Spurningin í fullri lengd hljóðaði svona:
Hvað eru grafgötur og hvað merkir orðasambandið að fara (ekki) í grafgötur með eitthvað?
Orðið grafgötur er fleirtöluorð og merkir 'djúpar, niðurgrafnar götur, niðurgrafnir stígar'. Það er notað í orðasamböndunum fara ekki í grafgötur um eitthvað eða ganga ekki í gr...
Ánamaðkar nota hvorki lungu eða tálkn til þess að ná í súrefni heldur anda gegnum húðina. Það hefur hins vegar ýmis vandkvæði í för með sér. Þegar rignir mikið eins og á vorin, er erfitt fyrir ánamaðka að ná í súrefni í moldinni því að hún verður gegnsósa af vatni og súrefnið í henni verður bæði minna og óaðgengil...
Samkvæmt upplýsingum á vef Vegagerðarinnar er þjóðvegakerfið á Íslandi alls 12.898 km árið 2017. Þá eru ekki taldar með götur í þéttbýli sem ekki teljast til þjóðvega.
Af kjördæmunum er Norðvesturkjördæmi með lengsta vegakerfið, eða 4986 km. Stysta vegakerfið er hins vegar í Reykjavík eða tæplega 108 km og í ...
Ef sólin hyrfi skyndilega eða þyngdarkrafturinn frá henni þá mundu reikistjörnurnar hreyfast þaðan í frá eftir beinum línum með jöfnum hraða. Þessi tilhneiging þeirra kallast tregða og þær deila henni með öllum öðrum hlutum sem hafa massa.
Ástæðan til þess að þessi tregðuhreyfing eftir beinni línu gerist e...
Ritstjórn Vísindavefsins hefur rætt þessa erfiðu spurningu rækilega. Við byrjuðum að sjálfsögðu á að hugleiða hvort hún væri á verksviði okkar, en stundum fáum við spurningar sem eru það ekki. Síðan veltum við því fyrir okkur hvort þetta hefði verið mamma eða afi, stóri bróðir, Davíð eða Ingibjörg, Guð eða kannski...
Litir hafa ekki orðið til með þróun; það er fyrst og fremst lífríki jarðar sem er talið hafa þróast frá einni örveru í öndverðu.
Litur er einn af grundvallareiginleikum efnanna. Ef við lítum fyrst á frumefnin þá eru að vísu mörg þeirra í gasham við venjulegt hitastig og þá yfirleitt litlaus. En kolefnið í kolum...
Ef þú værir að ljúga þá væri það sem setningin segir satt og þú værir að segja satt. Ef þú værir að segja satt þá ætti setningin "Ég er að ljúga" að vera sönn en samkvæmt henni værir þú að ljúga. Setningin getur því hvorki verið sönn né ósönn.
Þetta er einn angi af svokallaðri lygaraþverstæðu sem hefur verið þe...
Með þessu svari er einnig svarað spurningu Hannesar Stefánssonar: Af hverju kemur fullt tungl?Fullt tungl verður einu sinni í hverri umferð tunglsins um jörð, þegar lína frá tungli hornrétt á brautarsléttu jarðar sker beinu línuna sem markast af sól og jörð. Um leið er tunglið nokkurn veginn fjærst sól í þeirri um...
Nýfallinn snjór glitrar ekki, en harðfenni, sem er þéttari snjór, sem náð hefur að endurkristallast og mynda stærri samhangandi kristalla, glitrar.
Nýfallinn snjór er hvítur því örsmáir ískristallarnir í honum dreifa ljósinu í allar áttir óháð öldulengd, án þess að drekka mikið í sig. Ljósið getur náð einhverja...
Segja má að moldin sé kjörbúsvæði fyrir ánamaðka (orma). Þar fá þeir fæðu, vatn og skjól. Í moldinni nærast ánamaðkar á rotnandi plöntuleifum. Þeir eru mikilvægir fyrir niðurbrot lífrænna efna og hjálpa til við hringrás margra grundvallarfrumefna í vistkerfinu.
Frekara lesefni á Vísindavefnum:
Hvað éta ...
Samkvæmt upplýsingum á vef Hagstofu Íslands voru íbúar á Hvolsvelli þann 1. janúar 2011 860 talsins.
Hvolsvöllur er þéttbýliskjarni sveitarfélagsins Rangárþings eystra. Á vef sveitarfélagsins kemur fram að byggð hófst á Hvolsvelli er Kaupfélag Hallgeirseyjar hóf þar verslun árið 1930.
Elstu tölur á vef Ha...
LUK stendur fyrir landfræðilegt upplýsingakerfi sem á ensku kallast Geographical Information System eða GIS. Hugtakið er notað yfir alla miðla (til dæmis kort) sem lýsa dreifingu fyrirbæra um ákveðið svæði jarðar. -- Síðustu ár hefur hugtakið LUK einkum verið notað yfir tölvuvædda gagnagrunna sem innihalda stafræn...
Einfaldasta svarið er kannski: Af því að þær þrífast!
Margar tegundir baktería urðu til fyrir mjög löngu og hafa þrifist ágætlega allar götur síðan, en hafa raunar talsvert aðra næringarkosti á síðari tímabilum jarðsögunnar en þær eða forverar þeirra höfðu í öndverðu.
Samkvæmt hugmyndum okkar um þróun lífsi...
Í dag er fyrsti dagurinn þinn sem strætóbílstjóri. Þú byrjar á Hlemmi en þar eru 12 inni í vagninum. Á fyrstu stöð fara 3 út og 5 inn. Á annarri stöð fara 7 inn og 3 út. Á þriðju og síðustu stöðinni fara 5 inn og 2 út.
Hvað er strætóbílstjórinn gamall? Og hvernig kemstu að þeirri niðurstöðu?
Hvað ætli þessi...
Saltið sem dreift er á götur bræðir ísinn og salti er stundum dreift á skíðabrekkur til að fá harðfenni. Þrátt fyrir að við fyrstu sýn sé þetta mótsögn geta báðar fullyrðingarnar verið réttar.
Salt sem stráð er á snjó eða ís bræðir yfirborð hans og myndar saltvatnspoll. Þetta gerist þannig að ísinn og saltið m...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!