Orðtakið bera beinin í merkingunni ‘deyja, ljúka lífi sínu’ er þekkt í fornu máli og hefur lifað allt fram á þennan dag. Af dæmum úr fornum textum er augljóst að um sterku sögnina bera er að ræða (bera – bar – bárum – borið).
Í bókinni Íslenzkt orðtakasafn (1968:52) getur Halldór Halldórsson sér þess til að sö...
Orðasambandið að láta deigan síga er notað í merkingunni ‘missa ekki kjarkinn, gefast ekki upp, láta ekki bilbug á sér finna’. Eldri mynd orðasambandsins, sem Orðabók Háskólans á dæmi um frá 19. öld, er að láta ekki deigan á síga í sömu merkingu og sagnarsambandið að vera deigur á e-ð ‘óttast eitthvað, hafa áhyggj...
Að hafa í fullu tré við einhvern merkir að 'standa einhverjum á sporði, vera jafnoki einhvers' og að hafa í fullu tré við eitthvað merkir að 'eiga fullt í fangi með eitthvað.
Halldór Halldórsson fjallaði um sambandið að hafa í fullu tré við einhvern í doktorsritgerð sinni Íslensk orðtök (1954: 376). Hann nefni...
Orðasambandið í belg og biðu er fyrst þekkt á 19. öld samkvæmt Ritmálssafni Orðabókar Háskólans en það gæti vel verið eitthvað eldra. Í dæminu er það notað með sögninni að þylja. Sambandið merkir ‘hugsunarlaust, í samfelldri bunu, í hrærigraut’ og er notað með ýmsum sögnum eins og lesa, læra, tala.
Sennilegt er...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Á sínum tíma var mér kennt (af Jóni Guðmundssyni íslenskukennara í MR) að segja ætti „að berast í bökkum.“ Máltækið sé þannig tilkomið að maður fellur í straumvatn og reynir að koma sér upp á bakkann. Hann „berst í bökkum.“ Þetta sé það rétta, en flestir noti þetta á rangan hátt...
Orðasambandið að hlaupa af sér hornin í merkingunni ‘stillast, læra af reynslunni’ er erlent að uppruna. Í dönsku er sambandið løbe/rende hornene af sig og í þýsku sich dir Hörner ablaufen/abstoβen/abrennen. Líkingin er upprunalega sótt í dýraríkið. Ungir hirtir og hreindýrstarfar þóttu róast mikið þegar þeir...
Skammrif er annars vegar notað um stutt rifbein í kind, það er eitthvert af fjórum fremstu rifjunum en hins vegar um framhluta kindarskrokks (bringu, hrygg og fjögur fremstu rifin). Orðið er notað í tveimur orðasamböndum, það eru komin/farin skammrifin úr deginum ‘það er tekið að líða á daginn’ og þar fylgir böggu...
Upprunalega hljóðaði spurningin svona:
Hvort er rétt, að menn séu með fætur eða lappir? Margir standa fastir á því að einungis skepnur hafi lappir og mannfólkið fætur. Ef tekið er mið af því að svo sé rétt - er þá ekki orðanotkunin vinsæla „að standa í lappirnar“ frekar furðuleg málnotkun?
Samkvæmt Íslenskri...
Hér er einnig svarað spurningunum:Út á hvað gengur þetta með að láta til skarar skríða? Hver er uppruni máltækisins „að láta til skarar skríða“?
Nafnorðið skör hefur fleiri en eina merkingu, til dæmis ‘rönd, brún, kantur, pallbrún, sköruð súð á bát ... ’. Orðasambandið að láta til skarar skríða ‘leggja til atlö...
Spurningin hljóðaði upphaflega svona:
Hver er uppruni orðasambandins „að lofa upp í ermina“? Af hverju ermi?
Orðasambandið að lofa einhverju upp í ermina sína þekkist í málinu frá miðri 19. öld. Elsta dæmi í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans er úr blaðinu Norðra frá 1859:
jeg lofaði því upp í ermina mína að ...
Orðasambandið að mata krókinn ‛hagnast, einkum fjárhagslega, draga til sín, misnota aðstöðu’ þekkist frá fyrri hluta 19. aldar. Elsta dæmi í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans er úr kvæði eftir Benedikt Gröndal eldri í ljóðabók sem gefin var út 1833:ad hann brudli med óforstandi,
ellegar vilji mata krók.Samb...
Spurningin í fullri lengd hljóðaði svona:
Hver er uppruni orðatiltækisins „það er uppi á honum typpið“ og er hér verið að vísa til karlskyns kynfæra eða hefur orðið typpi aðra merkingu í þessu samhengi?
Orðið typpi hefur fleiri en eina merkingu: 'toppur, nabbi, bóla, húnn á siglutré, snerill, getnaðarlimur...
Nokkur munur er á málsháttum og orðatiltækjum. Málsháttur er vanalega fullmótuð setning sem felur í sér einhverja fullyrðingu eða jafnvel lífspeki eins og víða má finna í hinu forna kvæði Hávamálum. Þaðan eru til dæmis málshættirnir maður er manns gaman, halur er heima hver, þjóð veit ef þrír eru og margur verður ...
Í heild sinni hljóðaði spurningin svona:Hvaðan kemur orðatiltækið að "gjalda rauðan belg fyrir gráan" sem er víst úr Brennu Njáls sögu og einnig til sem "að gjalda bláan belg fyrir gráan".
Orðatiltækið að gjalda einhverjum rauðan belg fyrir gráan merkir að 'hefna sín rækilega á einhverjum' og er, eins og fram k...
Maður byrjar á því að fá her manns til að stela öllu steini léttara. Þá eru aðeins eftir steinar og það sem er þaðan af þyngra en þó gæti legið fiskur undir steini á stöku stað. Helga eða heilaga steininn má síðan finna með því að berja höfðinu við steininn, það er að segja alla steinana þar til sá rétti finnst. R...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!