Heimsálfurnar eru sjö talsins samkvæmt þekkingu nútímans: Afríka, Asía, Ástralía, Evrópa, Norður-Ameríka, Suður-Ameríka og Suðurskautslandið. Nöfnin Afríka, Asía og Evrópa eru forn og uppruni þeirra ekki fullljós. Hin nöfnin eru nýrri og eiga sér nokkuð skýran uppruna.
***
Hér er einnig að finna svar við spu...
Talið er fuglategundir séu um 9.700 í öllum heiminum.
Flestar fuglategundir er að finna í Suður-Ameríku, um 3.700 talsins, enda eru regnskógar Amazon-svæðisins með tegundaauðugustu búsvæðum í heimi. Asía er næst í röðinni með 2.900 tegundir og í Afríku eru tegundirnar 2.300. Í Norður-Ameríku (frá Panama og norð...
Asía er fjölmennasta heimsálfa jarðar. Talið er að um mitt ár 2012 hafi Asíubúar verið um 4,2 milljarðar. Þetta er um 60% alls mannkyns.
Asía.
Kína er fjölmennasta ríki Asíu og jafnframt fjölmennasta ríki heims. Þar búa rúmlega 1,3 milljarðar manna eins og fjallað er um í svari við spurningunni Hvað búa nák...
Seer er gömul mælieining sem notuð er í Indlandi og annars staðar í Suður-Asíu. Eitt seer jafngildir einum fertugasta hluta úr maund.
Hversu mikið eitt maund var fór eftir landsvæðum, en á tímum bresku nýlendustjórnarinnar í Indlandi var það staðlað í 82,286 pund eða rúm 37 kg. Þannig jafngilti eitt seer tæ...
Þurrlendi jarðarinnar skiptist í nokkra meginhluta sem kallaðir eru heimsálfur. Hver hluti er nokkurn veginn samfellt landflæmi en nærliggjandi eyjar eru taldar með. Orðið álfa var upprunalega hálfa en h-ið hefur fallið brott.
Heimsálfurnar eru sjö: Afríka, Asía, Evrópa, Eyjaálfa (Ástralía), Norður-Ameríka, Suð...
Ekki er vitað hvernig frummenn fóru með lík framliðinna. Líklegt er, að þau hafi nánast verið skilin eftir þar sem einstaklingurinn dó eða borin burt frá híbýlum ef dauðann bar þar að höndum. Elstu merki, sem til þessa hafa fundist um að búið hafi verið um lík, eru frá því fyrir meira en hundrað þúsund árum. Líkam...
Sólveig Einarsdóttir spurði: Hvaða heimsálfa er stærst og hver er minnst?
Það er mjög ruglingslegt að leita að þessum svörum en það er Asía sem er stærst, hún er 43.608.000 km2, svo er Afríka 30.335.000 km2, Norður-Ameríka er 25.349.000 km2, Suður-Ameríka er 17.611.000 km2, Suðurskautið 13.340.000 km2, ...
Að öllum líkindum finnast ekki lengur krókódílar í ánni Nam Sam í Laos. Áður fyrr var síamskrókódíllinn (Crocodylus siamensis) útbreiddur um mestallt Indókína, frá Búrma í vestri, um Kambódíu, Laos og til Víetnam. Tegundin lifði einnig á Borneó og jafnvel líka á eyjunni Jövu. Síamskrókódíllinn fannst í hvers kyns ...
Elsta dæmið um skiptingu heimsins í álfur er hjá Hekataiosi frá Míletos á 6. öld f.Kr. en hjá honum voru álfurnar tvær, Evrópa og Asía.1 Á dögum Heródótosar sagnaritara var hins vegar heiminum skipt í þrennt, Evrópu, Asíu og Líbýu.2 Líklega hafði Heródótos nokkur áhrif á að þrískiptingin varð ríkjandi til að lýsa ...
Þó venjan sé að tala um heimsálfurnar sjö þá er það ekki algilt, sumir vilja álíta þær sex talsins og enn aðrir meina að þær séu aðeins fimm. Hvaða tölu fólk aðhyllist ræðst af því hvernig það vill skilgreina heimsálfur og eins af því hvaða hefðir hafa skapast í tímans rás.
Það er erfitt að finna eina endanlega...
Svo virðist sem orðið Gaflari sé bundið Hafnarfirði og að Gaflari sé þá samheiti við Hafnfirðingur. Orðið má rekja aftur til kreppuáranna á milli stríða þegar litla vinnu var að fá og menn í Hafnarfirði biðu við gafla tveggja húsa eftir því hvort einhvern eða einhverja þyrfti til vinnu þann daginn. Orðið gafl merk...
Asíur eru einfaldlega stórar gúrkur (Cucumis sativus) sem yfirleitt eru seldar súrsaðar. Nafnið er hingað komið úr dönsku en þar er asie notað um kjarnhreinsaða, niðurskorna og súrsaða gúrku í edikslegi. Danska orðið gæti verið afbökun orðsins achar sem er haft um hvers kyns súrsað og kryddað grænmeti og ávexti.
...
Hér er einnig svör við spurningunum: Hvert er hæsta fjall í heimi? Hver eru hæstu fjöll í hverri heimsálfu?
Hæst fjall Noregs, sem jafnframt er hæsta fjall Norðurlandanna, kallast Galdhøppiggen og er 2470 metra hátt. Fjallið er á svæði sem kallast Jötunheimar og eru næstu bæir við það Sandane og Nordfjordeild í u...
Fótfesturökin
Undirritaður hefur ekki rekist á íslenska orðið sleipurök áður en líklegt er að átt sé við tegund raka sem á ensku heitir slippery slope, og kallast yfirleitt fótfesturök á íslensku.
Fótfesturök eru notuð til þess að vara einhvern við því að fallast á tiltekið atriði því þá þurfi sá hinn sami ...
Miðbaugur jarðar (e. equator) liggur um 11-14 lönd eða þjóðríki en nákvæm tala fer eftir því hvernig spurningin er skilgreind nánar. Miðbaugur liggur í gegnum landsvæði ellefu sjálfstæðra ríkja en auk þess liggur hann á milli eyja í eyjaklösum ríkjanna Maldíveyja og Kiribati. Einnig liggur hann um litla óbyggða ey...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!