en útfjólublátt ljós skiptist í tvær gerðir, UVA og UVB. Ljósabekkir eru frábrugðnir sólinni að því leyti að ljós þeirra inniheldur eingöngu UVA-geisla sem hafa lengri bylgjulengd en UVB-geislarnir. En það eru UVB-geislarnir sem valda því að við brennum í só...
Sólarljósið er í raun hvítt ljós sem er blanda af öllum litum. Þegar sólarljósið fellur á hluti á jörðinni drekka þeir hluta af því í sig en endurkasta hinu. Endurkastið ræður litnum á hlutnum.
Hlutir sem endurkasta öllu ljósinu en drekka ekkert í sig eru hvítir, eins og til dæmis hvítt blað eða strigi málarans...
Ímyndum okkur plánetu í fjarlægum hluta alheimsins þar sem búa viti bornar geimverur. Þær eru ekki alls ósvipaðar okkur mönnunum en það er eitt sem greinir þær frá okkur: Þær eru heyrnarlausar. Hvernig ætli þeirra heimur sé? Þar sem verurnar eru viti bornar hljóta þær að tjá sig með einhverjum hætti. Það gæti veri...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!