Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Hellaljón (Panthera spelaea) voru stórvaxin rándýr af kattaætt sem lifðu á Pleistósentímabilinu (ísöld). Sögu þeirra má rekja að minnsta kosti 750 þúsund ár aftur í tímann en þau voru einkum útbreidd á síðari hluta Pleistósentímabilsins. Þau tilheyrðu ættkvíslinni Panthera, rétt eins og núlifandi ljón, tígrisdýr, jagúar og hlébarðar.
Lengi vel voru hellaljón talin vera deilitegund núlifandi ljóna og nefnd Panthera leo spelaea. Rannsóknir á útliteinkennum og sérstaklega erfðaefni hafa hins vegar sýnt að þau voru nægilega frábrugðin núlifandi ljónum til að réttlæta flokkun þeirra sem sérstök tegund, Panthera spelaea.
Hellaljón voru ein af útbreiddustu rándýrstegundunum á sínum tíma. Heimkynni þeirra náðu yfir stóran hluta Evrópu og norðurhluta Asíu, allt austur til Beringíu (e. Beringia), víðfeðms landsvæðis sem tengdi saman Síberíu og Alaska á jökulskeiðum, og þaðan til Alaska og Yukon í Norður-Ameríku. Sunnar í Norður-Ameríku lifði önnur náskyld en sérstök tegund, ameríska ljónið (Panthera atrox). Sérstaklega er fjallað um það í svari við spurningunni Hvað er vitað um forsögulega ljónið sem lifði í Norður-Ameríku á ísöld?
Leifar hellaljóna hafa fundist víða í Evrópu, meðal annars á Íberíuskaga, í Bretlandi, Mið-Evrópu og við Miðjarðarhaf. Í Asíu lifðu þau meðal annars í Síberíu og náðu langt norður fyrir heimskautsbaug. Útbreiðslan breyttist þó í tímans rás í takt við breytingar á loftslagi, gróðurfari og útbreiðslu helstu dýra sem ljónin lifðu á.
Sennilega hafa hellaljón fyrst og fremst lifað á opnum gresjum og steppum. Á ísöld voru víðáttumikil svæði í Evrópu og norðurhluta Asíu sem einkenndust af köldu og fremur þurru gróðurlendi, svokallaðar mammútasteppur. Eins og heitið gefur til kynna voru þetta heimkynni mammúta en líka fjölmargra annarra stórra grasbíta, meðal annars loðnashyrninga, hesta, vísunda og hreindýra. Þessi dýr voru möguleg bráð hellaljóna, en rannsóknir benda til þess að hreindýr hafi verið sérstaklega mikilvæg fæða þeirra. Heimkynni hellaljóna voru þó ekki bundin við opnar steppur heldur lifðu þau einnig á skógarsteppum, í gisnu skóglendi, á túndrum og jafnvel í fjalllendi.
Málverk af hellaljóni frá um 1920 eftir Heinrich Harder (1858-1935).
Vitneskja um útlit hellaljóna er fyrst og fremst fengin frá beinaleifum en hellamálverk frá ísöld gefa líka ákveðnar vísbendingar. Því til viðbótar hafa fundist óvenju vel varðveittir hellaljónshvolpar í Síberíu. Það eru ekki aðeins bein þeirra sem hafa varðveist, heldur einnig feldur, húð og ýmsir mjúkvefir. Hellaljón líktust ljónum nútímans en voru að jafnaði stærri. Rannsóknir hafa þó sýnt að líkamsstærð hellaljóna minnkað almennt með tímanum og undir lokin voru þau ekki mikið stærri en ljón nútímans. Hellamálverkin benda til þess að karlljónin hafi verið með lítinn eða engan makka, ólíkt afrískum ljónum í dag. Hvolparnir sem varðveist hafa, voru með ljósan feld, gráleitan eða gulbrúnan og þéttan undirfeld. Þótt ekki sé hægt að alhæfa um útlit og feld fullorðinna hellaljóna út frá því eru þetta mikilvægar vísbendingar.
