Sólin Sólin Rís 04:20 • sest 22:46 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 22:56 • Sest 14:35 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:51 • Síðdegis: 23:16 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 04:39 • Síðdegis: 16:58 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Er Baula virkt eldfjall?

Sigurður Steinþórsson

Nei, ekki er það svo að Baula sé virkt eldfjall, því samkvæmt aldursgreiningu myndaðist fjallið fyrir um 3 milljónum ára. Baula er líparít-hraungúll*, til orðinn í eldgosi bergbráðar sem vegna hárrar seigju hlóðst upp yfir gosopinu. Að minnsta kosti að vestan er fjallið orpið skriðu úr digrum stuðlum sem benda til þess að gosið hafi undir ís.

Blágrýtis-bergstaflinn á þessu svæði er eldri en Baula, en ofan á honum er Grábrókarhraun, um 3400 ára gamall austurendi á Snæfellsnes-gosbeltinu.

Baula í Borgarfirði.

Mynd:

*ríólít (e. rhyolite) þykir nú réttara nafn en líparít; annað íslenskt heiti þessarar bergtegundar er ljósgrýti, samanber blágrýti, grágrýti og móberg.

Höfundur

Sigurður Steinþórsson

prófessor emeritus

Útgáfudagur

25.2.2013

Spyrjandi

Kristín Arna Árnadóttir, f. 2001

Tilvísun

Sigurður Steinþórsson. „Er Baula virkt eldfjall?“ Vísindavefurinn, 25. febrúar 2013, sótt 27. júlí 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=62580.

Sigurður Steinþórsson. (2013, 25. febrúar). Er Baula virkt eldfjall? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=62580

Sigurður Steinþórsson. „Er Baula virkt eldfjall?“ Vísindavefurinn. 25. feb. 2013. Vefsíða. 27. júl. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=62580>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Er Baula virkt eldfjall?
Nei, ekki er það svo að Baula sé virkt eldfjall, því samkvæmt aldursgreiningu myndaðist fjallið fyrir um 3 milljónum ára. Baula er líparít-hraungúll*, til orðinn í eldgosi bergbráðar sem vegna hárrar seigju hlóðst upp yfir gosopinu. Að minnsta kosti að vestan er fjallið orpið skriðu úr digrum stuðlum sem benda til þess að gosið hafi undir ís.

Blágrýtis-bergstaflinn á þessu svæði er eldri en Baula, en ofan á honum er Grábrókarhraun, um 3400 ára gamall austurendi á Snæfellsnes-gosbeltinu.

Baula í Borgarfirði.

Mynd:

*ríólít (e. rhyolite) þykir nú réttara nafn en líparít; annað íslenskt heiti þessarar bergtegundar er ljósgrýti, samanber blágrýti, grágrýti og móberg....