Kopar er frumefni númer 29 í lotukerfinu og hefur efnatáknið Cu sem er skammstöfun á latneska heiti þess cuprum, stytting á „aes Cyprium“ (málmur frá Kýpur), en á Kýpur voru þekktar koparnámur í fornöld. Kopar er rauð-appelsínugulur eða rauð-brúnn á lit. Liturinn er einkennandi fyrir málminn enda flestir aðrir mál...
Lotukerfið inniheldur öll þekkt frumefni, bæði þau sem koma fyrir í náttúrunni og þau sem manneskjan hefur búið til í eindahröðlum (e. particle accelerators). Til þess að finna út úr því hvort tiltekinn málmur sé frumefni eða ekki er einfaldast að skoða lotukerfið eða leita í töflum/texta sem innihalda öll frumefn...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Mig langar að vita úr hverju bjöllurnar í Hallgrímskirkju er búnar til. Eru þær úr járni eða kopar?
Kirkjuklukkurnar í Hallgrímskirkju eru samtals 32. Þar af eru 3 stórar bjöllur og 29 minni í klukknaspili (e. carillon). Klukkurnar voru framleiddar hjá fyrirtækinu Royal Eijsbo...
Samkvæmt svari Þuríðar Þorbjarnardóttur við spurningunni Hver eru helstu frumefni líkamans? eru 26 frumefni í líkama okkar. Fjögur þeirra, súrefni, kolefni, vetni og nitur eru langalgengust því samtals eru þau um 96% af líkamsmassa okkar.
Önnur níu eru samtals 3,9% af líkamsmassanum. Það eru kalk, fosfór, kal...
Ekki er hættulegt að borða mat úr beygluðum dósum svo framarlega sem þær eru ennþá heilar. Ef gat er á dósinni á aftur á móti ekki að borða neitt sem kemur úr henni. Ástæðan fyrir því er sú að bakteríur hafa þá átt greiða leið að innihaldinu þar sem þær geta fjölgað sér og gert matinn óætan.
Ekki er hættulegt ...
Ekki er að finna neinar vísbendingar í sköpunarsögu Lukku-Láka, sem til dæmis má lesa í Allt um Lukku-Láka, um að hann hafi verið til eða eigi sér ákveðna fyrirmynd. Hins vegar eiga fjölmargar aðrar persónur í Lukku-Lákabókunum sér beinar fyrirmyndir, annað hvort teknar beint úr sögu villta vestursins eða þekktar ...
Enginn.
Iðnaðardemantur getur verið náttúrulegur demantur með miklum byggingarveilum eða óhreinindum. Mikill minnihluti náttúrulegra demanta er svo gallalaus að hægt sé að slípa þá og nota í skartgripi. Slíkir skartgripademantar hafa einkum fundist í námagreftri í gömlum eldstöðvum í Suður-Afríku, Ástralíu, ...
Snefilefni er þýðing á enska hugtakinu 'trace element' og er samheiti yfir nokkur frumefni sem finna má í mjög litlu magni í pöntu- og dýraríkinu. Til að geta flokkað frumefni sem snefilefni verður magn þess af heildarmagni frumefna lífverunnar að vera minna en 0,01%.
Þessi frumefni, sem flest eru málmar, eiga...
Upphaflega hljóðaði spurningin svona:
Af hverju heitir heftiplástur heftiplástur? Við hvaða hefti er átt?
Orðið heftiplástur ‘plástur til að líma umbúðir á sár’ er líklega fengið að láni úr dönsku hæfteplaster seint á 19. öld. Elsta dæmi í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans er frá 1881 en á timarit.is frá 1901. ...
Helstu frumefni líkamans eru súrefni (O), kolefni (C), vetni (H) og nitur (N). Samtals eru þessi fjögur efni um 96% af heildarmassa líkamans. Ef við skoðum nánar hvar þau koma fyrir og hlutfall hvers efnis af heildar líkamsmassa er röðin eftirfarandi:Súrefni (O) 65,0% - Er í vatni og lífrænum efnum, nauðsynlegt fy...
Amalgam eða silfurfyllingar eru notaðar til að endurbyggja skemmdar eða brotnar tennur. Þetta fyllingarefni hefur verið notað í árhundruð í billjónir tanna. Talið er að fyrsta fyllingin hafi verið sett í tönn árið 1826 í Frakklandi. Undanfarna áratugi hefur orðið ör þróun á tannlituðum fyllingum og eru þær annað h...
Eins og fram kemur í svarinu Hversu mörg frumefni eru þekkt og hve mörg þeirra koma fyrir í náttúrunni? þá eru frumefnin (e. elements eða chemical elements) í dag 118 talsins þó enn eigi eftir að staðfesta tilvist frumefna númer 113, 115, 117 og 118 og gefa þeim viðurkennd nöfn samkvæmt Alþjóðasamtökum um hreina o...
Áður en lengra er haldið er rétt að gera stuttlega grein fyrir því hvað ólífræn efni eru og hver munurinn er á þeim og lífrænum efnum.
Lífræn efni eru efnasambönd kolefnis nema koltvíoxíð, koleinoxíð og nokkur sölt. Þau finnast í lifandi verum, úrgangi frá þeim og leifum þeirra. Þau eiga það öll sameiginlegt a...
Antímon hefur verið þekkt frá örófi alda. Elstu heimildir um notkun efnisins eru frá Fornegyptum sem notuðu efnasamband antímons og brennisteins (Sb2S3) sem andlitsfarða. Með því að skoða egypskt myndletur eða híeróglýfur má sjá að Forneygyptar kölluðu efnið mśdmt, umritað á latneskt stafróf. Arabar þekktu ef...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!