Ekki er vitað hversu algeng samskipti manna og hellaljóna voru en fornleifar sýna að bæði neanderdalsmenn og nútímamenn komust í snertingu við þessi stóru rándýr. Í Siegsdorf í Þýskalandi hafa fundist bein hellaljóns sem voru með áverka sem benda til þess að það hafi verið drepið með tréspjóti. Bein dýrsins sýndu einnig merki um að skrokkurinn hafi verið unninn eftir dauða þess. Leifarnar eru taldar um 48 þúsund ára gamlar og bendir aldur þeirra til þess að neanderdalsmenn hafi þarna verið að verki. Í La Garma-hellinum á Spáni hafa fundist mun yngri leifar sem benda til þess að skinn hellaljóna hafi verið nýtt, mögulega í tengslum við helgisiði.
Hellamálverk sem fundist hafa á nokkrum stöðum í Evrópu, meðal annars í Chauvet-hellinum í Frakklandi, sýna að hellaljón skipuðu einnig sess í myndlist ísaldarmanna. Sama má segja um ljónamanninn svokallaða sem er um 30 cm há stytta úr mammútabeini sem fannst í Hohlenstein-Stadel-hellinum í Þýskalandi. Styttan er um 40 þúsund ára gömul og sýnir veru með mannlega eiginleika sem og áberandi einkenni hellaljóns.
Um 30.000-32.000 ára gömul mynd af ljónum úr Chauvet-hellinum í Frakklandi.
Hellaljón dóu út undir lok síðasta jökulskeiðs, fyrir um 13–14 þúsund árum. Útdauðinn varð þó ekki samtímis á öllu útbreiðslusvæðinu heldur hurfu þau fyrr af sumum svæðum en öðrum. Talið er að breytingar á loftslagi og gróðurfari við lok ísaldar hafi átt stóran þátt í útdauða þeirra, meðal annars vegna þess að þeim grasbítum sem þau veiddu fækkaði eða útbreiðsla þeirra breyttist.
Þess má að lokum geta að heitið „hellaljón“ getur verið nokkuð villandi. Það vísar ekki til þess að dýrin hafi að jafnaði haldið til í hellum heldur tengist það því að fjölmargar leifar þeirra hafa fundist þar. Hellaljón hafa þó farið inn í hella, meðal annars í leit að æti, en eins og áður hefur komið fram voru þau fyrst og fremst rándýr opinna gresja og steppa.
Heimildir og myndir:
Cueto, M. o.fl. (2016). Under the Skin of a Lion: Unique Evidence of Upper Paleolithic Exploitation and Use of Cave Lion (Panthera spelaea) from the Lower Gallery of La Garma (Spain). PloS one, 11(10), e0163591. https://doi.org/10.1371/journal.pone.0163591
Marciszak, A., & Gornig, W. (2024). From giant to dwarf: A trend of decreasing size in Panthera spelaea (Goldfuss, 1810) and its likely implications. Earth History and Biodiversity, 1, 100007. https://doi.org/https://doi.org/10.1016/j.hisbio.2024.100007
Russo, G. o.fl. (2023). First direct evidence of lion hunting and the early use of a lion pelt by Neanderthals. Scientific Reports, 13(1), 16405. https://doi.org/10.1038/s41598-023-42764-0
Jón Már Halldórsson og Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir. „Getið þið frætt mig um hellaljón sem lifðu á ísöld?“ Vísindavefurinn, 5. nóvember 2026, sótt 5. nóvember 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=25574.
Jón Már Halldórsson og Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir. (2026, 5. nóvember). Getið þið frætt mig um hellaljón sem lifðu á ísöld? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=25574
Jón Már Halldórsson og Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir. „Getið þið frætt mig um hellaljón sem lifðu á ísöld?“ Vísindavefurinn. 5. nóv. 2026. Vefsíða. 5. nóv. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=25574>.