Í lögum er ekki að finna neina hnitmiðaða skilgreiningu á hjúskaparhugtakinu. Hins vegar má komast þannig að orði að hjúskapur sé samningur með stöðluðum samningsskilmálum.
Nú geta borgararnir gert margvíslega samninga sín í milli. Oft koma einstaklingar sér saman um samningsskilmála, ýmist skriflega eða munnl...
Nei, íslenska ríkið hefur ekki gert slíkt tilkall. Íslenska landhelgin er, samkvæmt 1. gr. laga nr. 41/1979 um landhelgi, efnahagslögsögu og landgrunn, mörkuð af línu sem nær 12 sjómílur út frá svokölluðum grunnlínum. Innan grunnlínanna eru flóar og firðir landsins. Íslenska ríkið hefur fullveldisrétt yfir landhel...
Hálendi Íslands er ekki hugtak sem skilgreint er í lögum. Gert er ráð fyrir því að spyrjandi eigi við um það landsvæði á Íslandi sem ekki er innan einkaeignarlanda neinna einstaklinga eða félaga.
Sé hálendið skilgreint þannig þá er svarið eftirfarandi: Samkvæmt 2. gr. laga nr. 58/1998 um þjóðlendur og ákvörðun ...
Yfirleitt er talað um að fyrsta kínverska ríkið hafi verið stofnað um 2100 f.Kr. Það gengur undir nafninu Xia (夏朝) en nánast ekkert er vitað um það. Menn greinir meira að segja á um hvort það var til eða ekki. Fyrsta kínverska ríkið sem beinar heimildir eru um er hið svokallaða Shang-ríki (商...
Það er nokkuð erfitt að bera saman skatta á milli landa vegna þess hve skattkerfi eru mismunandi. Þau lönd sem hafa lægsta skatta búa öll að öðrum tekjustofnum sem geta staðið undir rekstri hins opinbera.
Í Sameinuðu arabísku furstadæmunum eru hvorki tekjur einstaklinga né fyrirtækja skattlagðar og þar er heldu...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Væri hægt að einkavæða þjóðkirkjuna á sama hátt og talað hefur verið um að einkavæða heilbrigðiskerfið?
Ekki er ljóst af spurningunni hvaða skilning fyrirspyrjandi leggur í hugtakið einkavæðing nema hvað vísað er til umræðu um að einkavæða heilbrigðiskerfið. Þegar einkavæðing ...
Spurningin í fullri lengd hljómaði svona: Getur ferðaþjónustan ekki sent reikning til ríkisins vegna aflabrest eins og útgerðir gera, eins og þegar loðnan lét ekki sjá sig við Íslandsstrendur og ég held makríll líka. Á sömu forsendum er ég að meina.
Við gerum ráð fyrir að spyrjandi sé að vísa til skaðabótakrafn...
Jesús kenndi lærisveinunum bænina Faðir vor, oft kölluð faðirvorið, þegar þeir báðu hann um að kenna sér að biðja. Flestir þekkja bænina á okkar ástkæra ylhýra tungumáli:
Faðir vor, þú sem ert á himnum,
helgist þitt nafn, til komi þitt ríki,
verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni.
Gef oss í dag vort dagle...
Þegar afbrot eru framin þarf að ákvarða eftir hvaða lögum er farið við úrlausn málsins. Almenna reglan er sú að dæmt er eftir reglum þess lands þar sem brotið er framið, hvort sem brotamaður er með ríkisborgararétt þar eða ekki. Á þessu eru þó ákveðnar undantekningar, til dæmis út frá reglum um svonefndan úrlendis...
Örninn er með útbreiddustu merkjum eða táknum heims og hefur ýmist táknað guðdómlegt vald eða höfðingjavald. Hann finnst í Babýlon, Persíu og Indverjalandi en einnig víða um Evrópu, í skjaldarmerkjum.
Meðal Rómverja var örninn tákn guðsins Júpíters og síðar tákn keisarans. Á tímum Karls mikla varð örninn skja...
NEP stendur fyrir enska hugtakið „New Economic Policy” sem þýðir „ný stefna í efnahagsmálum”. Vitaskuld hafa mörg ríki breytt um stefnu í efnahagsmálum, jafnvel margoft, en þessi skammstöfun er yfirleitt notuð til að tákna efnahagstefnu þá sem reynt var að fylgja í Sovétríkjunum frá 1921 til 1928.
Sovétríkin hö...
Í Bandaríkjunum eru fimmtíu ríki. Fjörutíu og átta af þeim liggja yfir samfellt landsvæði. Hawaii, sem er nýjasta ríkið (gekk í Bandaríkin 1959), er eyjahópur í Kyrrahafi suðvestan við Bandaríkin og Alaska, sem er næstnýjasta ríkið, er fyrir norðan Bandaríkin umkringt af vesturhluta Kanada. Margir Bandaríkjamenn e...
Corpus Platonicum
Að frátaldri Málsvörn Sókratesar, sem er varnarræða Sókratesar fyrir réttinum, eru öll verk Platons í formi samræðna. Alls eru honum eignaðar 42 samræður, þrettán bréf og eitt safn skilgreininga (nánast eins og heimspekileg orðabók). Þessi verk hafa öll varðveist og nefnist heildarsafnið einu ...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svo:Eru allir betur settir þegar stór fyrirtæki í eigu ríkisins eru einkavædd? Ef svo er, getið þið lýst nákvæmlega hvernig?
Ekki kemur fram hjá spyrjanda hvað átt sé við með hugtakinu „allir“. Ég leyfi mér að gefa mér að átt sé við alla lifandi þegna ríkisins og undanskil löga...
Íslenskar ríkisstofnanir eru margar og mismunandi og engin algild skilgreining er til á ríkisstofnun. Í lögum um opinber fjármál er hugtakið ríkisaðili skilgreint sem: „aðilar sem fara með ríkisvald og þær stofnanir, sjóðir og fyrirtæki sem eru að hálfu eða meiri hluta í eigu ríkis og sveitarfélaga.“ Björg Thorare...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!