Leit á vefnum
Niðurstöður leitar - 88 svör fundust
Hvers konar bygging er moskan í Cordoba og hvenær var hún reist?
Abd ar-Rahman I. hóf byggingu mosku í Cordoba um 785. Hann var af ætt Úmayyada sem var önnur helsta ætt múslima og tók sér titilinn emír yfir Al-Andalus síðla árs 755. Moskunni var valinn staður við Guadalquivir-ána, þar sem San Vicente-kirkjan hafði staðið, en henni höfðu múslimar deilt með kristnum sem bænastað....
Hvað getið þið sagt mér um borgina Medína Azahara?
Borgin Medína Azahara kallast öðru nafni Madīnat al-Zahrā. Nafnið þýðir bókstaflega hin skínandi borg og var hún höfuðborg Al-Andalus á tímum Umayyad-kalífadæmisins. Borgin var 112 hektarar, staðsett í 5 km beinni loftlínu norðvestur af Córdoba á suðurhlíð Djabal al-Arūs, það er „Brúðarfjallinu“, vi...
Hvaða heimildir og frásagnir eru til um innreið múslima á Íberíuskaga?
Heimildir um innreið múslima á Íberíuskaga í upphafi 8. aldar eru fáar, og flestar frásagnir af henni má finna í verkum sem voru skrifuð nokkrum öldum eftir að atburðirnir áttu sér stað. Tvö verk, skrifuð á arabísku í Al-Andalus á 10. öld, innihalda heildstæðustu lýsingarnar. Annars vegar er nafnlaust verk, Akhbar...
Hvað getið þið sagt mér um ríki múslima á Spáni sem kallaðist Al-Andalus?
Árið 711 leiddi herforinginn Tariq ibn Ziyad 1200-1700 manna her Berba frá Norður-Afríku til Suður-Spánar. Herinn kom að landi við Gíbraltar en sem dregur nafn sitt af brenglaðri útgáfa af arabíska heitinu Jebal Tarik sem merkir 'fjall Tariqs'. Eftir að hafa komið her sínum á land er sagt að Tariq hafi látið brenn...
Hvað hét Múhameð spámaður fullu nafni?
Fullt nafn Múhameðs spámanns er Abu al-Qasim Muhammad ibn ‘Abd Allah ibn ‘Abd al-Mut talib ibn Hashim. Samkvæmt arabískri nafnvenju eru börn yfirleitt kennd við föður eins og á Íslandi. Ibn 'Umar merkir sonur 'Umars (Ómars) og bint 'Abbas er dóttir 'Abbasar. Ein af fáum undantekningum frá þessari venju er þega...
Hver var Ibn Sina, öðru nafni Avicenna?
Ibn Sina (Abu Ali al-Husayn ibn Abd Allah ibn Sina), betur þekktur sem Avicenna á Vesturlöndum, var persneskur heimspekingur og fjölfræðingur. Hann fæddist um 980 e.Kr. í þorpinu Afshana nálægt borginni Bukhara sem í dag tilheyrir Úsbekistan.[1] Avicenna er talinn vera einn áhrifamesti heimspekingur Mið-Austurland...
Hvað getið þið sagt mér um Ibn Khaldun?
Ibn Khaldun hét fullu nafni Abū Zayd 'Abd ar-Raḥmān ibn Muḥammad ibn Khaldūn al-Ḥaḍramī og fæddist árið 1332 í Túnis. Hann var mikill hugsuður og er þekktastur fyrir ritin Muqaddimah (inngangur) og Kitāb al-'Ibar (bók um kennslustundir). Muqaddimah er talið vera fyr...
Hvenær fæddist Múhameð?
Múhameð spámaður hét fullu nafni Abū al-Qāsim Muḥammad ibn ʿAbd Allāh ibn ʿAbd al-Muṭṭalib ibn Hāshim. Hann fæddist árið 570 í Mekka og lést 8. júní árið 632 í Medínu. Bænahús múslima kallast moskur. Þeir sem aðhyllast íslamstrú, það er múslimar, trúa á einn g...
Hver var Abu Bakr og hvaða áhrif hafði hann á íslam?
Abu Bakr var einn helsti félagi Múhameðs spámanns, ráðgjafi hans og tengdafaðir. Hann fæddist í Mekka árið 573 og var af efnaðri kaupmannafjölskyldu kominn. Fjölskylda hans tilheyrði svonefndum Quyrash-ættbálki. Á sínum yngri árum umgekkst hann Bedúína töluvert og þar kviknaði áhugi hans á kameldýrum. Nafn hans má...
Hvað þýðir orðið simsalabim og hvaðan er það upprunnið?
Orðið simsalabim er sennilega upprunnið í þýsku. Fleiri en ein skýring er á tilurð þess. Sumir álíta það eiga rætur að rekja allt aftur til síðmiðalda. Kristnir menn hafi talið múslima eins konar töframenn. Upphafsorð við ýmiss konar athafnir „bismi allah rahman i rahim“ (‛í nafni guðs hins algóða’) hafi afb...
Hvaðan kom hafið?
Hafið er að langmestum hluta orðið til úr gosgufum sem losnað hafa í eldgosum á 4.500 milljón ára ævi jarðar. Dæmigerðar gosgufur, eins og þær sem losnuðu í Surtseyjargosinu, eru um 85% vatn. Í hraunkviku, sem kemur upp á yfirborðið, eru um 0,6% af vatni, og af þeim losna um 0,5% út í andrúmsloftið, þar sem vatnið...
Hvað er ara og grúi í orðinu aragrúi?
Í heild hljóðaði spurningin svona:Hvað er ara og grúi í orðinu aragrúi? Hvaða fyrirbæri er grúi og hver er þessi Ari?! Nafnorðið aragrúi ‘mikill fjöldi’ er sett saman úr hvorugkynsorðinu ar ‘rykkorn í sólargeisla’ og karlkynsorðinu grúi ‘fjöldi, mergð’. Elstu dæmi í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans eru frá mið...
Hvað er wahhabismi sem er ríkjandi í Sádi-Arabíu?
Íslam skiptist í tvær greinar, súnníta og sjíta. Flestir Sádi-Arabar eru súnnítar. Wahhabismi er nafnið á hugmyndafræði sem er ríkjandi í Sádi-Arabíu. Hugmyndafræðin á upphaflega rætur sínar að rekja til fræðimanns að nafni Múhammeð ibn Abd Wahhab (1703-1792) sem var uppi á 18. öld. Wahhab var frá Najd, sem er...
Hvað er Kevlar og úr hverju er það gert?
Kevlar er vöruheiti efnafyrirtækisins DuPont á mjög sterku plastefni úr tiltekinni fjölliðu, nánar tiltekið para-aramíðfjölliðu. Sama fjölliða er framleidd af öðrum fyrirtækum og seld meðal annars undir vöruheitinu Twaron. Aramíð er stytting á efnaheitinu arómatísk fjölamíð, en þau eru sett saman úr einingunum ...
Hvaða heimildir hafa vísindamenn fyrir því hvenær ísöldin hafi verið?
Ísaldir skilja eftir sig margvíslegar menjar sem jarðfræðingar geta greint og túlkað. Þar má fyrst telja jökulsorfnar klappir, eins og í Öskjuhlíðinni í Reykjavík, og jökulruðning sem jöklar ísaldar hafa skilið eftir sig. Ennfremur U-laga dali og firði, sem skriðjöklar ísaldar hafa sorfið. Hér á landi bera móbergs...