Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Góðan daginn! Er einhver skýring á því af hverju latnesku tungumálin eru lesin frá vinstri til hægri en arabíska og hebreska frá hægri til vinstri og kínverska neðan frá og upp?
Svarið við þessari spurningu er einfalt: Það veit enginn hver skýringin er, en þrátt fyrir ...
Í söfnum Orðabókar Háskólans eru engin dæmi um notkun orðanna bakborði/stjórnborði í flugvélum. Við höfðum því samband við tvo reynda flugmenn sem sögðu okkur að slík notkun tíðkaðist ekki í flugmáli.
Þess má geta að orðið stjórnborði er upphaflega dregið af því að stýrið var hægra megin á skipum en bakborði af...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Voru rúnir alltaf ritaðar frá vinstri til hægri? Eru þekkt einhver dæmi um annað? Er vitað um einhverjar rúnir sem voru ritaðar í hring?
Rúnir voru á elsta tímabilinu (frá um 200 til 800 e.Kr.) skrifaðar ýmist frá vinstri eða hægri. Ef þær voru skrifaðar frá hægri voru þær spe...
Fjölmargir hafa spurt Vísindavefinn um notkun hugtakanna vinstri og hægri í umræðu um stjórnmál:
Hver er ástæða þess að stjórnmálastefnur er titlaðar til hægri eða vinstri?
Þegar það er talað um vinstri og hægri í pólitík, hvað er þá átt við?
Hver er munurinn á hægrisinnuðum manni eða vinstrisinnuðum?
Hvað er ...
Hægri og vinstri eru orð sem við notum yfir afstöðu hluta í umhverfinu til líkama okkar. Í Íslenskri orðabók (ritstjóri Árni Böðvarsson) segir um orðið hægri í þessari merkingu: ‘um þá hlið líkamans þar sem hjartað er ekki: h. fótur, h. hönd; um átt eða stefnu sem miðast við hægri hlið líkamans’. Vinstri er svo á ...
Lýsingarorðið hægri, sem notað er um stefnu eða horf en einnig um hönd er skylt lýsingarorðinu hægur 'þægilegur, auðveldur; rólegur'. Hægri er miðstig lýsingarorðsins og er til í nágrannamálum eins og í færeysku høgri, dönsku højre.
Vinstri er talið af germanskri rót *wen-, það er *wen-is-tra, sem er hin sama ...
Á myndinni má sjá hvernig örmjó ræma eða sigð sést fyrst meðfram hægri kantinum á tunglinu um sólsetur. Mánasigðin vex síðan smám saman eftir því sem líður á tunglmánuðinn þar til hann er hálfnaður og komið er fullt tungl. Þá verður hægri kanturinn fyrst dökkur og myrkrið færist síðan smám saman yfir um leið og tu...
Það er yfirleitt þægilegast að lesa vestræna texta frá vinstri til hægri niður síðuna því að þannig eru samfelldir textar vanalega settir á blaðið. Á öðrum menningarsvæðum er þessu öðruvísi háttað. Arabíska er skrifuð frá hægri til vinstri og í Austur-Asíu er textinn í lóðréttum línum eða dálkum sem eru lesnir ofa...
Einfalda svarið við þeirri spurningu er að reglur Alþjóðafrjálsíþrótta-sambandsins kveða á um að svo eigi að gera. Áður en sú regla var sett voru hlaup ýmist hlaupin rangsælis eða réttsælis. Regla 163.1 segir að í göngu og hlaupum þar sem að minnsta kosti er beygt einu sinni skuli vinstri höndin vera innar. Hins v...
Hjartað er fjögurra hólfa dæla. Tvö efri hólfin kallast gáttir og taka þær við blóðinu frá líkamanum, sú hægri tekur við blóði frá vefjum líkamans en sú vinstri frá lungunum. Neðri hólfin kallast sleglar eða hvolf og er þeirra hlutverk að dæla blóðinu út í líkamann, hægri slegillinn til lungna þar sem loftskipti ...
Vinstri umferð á sér mjög langa sögu. Þegar vopnaðir menn mættust, gangandi eða ríðandi, var tryggast að hafa höndina sem sverðinu brá sömu megin og sá var, sem á móti kom. Örvhentir riddarar urðu sjaldan ellidauðir.
Þegar Bónifasíus áttundi páfi bauð pílagrímum árið 1300 að víkja til vinstri, var hann aðeins ...
Oft reynist erfitt að geta sér til um uppruna hefða. Þær eru margar hverjar ævafornar og það sem okkur þykir líklegt um uppruna þeirra þarf alls ekki endilega að reynast rétt. Handaband með hægri hendi er ein þessara fjölmörgu hefða sem fæstir spá í enda fyndist mörgum líklega ankannalegt að heilsa með vinstri hen...
Minnisbækur ítalska lista- og vísindamannsins Leonardó da Vinci (1452-1519) eru illlæsilegar fyrir margra hluta sakir. Þar ber fyrst að nefna að listamaðurinn notaði spegilskrift og byrjaði hverja línu hægra megin á blaðinu og skrifaði til vinstri. Þeir sem eru vanir að lesa óspeglaða skrift frá vinstri til hægri ...
Spurningarnar voru upphaflega þessar:
Ég er nýbyrjuð að vinna á leikskóla og var þess vegna að velta fyrir mér hvaðan í ósköpunum orðið krummafótur er komið. (Guðjóna Björk)
Þegar maður fer með hægri fót í vinstri skó, þá segir maður oft að maður hafi farið í krummafót. Af hverju er það kallað krummafótur? (St...
Upphaflega hljómaði spurningin svona:
Hver er munurinn á möngum og venjulegum teiknimyndasögum (fyrir utan það að manga er japanskt)?
Eins og spyrjandi bendir réttilega á eru möngur (nf. et. manga) japanskar teiknimyndasögur, enda er manga japanska orðið yfir slíkar sögur. Möngur urðu til skömmu eftir lok seinni...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!