Sólin Sólin Rís 09:58 • sest 17:26 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 21:52 • Sest 10:16 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 08:01 • Síðdegis: 20:25 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:51 • Síðdegis: 14:19 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvaða lönd teljast til Evrópu?

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir

Þessu er ekki eins auðvelt að svara og ætla mætti, jafnvel þótt við reynum ekki að gera það í eitt skipti fyrir öll. Bæði myndast ný ríki öðru hverju og eins kemur fyrir að ríki sameinast. Auk þess eru sum ríki á gráu svæði við jaðar Evrópu eða þá að landsvæði þeirra telst til tveggja heimsálfa, ýmist þannig að höfuðborgin sé Evrópumegin eða ekki. Þá kann stundum að vera vafamál hvað skuli telja fullgilt, sjálfstætt ríki og hvað ekki. Hér verður gengið út frá því að orðið "land" í spurningunni þýði sjálfstætt ríki og svarað í samræmi við þá túlkun orðsins.

***

Í norðri, vestri og suðri eru mörk Evrópu nokkuð ljós þar sem álfan liggur að hafi en málið vandast aðeins þegar kemur að afmörkun hennar í austur. Mörk Asíu og Evrópu hafa löngum verið umdeild en í dag eru þó flestir landfræðingar sammála um að miða mörk þessara tveggja heimsálfa við línu sem dregin er um austurhlíðar Úralfjalla og ána Úral að Kaspíahafi. Vestan Kaspíahafs eru mörkin oftast sögð fylgja vatnaskilum í Kákasusfjöllum að Svartahafi. Frá Svartahafi liggja mörkin svo um Bosporus- og Dardanellasund í Eyjahaf.

Miðað við þessi mörk á milli heimsálfanna tveggja eru 44 ríki alfarið í Evrópu, að Rússlandi undanskildu, en höfuðborg þess er í Evrópu. Þau eru:

AlbaníaAndorraAusturríki
BelarúsBelgíaBosnía og Hersegóvína
BretlandBúlgaríaDanmörk
EistlandFinnlandFrakkland
GrikklandHollandÍrland
ÍslandÍtalíaKróatía
LettlandLiechtensteinLitháen
LúxemborgLýðveldið MakedóníaMalta
MoldóvaMónakóNoregur
PáfagarðurPóllandPólland
RúmeníaRússlandSan Marínó
SerbíaSlóvakíaSlóvenía
SpánnSvartfjallalandSviss
SvíþjóðTékklandUngverjaland
ÚkraínaÞýskaland 

Þessu til viðbótar eru sex ríki sem eiga land að hluta til í Evrópu eða eru meðlimir í evrópskum samtökum og eru oft talin til álfunnar, til dæmis á vef Evrópusambandsins. Þá er ekki eingöngu horft til landfræðilegrar legu heldur getur það byggst á menningarlegum eða sögulegum grunni.

Fyrst er þar til að telja Kýpur sem landfræðilega er hluti af Asíu en er oft talin til Evrópu vegna sögu og menningar og á meðal annars aðild að Evrópusambandinu. Tyrkland, Georgía, Aserbaídsjan og Kasakstan liggja öll að litlum hluta innan Evrópu og tilheyra því í raun tveimur heimsálfum. Landfræðilega er Armenía sjaldnast talin til Evrópu en ef litið er til menningar og sögu þegar löndum er skipt á milli heimsálfa þá er Armenía stundum talin með Evrópulöndum. Að Kasakstan undanskildu eiga þessi lönd öll aðild að Evrópuráðinu.

Það eru því allt í allt 50 ríki sem geta talist til Evrópu út frá staðsetningu, sögu og menningu og hefðbundinni skilgreiningu á álfunni eða eru í mikilvægum samtökum eins og Evrópuráðinu.

Heimildir og kort:

Höfundur

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir

landfræðingur og starfsmaður Vísindavefsins

Útgáfudagur

28.7.2003

Síðast uppfært

15.1.2026

Spyrjandi

Jóhann Einarsson, f. 1990

Tilvísun

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir. „Hvaða lönd teljast til Evrópu?“ Vísindavefurinn, 28. júlí 2003, sótt 4. febrúar 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=3614.

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir. (2003, 28. júlí). Hvaða lönd teljast til Evrópu? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=3614

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir. „Hvaða lönd teljast til Evrópu?“ Vísindavefurinn. 28. júl. 2003. Vefsíða. 4. feb. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=3614>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...